Verkalýðsfélag Vestfirðinga/Verk Vest auglýsir eftir þjónustufulltrúa til félagsins með starfsstöð á Patreksfirði

Um er að ræða 87% starfshlutfall með vinnutíma frá kl.09:00 alla virka daga á starfsstöð félagsins á Patreksfirði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember 2021.
Höfum ákveðið að framlengja umsóknarfrest til 15. október 2021.
Ábyrgðasvið:

Almenn þjónusta við félagsmenn
Aðstoð í vinnuréttindamálum
Umsjón netmiðlum félagsins
Aðstoð við skýrslugerð
Aðstoð við innheimtu og rafrænum skráningum
Símsvörun og önnur tilfallandi skrifstofustörf

Hæfniskröfur:

Menntun sem nýtist í starfi – (Stúdentspróf eða hagný menntun sem nýtist í starfi )
Reynsla af uppgjörsvinnu, skýrslugerð og afstemmingum er kostur
Þekking á Dk bókhaldskerfi er kostur
Gott vald á íslensku. Önnur tungumál t.d. enska og pólska kostur
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum mikilvægur kostur
Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund skilyrði

Upplýsingar veita:
Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður og framkv.stjóri Verk Vest finnbogi@verkvest.is og Bergvin Eyþórsson, varaformaður og skrifstofustjóri bergvin@verkvest.is
Umsóknir með ferilskrá og kynningarbréfi óskast sendar á finnbogi@verkvest.is