Normal
0
21
false
false
false
IS
X-NONE
X-NONE
Aðgerðarhópur SGS fundaði í gær vegna undirbúnings fyrir þær aðgerðir sem aðildarfélög SGS munu þurfa að grípa til svo hægt verði að endurnýja kjarasamningi landverkafólks. En viðræðurnar sigldu í strand fyrir páska eftir að SA lagði fram þá ósanngjörnu kröfu LÍÚ að verkafólki yrði beitt til að ná fram ásættanlegri niðurstöðu í sjávarútvegsmálum. Eftir sáttafund nú strax eftir páska var viðræðum slitið eftir árangurslausann samningafund hjá ríkissáttasemjara. Að loknum fundi aðgerðarhóps SGS í gær var samþykkt að hópurinn sendi frá sér eftirfarandi yfirýsingu vegna stöðu kjaraviðræðna. “Á fundi aðgerðarhóps
SGS sem haldinn var hjá sáttasemjara í dag voru kannaðir möguleikar á samstarfi
við önnur landssambönd ASÍ.
Eftir þá
yfirferð töldu fulltrúar aðgerðarhópsins rétt að kanna hvort grundvöllur væri á
samræmdum aðgerðum landssambanda ASÍ gagnvart Samtökum atvinnulífsins til að
knýja fram endurnýjun kjarasamninga.
Algjör
samstaða ríkir innan Starfsgreinasambands Íslands um að farið verið í aðgerðir
og ljóst er að ef ekki rætist úr þá stefnir í alsherjarverkföll á vinnumarkaði
í lok maí.”Þess má geta að stjórn og trúnaðarráð Verk Vest hefur verið boðað til fundar kl.20.00 í kvöld til að fara yfir mögulegar aðgerðir og næstu skref.