Nú fer í hönd einn mesti annatími afgreiðslu fólks í verslunum þegar jólaösin fer að þyngjast. Í desember eykst álag á verslunar og afgreislufólki mjög mikið og því vert að hafa í huga nokkur mikilvæg atriði er varða réttindi þessarra starfsmanna. Þá beinir félagið þeim tilmælum til verslunar og afgreiðslufólks að halda vel utan um skráningu vinnu tíma.
Normal
0
21
false
false
false
IS
X-NONE
X-NONE
MicrosoftInternetExplorer4
/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:“Table Normal“;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:““;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin-top:0cm;
mso-para-margin-right:0cm;
mso-para-margin-bottom:10.0pt;
mso-para-margin-left:0cm;
line-height:115%;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:“Calibri“,“sans-serif“;
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-hansi-font-family:Calibri;
mso-hansi-theme-font:minor-latin;
mso-bidi-font-family:“Times New Roman“;
mso-bidi-theme-font:minor-bidi;
mso-fareast-language:EN-US;}
Frídagar yfir hátíðarnar eru:Eftir kl. 12 á
aðfangadag (stórhátíðardagur)
Jóladagur (stórhátíðardagur)
Annar í jólum (almennur frídagur)
Eftir kl. 12 á gamlársdag (stórhátíðardagur)
Nýársdagur (stórhátíðardagur)
Ekki er vinnuskylda
á þessum dögum og skulu launþegar halda sínum dagvinnulaunum óskertum. Auk þess
má minna á að fyrsta vinnudag eftir jól skal dagvinna í verslunum hefjast kl.
10.
Matar- og kaffitímar
Hádegismatartími:
Á bilinu ½ – 1 klst. (háð samkomulagi). Þessi matartími telst ekki til
vinnutíma. Starfsfólk þarf að vinna a.m.k. 5 klst. til að öðlast rétt til
matartíma í hádeginu.
Kvöldmatartími: 1 klst.
( á milli kl. 19 og 20) og telst til vinnutíma. Ef kvöldmatartíminn eða hluti
hans er unninn skal greiða þann hluta með tvöföldu kaupi. Réttur til
kvöldmatartíma miðast við a.m.k. 4,5 klst. vinnu.
Kaffitími: 35 mínútur á dag hjá afgreiðslufólki, (15 mín
hjá skrifstofólki) miðað við fullan vinnudag. Er veitt í beinu hlutfalli
við vinnutíma starfsfólks í hlutastörfum.
Ef unnið er lengur
en til kl. 22:00 skal veita annan 20 mínútna kaffitíma á tímabilinu kl. 22:00 –
22:20. Á Þorláksmessu er heimilt að veita þann kaffitíma á bilinu kl.
21:40 – 22:20.
Daglegur hvíldartími
Á hverjum
sólarhring á starfsmaður rétt á 11 klst. hvíld. Óheimilt er samkvæmt lögum að
skipuleggja vinnu á þann hátt að vinnudagurinn sé lengri en 13 klst.
Frávik og frítökuréttur: Ef 11 klst. hvíld næst ekki skal veita hana
síðar. Þannig safnast svokallaður frítökuréttur
upp. Fyrir hverja klst. sem 11 tíma hvíldin skerðist um öðlast
starfsmaður 1,5 klst. í dagvinnu í frítökurétt.