Verkalýðsfélag Vestfirðinga auglýsir eftir kjaramála- og þjónustufulltrúa með áherslu á vinnustaðaeftirlit hjá starfstöð félagsins á Ísafirði. Um 100% starf er að ræða en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Ábyrgðasvið:
Aðstoð í vinnuréttindamálum
Almenn þjónusta við félagsmenn
Umsjón með vinnustaaðaeftirliti
Umsjón netmiðlum félagsins
Skýrslugerð tengt kjaramálum
Aðstoð við innheimtu og rafrænum skráningum
Símsvörun og önnur tilfallandi skrifstofustörf
Hæfniskröfur:
Áhugi á félagsstörfum og rík réttlætiskennd
Góðir samskiptahæfileikar og framúrskarandi þjónustulund
Hagnýt menntun sem nýtist í starfi
Hafa góða tölvukunnáttu og færni í upplýsinga og tæknimálum
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Gott vald á íslensku og ensku. Önnur tungumál kostur
Reynsla af uppgjörsvinnu og skýrslugerð
Þekking á Dk bókhaldskerfi er kostur
Nánari upplýsingar um starfið gefur Finnbogi Sveinbjörnsson í síma 456 5190 eða í tölvupósti á netfangið finnbogi@verkvest.is
Umsóknarfrestur er til og með 19. mars nk.