Miklar verðbreytingar á bökunarvörum

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á bökunarvörum 9. nóvember og þegar mælingin er borin saman við sambærilega könnun sem gerð var í fyrra má sjá að miklar verðbreytingar hafa átt sér stað, bæði til hækkunar og lækkunar. Eins og áður hefur komið fram var sykurskattur afnuminn um sl. áramót og má þess vegna sjá töluverða lækkun […]

Viðræðum við sveitafélög slitið

Samn­inga­nefnd Starfsgreinasambands Íslands sleit viðræðum við Sam­band ís­lenskra sveit­ar­fé­laga síðdeg­is í gær og hef­ur deil­unni verið vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Mikill ágreiningur hefur verið um launalið samn­ings­ins og eru samningsaðilar ósammála um hvernig beri að meta og heimfæra launatölur úr þeim kjarasamningum sem voru gerðir fyrir ríkisstarfsmenn inn í kjarasamning starfsmanna sveitafélaga. Ljóst má vera að […]

Bónus Ísafirði var oftast með lægsta verðið

Bónus Ísafirði var oftast með lægsta verðið og Iceland Engihjalla var oftast með hæsta verðið í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum, mánudaginn 9. nóvember. Kannað var verð á 112 algengum vörum til baksturs og konfektgerðar. Iceland var oftast með hæsta verðið eða í 45 tilvikum af 112 og Samkaup-Úrval Miðvangi […]

Eðvarð aðhldsmaður

Hér kemur smásaga sem á sér einhverja stoð í raunveruleikanum en nöfn og stðhættir eru tilbúningur. Því miður er raunveruleiki erlends vinnuafls og ungs fólks á vinnumarkaði alltof oft í líkingu við það sem fram kemur í sögunni. Eðvarð aðhaldsmaður Eðvarð var illa fyrirkallaður þennan morguninn, Morgunblaðið var veðurteppt fyrir sunnan og pokarnir í Senseo […]

Kjarasamningur ríkisstarfsmanna samþykktur með afgerandi meirihluta atkvæða

Ríkisstarfsmenn í 15 aðildarfélögum SGS hafa samþykkt kjarasamninginn sem undirritaður var 7. október síðastliðinn í sameiginlegri rafrænni atkvæðagreiðslu. Niðurstaðan var mjög afgerandi – já sögðu 81,8% en nei sögðu 16,3% (auðir seðlar 1,9%). Alls voru 1.012 félagar á kjörskrá og greiddu 258 þeirra atkvæði (25,5% kjörsókn). Hækkun frá 1. maí er 25.000 krónur. Þann 1. […]

Kosningu um ríkissamning lýkur í dag

Verk Vest hvetur þá félaga sína sem vinna hjá Ríkisstofnunum sem ekki haf kosið um nýgerðan kjarasamning að taka þátt og kjósa. Kosningu lýkur á miðnætti í dag. Eingöngu 22,7% hafa tekið þátt í kosningunni sem er mjög slæmt, sérstaklega í ljósi þess að hér er um mjög góðan kjarasamning að ræða. Ef einhverjir félagsmenn […]

Ályktun formannafundar ASÍ um kjaramál

Ályktun um kjaramál Samþykkt á formannafundi ASÍ 28. október 2015 Formannafundur ASÍ lýsir yfir áhyggjum af stöðu efnahags- og kjaramála. Skortur á samstöðu, órói og átök hafa einkennt íslenskan vinnumarkað, allt frá því að þeirri launastefnu sem samið var um á almennum vinnumarkaði í árslok 2013 var hafnað. Síðan þá hefur hver hópur á vinnumarkaði […]

Betri vinnubrögð – aukinn ávinningur – Samkomulag í höfn!

Heildarsamtök launafólks og atvinnurekenda á almennum og opinberum vinnumarkaði skrifuðu í dag undir samkomulag um breytt vinnubrögð við gerð kjarasamninga. Markmið samkomulagsins er að tryggja varanlega aukningu kaupmáttar á Íslandi á grundvelli lágrar verðbólgu, stöðugs gengis krónunnar og lægri vaxta. Með samkomulaginu er lagður grunnur að sátt á vinnumarkaði, auknu samstarfi og minni átökum. Ennfremur […]

Fræðslumiðstöðin býður upp á fiskvinnslunámskeið

Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur sent fiskvinnslufyrirtækjum á Vestfjörðum kynningu á námi fyrir fiskvinnslufólk. Námið er tvíþætt, grunn- og framhaldsnámskeið sem kennt er sem samfelld heild og viðbótarnámskeið sem hægt er að taka í beinu framhaldi fyrri námskeiða. Ennig er fyrirtækjunum boðið upp á þann möguleika að í fyrirtækjum sem starfsfólk hefur lokið grunn- og framhaldsnámskeiðum verði […]

Formannafundur ASÍ

Miðvikudaginn 28. október verður formannafundur ASÍ haldinn í Reykjavík. Fundurinn verður haldinn í sal Rafiðnaðarskólans að Stórhöfða. Reglulegir formannafundir ASÍ eru haldnir annað hvert ár, þ.e. þau ár sem þing ASÍ eru ekki haldin. Til fundarins koma formenn allra 50 aðildarfélaga Alþýðusambandsins ásamt formönnum deilda í blönduðum félögum. Verk Vest á fjóra fulltrúa á fundinum […]

Trúnaðarmenn Verk Vest á námskeiði í Reykjanesi

Kjarasamningsbundnu trúnaðarmannanámskeiði Verk Vest sem haldið var í samstarfi við Félagsmálaskóla Alþýðu lauk í gær. Námskeiðið er hluti af kjarasamningsbundinni fræðslu trúnaðarmanna og var góð mæting víða af félagssvæðinu. Námskeiðið var haldið á Hótel Reykjanesi og er þetta í fimmta sinn sem trúnaðarmenn mæta á námskeið í Reykjanesi. Öll aðstað er þar til fyrirmyndar og […]

Rafræn kosning um kjarasamninga ríkisstarfsmanna hefst á morgun

Rafræn kosning um kjarasamning félagsmanna í Verk Vest sem starfa hjá ríkisstofnunum hefst kl. 09.00 miðvikudaginn 21. október og henni lýkur á miðnætti fimmtudaginn 29. október. Bæklingar með kynningarefni og lykilorði fyrir kosninguna verða settir í póst í dag. Einnig verður hægt að fá aðstoð við kosningu hjá skrifstofum Verk Vest á Ísafirði og Patreksfirði. […]

Þingi SGS lokið – Björn Snæbjörnsson endurkjörinn formaður

Fimmta þingi Starfsgreinasambands Íslands er nú lokið. Samþykktar voru þrjár ályktanir; um atvinnumál, húsnæðismál og kjaramál. Starfsáætlun SGS til næstu tveggja ára var samþykkt sem og ársreikningar fyrir árin 2013 og 2014. Auk þess samþykkti þingið breytingar á lögum og þingsköpum sambandsins. Þá sá þingið ástæðu til þess að samþykkja tvær yfirlýsingar, annars vegar stuðningsyfirlýsingu […]

Sterkari saman! – fimmta þing Starfsgreinasambands Íslands

Í dag og á morgun, 14. og 15. október, fer fimmta reglulega þing Starfsgreinasambands Íslands fram á Hótel Natura í Reykjavík, en yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Sterkari saman í 15 ár“. Þegar formaður Starfsgreinasambandsins og Einingar-Iðju, Björn Snæbjörnsson, hefur sett þingið munu þau Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, […]

Hækkun á mjólkurvörum í öllum verslunum í nýrri könnun ASÍ

Þegar bornar eru saman verðkannanir sem verðlagseftirlitið framkvæmdi í maí 2015 og nú í september, kemur í ljós að það eru töluverðar hækkanir á næstum öllum vöruflokkum. Af þeim vörum sem bornar eru saman má sjá einstöku lækkanir en það eru aðallega ávextir og grænmeti sem lækka í verði, en vöruflokkurinn sveiflast árstíðabundið í verði. […]

Formannafundur SSÍ krefst ítarlegrar rannsóknar á skipsskaða Jóns Hákons BA 60

Formannafundur aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands ( SSÍ ) var haldinn á Ísafirði dagana 9. – 10. október, en formannafundur er haldin það ár sem ekki er reglulegt þing SSÍ. Umræður um kjara- og öryggismál sjómanna ásamt verðmyndun sjávarafla voru eitt af helstu málefnum fundarins. Á fundinum var farið ýtarlega yfir stöðu kjaraviðræðna við SFS, áður LÍÚ, […]

SGS semur við ríkið

Samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins undirrituðu samning við samninganefnd ríkisins í dag (7. október 2015), vegna starfsfólks aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins hjá ríkisstofnunum. Samningurinn er á svipuðum nótum og samið var um á almennum markaði í vor og gildir hann frá 1. maí síðastliðnum. Hækkun frá 1. maí er 25.000 krónur. Þann 1. júní árið 2016 hækka laun […]

Nýr orlofshúsavefur – Frímann

Verk Vest hefur tekið í notkun nýjan orlofshúsavef sem er aðgengilegur til bókana á netinun. Helstu breytingar felast í því að nú gengur félagsmaðurinn algjörlega frá bókuninni á netinur, greiðir og prentar út samning. Ekki verður hægt að taka frá bústaði eða íbúðir fram í tímann án þess að borga leiguna strax. Einnig verður sú […]

Vörukarfan hefur hækkað í verði í öllum verslunum nema Víði frá því í júní

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í verði hjá 11 verslunarkeðjum af 12 frá því í byrjun júní (vika 24) fram í september (vika 38). Mesta hækkunin á þessu tímabili er hjá Krónunni, Bónus og Kaupfélagi Skagfirðinga, en karfan lækkaði aðeins í verði hjá Víði. Á tímabilinu má sjá hækkanir í öllum vöruflokkum en áberandi eru hækkanir […]

Breyttar forsendur kjarasamninga gagnrýndar

Á formannafundi SGS sem haldinn er á Egilsstöðum var samþykkt að senda ályktun um þá stöðu sem komin er upp á vinnumarkaði vegna niðurstöðu gerðadóms. Ljóst er að ef forsendur almennra kjarasamninga eru brostnar og ef ekkert verður að gert munu samningar losna í febrúar 2016. Ályktun formannafundar Starfsgreinasambands Íslands um kjaramál Formannafundur SGS haldinn […]

Nýr beitningasamningur undirritaður

Starfsgreinasamband Íslands og Landssamband smábátaeigenda hafa undirritað nýjan kjarasamning vegna starfsmanna sem vinna við uppstokkun eða beitningu í landi. Samningurinn gildir jafnframt fyrir starfsmenn sem starfa við netavinnu.Viðræður hafa staðið yfir frá því í sumar og eftir nokkuð strangar viðræður undanfarnar vikur náðu samningsaðilar loks saman í gær. Á fundi framkvæmdastjórnar SGS sem fór fram […]

Óvissuástand hjá starfsfólki Þórsbergs eftir uppsagnir

Fulltrúar Verk Vest ásamt pólskum túlki voru boðuð á starfsmannafund í fiskverkuninni Þórsbergi á Tálknafirði í gær. Tilefni fundarins var hópuppsögn starfsmanna vegna óvissu um áframhald rekstrar. Í tilkynningu sem félaginu barst föstudaginn 28. ágúst kemur fram að 29 manns í fiskvinnslu ásamt 4 sjómönnum verði sagt upp stöfum frá og með 31. ágúst. Áður […]

Nýr kjarasamningur iðnaðarmanna í höfn – verkfalli aflýst

Í dag undirritaði Samiðn f.h. aðildarfélaga nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins sem gildir til loka árs 2018.Almennar launahækkanir eru í takt við gerða samninga Flóans og VR sem undirritaðir voru 29. maí s.l. og voru samþykktir í dag með miklum meirihluta atkvæða. Almennar launahækkanir eru metnar á um 16% en þær eru breytilegar vegna launaþróunartryggingar.Gerðar […]

Kjarasaningur verslunarmanna hjá Verk Vest samþykktir

Þátttaka í kjarasamningingum verslunarmanna hjá Verk Vest var heldur lakari en vegna SGS. Niðurstaðan er engu að síður afgerandi. Á kjörskrá voru 228, atkvæði greiddu 50 eða 21,93%. Já sögðu 46 eða 92% Nei sögðu 4 eða 8% Engir seðlar voru auðir eða ógildir. KJarasamningar verslunarmanna hjá Verk Vest teljast því samþykktir og gilda frá […]

Kjarasamningar SGS samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta

Þrátt fyrir frekar dræma þátttöku í kosningu um kjarasamninga SGS sem Verk Vest er aðili að þá eru niðurstöðurnar afgerandi. Talning atkvæða vegna allsherjar atkvæðagreiðslu um kjarasamninga Verk Vest við Samtök atvinnulífsins sem gilda frá 1. maí 2015 – 31. desember 2018 er nú lokið. Atkvæðagreiðsla var rafræn og stóð frá kl. 08.00 þann 12. […]

Hámarksstyrkur starfsmenntasjóða SGS hækka frá 1. júlí.

Landsmennt: Hámark hækkar úr 60þús. í 70þús. f.o.m. 1. Júlí – hækkunin nær til þess náms sem hefst eftir 1.júlí 2015. Hækkun á geymdum rétti (uppsafnaður réttur) er eftirfarandi: 2015 verður hægt að taka út kr. 190.000.- fyrir eitt samfellt nám/námskeið. Ferðakostnaður vegna náms getur að hámarki orðið kr. 70.000.- (nær til náms sem hefst […]

Skrifstofur Verk Vest lokaðar frá kl.13.00 í dag – Konur til hamingju með daginn

Eins og kom fram hér á vefnum í gær þá er 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna fagnað um allt land í dag. Af því tilefni verður skrifstofum félagsins á Ísafirði og Patreksfirði lokað frá kl.13:00 í dag. Rétt er að minna á að verkamenn og „vinnuhjú“ fengu líka kosningarétt þennan dag fyrir 100 árum. En […]

Verk Vest minnir á 19. júní

Jafn réttur og jöfn tækifæri kvenna og karla til launa og starfa eru grundvallar­mannréttindi. Enn er nokkuð í land með að jafnrétti og jafnir möguleikar kynjanna verði að veruleika og því er mikilvægt að minnast sigurs eins og kosningaréttar kvenna 1915 til að brýna okkur áfram í jafnréttisbaráttu dagsins í dag. Til að bæta stöðu […]

Samiðn frestar verkföllum til 22. júní.

Síðustu daga hafa staðið yfir viðræður milli Samiðnar, MATVÍS, RSÍ, VM, Grafíu /FBM og Félags hársnyrtisveina við SA um endurnýjun kjarasamninga.Samiðn, Grafía /FBM, Félag hársnyrtisveina og SA hafa orðið sammála um að stefna að því að ljúka samningum fyrir 12. júní n.k. náist samkomulag um sérkröfur fyrir þann tíma. Samninganefndir þessara félaga og sambanda og […]