Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Samiðnar er hafin

Rafræn atkvæðagreiðslaAðgengi að atkvæðagreiðslunni er gegnum heimasíðu félagsins. Til þess að kjósa þarftu að hafa rafræn skilríki eða Íslykil. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér innihald samningsins sem er aðgegnilegt á heimasíðu félagsins sem og taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Fyrirtækið APmedia ehf. sér um rafræna kosningu um samninginn. Öll svör vistast í tölvukerfi fyrirtækisins, […]
Stöðugleika- og velferðarsamningur í höfn

Verkalýðsfélag Vestfirðinga sem er aðili að Starfsgreinasambandi Íslands (SGS) og Sambandi iðnfélaga (Samiðn) hefur undirritað nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði. Samningurinn var undirritaður í húsakynnum ríkissáttasemjara á sjötta tímanum í dag. Um er að ræða langtímasamning en gildistími samningsins er frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028. Kjarasamningur – […]
Fagnámskeið í starfi með fötluðu fólki

Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra en í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum fyrir fatlaða. Það getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þá sem vinna með börnum og unglingum í vanda. Markmið námsins er að auka […]
Kjarasamningur sjómanna undirritaður

Nýr kjarasamningur á milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) var undirritaður í dag í húsnæði Ríkissáttasemjara. Samningar á milli aðila hafa verið lausir frá árinu 2019. Árið 2023 var nýr kjarasamningur felldur í atkvæðagreiðslu sjómanna. Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að nýja samningnum. Samningaviðræður um nýjan samning hafa staðið yfir síðustu mánuði. Í […]
Greitt út úr félagsmannasjóði starfsfólks hjá sveitarfélögum

Í dag greiddi Verkalýðsfélag Vestfirðinga kr. 22.489.662 til 477 félagsmanna sem starfa eða hafa starfað hjá sveitarfélögum á félagssvæðinu frá 1. janúar – 31. desember 2023. Félagið minnir á að greiðslurnar eru framtalsskyldar og því þarf að greiða skatt af þeim. Þeir félagsmenn sem telja sig eiga rétt á greiðslum úr sjóðnum en hafa ekki fengið […]
FÉLAGSMANNASJÓÐUR – ERU ÞÍNAR UPPLÝSINGAR RÉTTAR?

Ertu félagsmaður í Verk Vest? Starfaðir þú hjá sveitarfélagi á síðasta ári? Eða hættir þú vinnu hjá sveitarfélag á síðasta ári? Í kjarasamningi Verk Vest við sveitafélög var stofnaður sérstakur félagsmannasjóður. Atvinnurekandi greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanns og er greitt úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert. Allt félagsfólk í […]
Atvinna! – Staða umsjónarmanns fyrir Orlofsbyggðina í Flókalundi

Stjórn Orlofsbyggðarinnar í Flókalundi óskar eftir að ráða umsjónarmann byggðarinnar í fullt starf frá og með 1. maí 2024. Árlegur starfstími umsjónarmanns er á tímabilinu 1. maí til 30. september. Leitað er eftir handlögnum einstaklingi eða tveimur samhentum einstaklingum til að hafa umsjón með umhverfi, orlofshúsum og sundlaug byggðarinnar. Umsækjandi þarf einnig að geta sinnt […]
Staða launafólks í upphafi árs – Ný könnun Vörðu

Kæri félagsmaður. Nú þurfum við hjá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga á ykkar hjálp að halda. Við viljum biðja ykkur að taka þátt í könnun um stöðu ykkar. Það tekur stuttan tíma og öll sem taka þátt komast í pott og geta unnið 40.000 króna gjafakort. Nánari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi skjali. Dear member. We at […]
Breytingar á reglum Sveitamenntar og Ríkismenntar. Teknir upp 100% styrkir og einnig tveggja ára geymdur réttur.

Á fundum stjórna Sveitamenntar og Ríkismenntar í desember 2023 var samþykkt að einstaklingur geti átt uppsafnaðan rétt til tveggja ára eins og til þriggja ára. Tekur sú breyting á reglum gildi þann 1. janúar 2024. Ný regla er eftirfarandi; Félagsmenn sem hafa ekki nýtt rétt sinn í sjóðunum síðustu tvö ár eiga rétt á allt að kr. […]
Staða fatlaðs fóks afleit – Ný könnun Vörðu

Þrátt fyrir að Ísland standi vel á öllum alþjóðlegum mælikvörðum um efnahag og jöfnuður mælist hér mikill ríkir hér kerfisbundinn vandi þegar kemur að stöðu og lífsskilyrðum fatlaðs fólks á Íslandi. Stór hluti fatlaðs fólks á Íslandi býr við sárafátækt og lífsskilyrði lífeyristaka eru töluvert verri en launafólks. Tæplega sjö af hverjum tíu geta ekki […]
Desemberuppbót 2023 – kannaðu þín réttindi

Kjarasamningum samkvæmt fær launafólk greidda desemberuppbót, en skilyrði uppbótar má finna í viðeigandi kjarasamningi sem finna má á kjaravef Verk Vest. Hér eru upplýsingar um upphæðir og síðasta greiðsludag miðað við 100% starf: Almennur vinnumarkaður: Kr. 103.000 sem greiðist í síðasta lagi 15. desember (flestir atvinnurekendur greiða þetta út með launum 30.nóv.) Ríkisstarfsmenn: Kr. 103.000 sem greiðist 1. […]
Skrifstofur Verk Vest lokaðar á kvennafrídegi

Þann 24. október 2023 munu konur og kvár leggja niður störf í heilan dag til að mótmæla vanmati á vinnuframlagi kvenna og kynbundnu ofbeldi. Á Ísafirði kl. 14:00 er ráðgert að hittast á Silfurtorgi og sameinast þar. Konur eru hvattar til að koma með skilti en það verða einhver skilti á staðnum. Farið verður fylktu […]
Kjarakönnun í aðdraganda kjarasamninga

Kæri félagi í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga Kjarasamningar eru lausir snemma á næsta ári. Mikilvægur liður í undirbúningi kjaraviðræðna er að Verkalýðsfélag Vestfirðinga fái upplýsingar um áherslur félagsfólks. Í könnuninni spyrjum við um hvaða atriði það eru sem skipta þig mestu máli í næstu kjarasamningum. Góð þátttaka í könnuninni er lykilforsenda þess að félagið geti byggt kröfur […]
Kjarasamningur SGS og sveitarfélagasamþykkur

Atkvæðagreiðslu um framlengdan kjarasamning SGS við Samband Sveitarfélaga er nú lokið og liggja niðurstöður fyrir. Á kjörskrá voru 5.950 manns og var kjörsókn 14,62%. Já sögðu 684 eða 78,62%. Nei sögðu 144 eða 16,55%. 4,83% tóku ekki afstöðu. Samningurinn var samþykktur með rúmlega 78% þeirra sem greiddu atkvæði. Nýjar launatöflur hjá starfsfólki sveitarfélaga taka því […]
Nýr kjarasamningur við Samband sveitarfélaga

Fyrr í dag var undiritaður nýr kjarasamningur milli Sarfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samningurinn er framlenging á launatöflusamningi sem gildir til 30. september og gildir nýr samningur til 31. mars 2024. Helstu atriði samningsins varða kjarabætur fyrir einstök starfsheiti á leikskólum og í heimaþjónustu ásamt því að ný launatafla með starfaröðun upp í launaflokk […]
Framhaldsaðalfundur Verk Vest mánudaginn 4. september

Samkvæmt ákvörðun aðalfundar félagsins þann 8. maí 2023, boðar stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga til framhalds aðalfundar mánudaginn 4. september kl.18.00 í fundarsal félagsins í Alþýðuhúsinu á Ísafirði. Einnig er hægt að taka þátt gegnum fjarfund og er félagsfólk hvatt til að nýta sér þann möguleika. Dagskrá: 1. Afgreiðsla ársreiknings 2022 2. Önnur mál Stjórn hvetur félagsfólk […]
Breytingar á úthlurnarreglum orlofshúsa og íbúða um Jól og Páska

Ákveðið hefur verið að breyta úthlutunar reglum fyrir orlofshús og íbúðir félagsins kringum jól og páska. Með breytingunum þarf félagsfólk ekki að sækja sérstaklega um þessi tímabil. Með breytingunum verður punktafrádráttur um jól og páska felldur niður. Breyttar reglur taka gildi frá og með 1. júlí 2023 og verður þá hægt að bóka sumarhús og íbúðir […]
Skrifað undir nýjan kjarasamning við ríkið – atkvæðagreiðsla hefst í dag

Samninganefnd SGS skrifaði undir nýjan kjarasamning við ríkið eftir hádegi í gær. Mjög góður árangur náðist við samningagerðina og það án verkfallsátaka. Samið var um krónutöluhækkanir á taxta og er meðal launahækkun á virka taxta um kr. 43.000 allt eftir innröðun í launatöflu á viðkomandi stofnun. Laun verða leiðrétt afturvirkt frá 1. apríl 2023. Ekki […]
Réttlæti – jöfnuður – velferð !

Til hamingju með baráttudag launafólks! Árið 1923 var fyrst gengin kröfuganga á 1. maí á Íslandi. Dagurinn varð loks lögskipaður frídagur á Íslandi árið 1972 en til samanburðar má geta þess að ríkisstjórn jafnaðarmanna í Svíþjóð gerði daginn að frídegi árið 1938. Á baráttudegi launafólks er nauðsynlegt að minna okkur á hvernig samfélag viljum við […]
Aðalfundur Verk Vest haldinn 8. maí

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn mánudaginn 8. maí 2023 kl.18.00 í Bryggjusal Endiborgarhússins á Ísafirði. Félagsfólk er beðið að tilkynna þátttöku á postur@verkvest.is eða í síma 4565190. Einnig verður hægt að taka þátt gegnum fjarfund. Boðið verður upp á kvöldverð í upphafi fundar. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt 24.gr laga félagsins Önnur mál Þrír heppnir þátttakendur verða dregnir út […]
Labour.is

ASÍ kynnir nýja nýja vefsíðu labour.is sem nú er komin í loftið. labour.is er upplýsingasíða fyrir launafólk sem er nýtt á íslenskum vinnumarkaði. Þá vonast ASÍ einnig til að síðan nái til þeirra sem eru í hvað verstu aðstæðunum, þolendum mansals á vinnumarkaði. Síðan er á 11 tungumálum: ensku, pólsku, litháísku, lettnesku, spænsku, rúmensku, arabísku, úkraínsku, rússnesku, […]
Trúnaðarmannanámskeið Samiðnar

Námskeiðsdagar eru 30. og 31. mars. Trúnaðarmannanámskeiðið telst til 2. hluta. Hvetjum félagsmenn á vinnustöðum að kjósa sér trúnaðarmann. Allar upplýsingar um vinnustaði sem hafa engan trúnaðarmann eru vel þegnar. Ef einhverjar spurningar vakna vinsamlegast hafið samband við ykkar aðildarfélag innan Samiðnar. Nemendur þurfa að skrá sig inn á innri vef Félagsmálaskólans. Stofna þarf aðgang með íslykli, rafrænum […]
Opnað fyrir umsóknir í orlofshús Verk Vest fyrir sumarið 2023

Þann 8. mars verður opnað fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir sumarið 2023. Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins http://orlof.is/verkvest/ og sótt um með því að velja: Sumar. Félagið býður upp á orlofshús fyrir félagsmenn í öllum landshlutum sumarið 2023 og ættu því flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Einarsstaðir á héraði Flókalundur í Vatnsfirði […]
Verk Vest auglýsir eftir kjaramála- og þjónustufulltrúa

Verkalýðsfélag Vestfirðinga auglýsir eftir kjaramála- og þjónustufulltrúa með áherslu á vinnustaðaeftirlit hjá starfstöð félagsins á Ísafirði. Um 100% starf er að ræða en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Ábyrgðasvið: Aðstoð í vinnuréttindamálum Almenn þjónusta við félagsmenn Umsjón með vinnustaaðaeftirliti Umsjón netmiðlum félagsins Skýrslugerð tengt kjaramálum Aðstoð við innheimtu og rafrænum skráningum […]
Búið að opna fyrir bókanir í hús félagsins á Spáni

Sumarhús Verk Vest á Spáni er laust til bókana fyrir árið 2023. Leigutímabil að sumri eru tvær vikur og vilji fólk vera lengur er mögulegt að leigja tvö tímabil. Skiptidagar sumar 2023 eru þriðjudagar og hefst leigutímabilið þriðjudaginn 23. maí. Verð fyrir tvær vikur er kr. 111.000 en kr. 207.000.kr. fyrir fjórar vikur. Hús félagsins er […]
Könnun á stöðu launafólks á Íslandi

Nú er opin könnun um stöðu launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Er þetta í þriðja sinn sem könnunin er framkvæmd af Vörðu rannsóknarsetri sem er í eigu ASÍ og BSRB. Í ár er lögð sérstök áhersla á að afla upplýsinga um fjárhagsstöðu félaga, andlega og líkamlega líðan, kulnun og brot á vinnumarkaði. Nú sem endranær er rík áhersla lögð […]
Miðstjórn ályktar um ofstækiskennda orðræðu

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands harmar neikvæða og ofstækiskennda orðræðu í tengslum við kjaraviðræður, nú síðast í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins og miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Mikilvægt er að álitamál fái viðhlítandi meðferð og ótækt er að ágreiningur sé nýttur til að hafa í frammi haturskennd og viðurstyggileg ummæli í garð tiltekinna einstaklinga, hópa og samtaka. Eðlilegt er […]
Sjómenn skrifa undir tímamóta kjarasamning við útgerðarmenn

Samtök sjómanna skrifuðu undir tímamóta kjarasamning við útgerðarmenn undir miðnætti í gær. Samningurinn er til 10 ára með uppsagnarákvæði sem hægt er að virkja eftir 4 ár. Stóra samningsatriðið var að ná 3,5% viðbótargreiðslum í lífeyrissjóð ásamt því að tryggja að kauptrygging og aðrar greiðslur til skipverjar tækju sömum hækkunum og á almennum vinnumarkaði. Viðmiðið […]
Stýrivaxtahækkun í boði ríkisstjórnarinnar

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands gagnrýnir harðlega stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var í morgun. Meginvextir bankans eru nú 6,5% og hafa ekki verið hærri í þrettán ár. Hækkunin kemur í kjölfar vaxandi verðbólgu en hækkun vísitölunnar í janúar mátti fyrst og fremst rekja til ákvarðana ríkisstjórnarinnar. Miðstjórn ASÍ mun boða til formannafundar til að ræða viðbrögð og […]
Miðstjórn ASÍ lýsir furðu á skýringum stjónvalda um hækkun verðbólgu

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun verðbólgunnar. Miðstjórn telur gagnrýnivert að stjórnvöld hafi kosið að leiða hjá sér ábendingar og varnaðarorð um að hækkun ýmissa skatta og gjalda um áramót myndu koma af fullum þunga niður á almenningi í formi minni kaupmáttar, verðbólgu og vaxtahækkana. Sú spurning gerist sífellt áleitnari hvort […]