Kjaradeilur í algjörum hnút – ábyrgðin liggur hjá Samtökum atvinnulífsins

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands gagnrýnir harðlega þá afstöðu Samtaka atvinnulífsins að neita að ræða kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar í þeirri erfiðu kjaradeilu sem nú er uppi. Afneitun af þessu tagi ber vott um takmörkuð veruleikatengsl og herðir aðeins hnútinn sem að þarf að leysa. Afstaða atvinnurekenda er ögrandi og skaðar það traust sem þarf að ríkja á milli […]
Verslunar- og skrifstofufólk samþykkir verfallsaðgerðir

Niðurstaða í kosningu um verkfallsboðun hjá verslunar-og skrifstofufólki á félagssvæði Verk Vest liggur fyrir og ljóst að stefnir í hörð verkfallsátök um næstu mánaðarmót verði ekki samið fyrir þann tíma. Alls voru 227 á kjörskrá og þátttaka í kosningunni var um 27% en afstaða þeirra sem tóku afstöðu var mjög skýr en 80% sögðu já […]
Aðalfundur Verk Vest á föstudag

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn föstudaginn 22. maí 2015 kl.17:30 á Hótel Ísafirði. Boðið verður upp á léttan málsverð í lokinni hefðbundinni dagskrá. Dagskrá: Skýrsla stjórnar Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2014 Lýst kjöri stjórnar, varamanna, trúnaðarráðs, sjúkrasjóðs og skoðunarmanna Tillögur um reglugerðabreytingar: a) Sjúkrasjóðs b) Vinnudeilusjóðs Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð Lögð fram tillaga […]