Rafræn kosning um kjarasamninga Verk Vest

Undirbúningur fyrir atkvæðagreiðslu vegna nýgerðra kjarasamninga er nú í fullum gangi. Ákveðið hefur verið að viðhafa rafræna atkvæðagreiðslu vegna kjarasamninga Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Landssambands verslunarmanna (LÍV). Kynningnabæklingur vegna kjarasamninga SGS á íslensku, pólsku og ensku hefur verið útbúinn og fer í póst 11. júní. Fyrstu bæklingar ættu að bærast í hendur félagsmanna þann 12. […]

Trúnaðarráð Verk Vest samþykkir nýja kjarasamninga

Á fundi Trúnaðarráðs Verk Vest var farið yfir nýgerða kjarasamninga Starfsgreinasambandssins og Landssambands verslunarmanna sem voru undirritaðir þann 29. maí síðast liðinn. Að mati trúnaðarráðs félagsins er um mjög hagstæða kjaramninga að ræða fyrir félagsmenn. Samningarnir sem gilda frá 1. maí 2015 til 31. desember 2018 munu skila umtalsverðum launaleiðréttingum til allra hópa. Lagt var […]

Iðnaðarmenn samþykkja heimild verkfallsboðunar

Félög iðnaðarmanna sem eru með samstarf við endurnýjun á almenna kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins, MATVÍS, Grafía/FBM, VM, aðildarfélög Samiðnar , Félag hársnyrtisveina og aðildarfélög RSÍ viðhöfðu allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um heimild til verkfallsboðunar. Atkvæðagreiðslunni lauk í dag kl. 10:00. Kosningarnar náðu til 10.499 félagsmanna í 25 stéttarfélögum og var kosningaþátttakan 44.6% Samþykkt var að […]

Helstu atriði úr nýjum kjarasamningi verslunar- og skrifstofufólks

Skrifað hefur verið undir nýjan kjarasamning LÍV og Samtaka atvinnulífsins sem gildir til loka árs 2018. Lægstu launataxtar hækka um 31,1% eða kr. 64.208 á samningstímanum. Lágmarkstekjur verða 300 þúsund krónur á mánuði frá maí árið 2018. Forsendur fyrir samningnum eru m.a. að hann verði stefnumarkandi fyrir aðra kjarasamningagerð á vinnumarkaði og að kaupmáttur aukist. […]

Skrifað undir nýja kjarasamninga – aðgerðum frestað

Meginkröfur í höfn Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur undirritað nýjan kjarasamning vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði. Í upphafi viðræðna fór Starfsgreinasambandið fram með þá skýru kröfu að lágmarkslaun yrðu 300 þúsund krónur innan þriggja ára. Auk þess var lögð áhersla á sérstakar hækkanir hjá starfsfólki í útflutningsgreinum. Órofa samstaða og kraftur félagsmanna í aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins […]

Viðræður hafnar og aðgerðum frestað!

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur gengið frá samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að fresta fyrirhuguðum verkföllum um sex daga. Ljóst er að viðræður eru hafnar af fullum þunga og það er mat samninganefndarinnar að gefinn skuli tími til að reyna til þrautar um að samningar náist. Kröfugerð Starfsgreinasambandsins er sem fyrr grundvöllur áframhaldandi viðræðna. Frestun verkfalla […]

Fréttatilkynning til verslunar- og skrfstofufólks í Verk Vest vegna fresturnar aðgerða

Hækkun lægri launa og millitekna Fundað hefur verið stíft síðustu daga og liggja nú fyrir meginlínur draga að nýjum kjarasamningi sem VR, LÍV, Flóafélögin og StéttVest hafa unnið að með SA síðustu daga. Samningsdrögin gera ráð fyrir að gildistíminn verði til loka árs 2018 og er aðaláhersla á hækkun lægri launa og að verja millitekjur. […]

Verkföllum ekki frestað hjá SGS félögum

Af gefnu tilefni skal það tekið fram að Starfsgreinasamband Íslands hefur ekki átt í viðræðum við Samtök atvinnulífsins síðustu daga og er ekki hluti af því ferli sem verður til þess að Flóabandalagið, VR, LÍF og StéttVest ákveða að fresta verkfalli. Starfsgreinasambandið hefur því ekki tekið neina ákvörðun um að fresta verkfalli sem fyrirhugað er […]

ORLOFSUPPBÓT !

Minnum félagsmenn á rétt þeirra á að fá greidda orlofsuppbót. Orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2015 kemur til greiðslu þann 1. júní nk. hjá þeim sem starfa á almennum vinnumarkaði eða hjá ríkinu. Athugið að vegna stöðu kjaramála hefur ekki verið samið um fjárhæð uppbótarinnar en ef ósamið verður þann 1. júní þá […]

Kjaradeilur í algjörum hnút – ábyrgðin liggur hjá Samtökum atvinnulífsins

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands gagnrýnir harðlega þá afstöðu Samtaka atvinnulífsins að neita að ræða kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar í þeirri erfiðu kjaradeilu sem nú er uppi. Afneitun af þessu tagi ber vott um takmörkuð veruleikatengsl og herðir aðeins hnútinn sem að þarf að leysa. Afstaða atvinnurekenda er ögrandi og skaðar það traust sem þarf að ríkja á milli […]

Verslunar- og skrifstofufólk samþykkir verfallsaðgerðir

Niðurstaða í kosningu um verkfallsboðun hjá verslunar-og skrifstofufólki á félagssvæði Verk Vest liggur fyrir og ljóst að stefnir í hörð verkfallsátök um næstu mánaðarmót verði ekki samið fyrir þann tíma. Alls voru 227 á kjörskrá og þátttaka í kosningunni var um 27% en afstaða þeirra sem tóku afstöðu var mjög skýr en 80% sögðu já […]

Aðalfundur Verk Vest á föstudag

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn föstudaginn 22. maí 2015 kl.17:30 á Hótel Ísafirði. Boðið verður upp á léttan málsverð í lokinni hefðbundinni dagskrá. Dagskrá: Skýrsla stjórnar Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2014 Lýst kjöri stjórnar, varamanna, trúnaðarráðs, sjúkrasjóðs og skoðunarmanna Tillögur um reglugerðabreytingar: a) Sjúkrasjóðs b) Vinnudeilusjóðs Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð Lögð fram tillaga […]

Samtök atvinnulífsins komi nú þegar að samningaborðinu með raunhæft samningstilboð til lausnar deilunni !

„Stjórn og trúnaðarráð Verk Vest krefst þess að Samtök atvinnulífsins komi nú þegar að samningaborðinu með raunhæft samningstilboð til lausnar deilunni. Verkafólk í fullu starfi gerir þá kröfu að laun dugi til framfærslu. Ýmis öfl í þjóðfélaginu, þar á meðal seðlabankastjóri á margföldum verkamannalaunum, er ekki viðsemjandi í þessari deilu. Það getur ekki verið hans […]

Verðhækkanir flestum vöruflokkum – Matvara hefur almennt hækkað í verði !

Mestu verðbreytingarnar eru í vöruflokknum ávextir og grænmeti en þar má sjá allt að 152% hækkun á kílóverði á vatnsmelónu, 142% hækkun á Iceberg og 124% hækkun á gulum melónum. Flestar vörur sem bornar eru saman hafa hækkað í verði. Sem dæmi má nefna að mjólkurvörur hafa hækkað í öllum verslunum þrátt fyrir einstöku lækkanir. […]

Starfsgreinasambandið frestar verkföllum og gefur SA tækifæri til lausna

Zrzeszenie Zwiazkow Zawodowych SGS zawiesilo wykonanie strajku dajac mozliwosc Federacji Pracodawcow SA dojscia do porozumienie. SGS decides to postpone planned strikes. Ákveðið hefur verið að fresta fyrirhuguðu verkfalli 10.000 félagsmanna aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands dagana 19. og 20. maí. Að auki hefur ótímabundnu verkfalli sem átti að hefjast 26. maí verið frestað. Það er mat samninganefndar […]

Hvers vegna er verð á bílavarahlutum er ekki að lækka meira en raun ber vitni?

Verð á bílavarahlutum lækkar ekki í samræmi við væntingar Verðlagseftirlit ASÍ áætlar að varahlutir s.s. bremsuklossar, stuðarar og stýrisendar sem áður báru 15% vörugjöld ættu að lækka um 15,2% þegar horft er til afnáms vörugjalda og lækkunar vsk. úr 25,5% í 24%. Í ljós kemur að í 14% tilfella hækkar verð eða er óbreytt, í […]

Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun verslunar- og skrifstofufólks

Kosið um verkfall Kjarasamningur Landssambands ísl. verzlunarmanna og atvinnurekenda rann út þann 28. febrúar 2015 og er nýr kjarasamningur ekki í sjónmáli. Atvinnurekendur voru ekki reiðubúnir til viðræðna um framlagðar kröfur og var deilunni vísað til ríkissáttasemjara í síðasta mánuði. Þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara voru viðræður þar árangurslausar. Ákveðið hefur verið að efna til leynilegrar […]

Afnám vörugjalda og lækkun á VSK – lítil merki um lækkanir á byggingavörum

Frá því í október 2014 hefur verðlagseftirlitið skoðað verðbreytingar á byggingavörum vegna afnáms vörugjalda um áramótin og lækkunar á virðisaukaskatti. Verðlagseftirlitið áætlar að verð byggingaörur sem áður báru 15% vörugjöld ættu að lækka um 14% við afnám vörugjaldanna og þegar lækkun á virðisaukaskattinum úr 25,5% í 24% er tekin með í reikninginn ætti lækkunin að […]

Köllum eftir raunhæfum lausnum: Fólk í fullri vinnu þarf að geta séð fyrir sér

Fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hefur verið tíðrætt um tilboð sem þau gerðu verkalýðshreyfingunni og er mikilvægt að halda ákveðnum atriðum til haga í því sambandi: SA lýsti því yfir við fyrirtæki innan samtakanna að verkalýðshreyfingin hafi hafnað tilboðinu áður en Starfsgreinasambandið fékk að sjá nokkurt tilboð. Áður höfðu önnur landssambönd og félög innan verkalýðshreyfingarinnar greinilega fengið […]

Iðnaðarmenn innan ASÍ slita viðræðum við SA

Fulltrúar stéttarfélaga og sambanda sem aðild eiga að samstarfssamningi iðnaðarmanna, hafa á undanförnum vikum átt í viðræðum við SA um endurnýjun kjarasamninga. Á fundi viðræðunefndar með fulltrúum SA í dag var niðurstaðan að það hefði ekki tilgang að halda viðræðum áfram þar sem þær hafi engu skilað. Stéttarfélög iðnaðarmanna hefja nú þegar undirbúning að atkvæðagreiðslu […]

Aðilar ná ekki saman – næsta verkfallslota hefst eftir miðnætti í kvöld.

Ekki náðist sá árangur af fundi SGS og SA í dag að tilefni væri til að fresta boðuðum aðgerðum sem áætlað er að hefjist eftir miðnætti í kvöld. Tilboð SA jafngildir 30 þúsund króna launahækkun á lægstu taxta á næstu þremur árum sem er algjörlega óásættanlegt. Næsti fundur verður hjá sáttasemjara föstudaginn 8. maí. Á […]

Mjög góð þátttaka og vel heppnuð 1. maí hátíðarhöld

Fjölmenni mætti í kröfugöngu stéttarfélaganna á 1. maí sem hófust á Ísafirði kl.11.00 í morgun. Blíðvirði er á Vestfjörðum og skörtuðu byggðirnar sínu fegursta í morgunsárið. Fyrsta maí nenfdin á Ísafirði hafði 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna að leiðarljósi og báru konur uppi hátíðardagskrána. Fremst í flokki að öðrum ólöstuðum fór Ólafía B. Rafnsdóttir formaður […]

Verkfallsmiðstöðvar og verkfallsvarsla

Verk Vest hvetur félagsmenn á almenna vinnumarkaðnum til samstöðu með baráttunni fyrir bættum kjörum. Verk Vest hvetur þá sem verða í verkfalli til að mæta á skrifstofur félagsins og einnig að taka þátt í verkfallsvörslu. Á meðan verkfall stendur yfir verða opnar verkfallsmiðstöðvar á skrifstofum félagsins á Ísafirði og Patreksfirði

Tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna á 1. maí

Union members! Show solidarity and take part in the parade. Wszyscy bierzemy udział w pochodzie zwiazków zawodowych. Lagt verður af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu 2 kl. 11:00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi. Dagskráin í Edinborg: Ræðumaður dagsins: Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR Lúðrasveit tónlistarskólans: Stjórnandi Madis Maekalle. […]

Verslunar- og skrifstofufólk slítur viðræðum og hefur undirbúning aðgerða

Samningafundur fulltrúa VR og Landssambands ísl. verzlunarmanna annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar hjá ríkissáttasemjara í gær, mánudaginn 27. apríl, var árangurslaus. Farið var yfir stöðuna á fundi stjórnar og trúnaðarráðs VR í gærkvöldi og næstu skref rædd. Undirbúningur verkfallsaðgerða er hafinn. Deilu VR / LÍV og SA var vísað til ríkissáttasemjara þann 17. […]

Verkfall félagsmanna Verk Vest hefst fimmtudaginn 30. apríl

Verkfall félagsmanna Verk Vest hefst fimmtudaginn 30. apríl og stendur fyrst um sinn yfir í hálfan sólarhring, frá hádegi til miðnættis. Eftir það taka við regluleg sólarhringsverkföll þar til ótímabundið verkfall hefst 26. maí. Ljóst er að verkföllin munu hafa mikil áhrif á fjölda vinnustaða á öllu félagssvæðinu. Tímasetningar verkfallsaðgerðanna: 30. apríl 2015 Allsherjar vinnustöðvun […]

Formannafundur LÍV ósáttur við seinagang í kjaraviðræðum

Formannafundur LÍV, Landssambands ísl. verzlunarmanna, var haldinn í húsakynnum VR þann 22. apríl. Tilefni fundarins var staðan í kjaraviðræðum. Landssambandið lagði fram kröfugerð þann 13. febrúar sl. og hefur verið fundað með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins nokkrum sinnum síðan. Ljóst er að þeir fundir sem haldnir hafa verið hafa ekki skilað þeim árangri sem vænst var […]

Verkföll rúmlega 10 þúsund félagsmanna SGS hefjast í lok næstu viku

Verkfallsaðgerðir rúmlega 10 þúsund félagsmanna Starfsgreinasambands Íslands (SGS) hefjast í næstu viku. Félagsmenn SGS samþykktu aðgerðirnar með yfirgnæfandi meirihluta, eða 94,6%, í atkvæðagreiðslu sem staðið hafði í eina viku og lauk á miðnætti í gær. Kjörsókn var 50,4% en þátttaka í kosningunni jókst eftir því sem leið á vikuna samfara mikilli umfjöllun og umræðu sem […]

Félagar í Verk Vest samþykkja heimild til verkfallsboðunar

Rafrænni atkvæðagreiðslu hjá Verk Vest um heimild til verkfallsboðunar lauk á miðnætti 20. apríl og lá niðurstaða kosninganna fyrir um klukkan eitt í nótt. Mjög góð þátttaka var í rafrænni kosningu og skilaboð félagsmanna afdráttarlaus. Á kjörskrá í almenna samningnum voru 608 félagsmenn og kusu 318 eða 52,3%. JÁ sögðu 300 eða 94,34% NEI sögðu […]

Stuttur sáttafundur – viðræður árangurslausar

Samningafundi Starfsgreinasambandsins (SGS) með Samtökum atvinnulífsins (SA) lauk í dag í húsnæði sáttasemjara án árangurs. Fundurinn hófst 10 í morgun en stóð í skamman tíma og samninganefnd SGS yfirgaf húsið án þess að vera með nýtt tilboð frá atvinnurekendum í farteskinu. Atkvæðagreiðslu um verkfall lýkur á mánudag en náist ekki að semja hefst verkfall hjá […]