Þing LÍV kýs nýjan formann og ályktar um kjara- og starfsmenntamál

Íslenskt launafók verður ekki eitt gert ábyrgt fyrir því að koma á stöðugleika, segir í kjaramálaályktun 28. Þings Landssambands ísl. verzlunarmanna sem haldið var á Akureyri dagana 8. og 9. nóvember. Kjaramálin og starfsmenntamálin voru helstu mál þingsins. Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja, var kosinn nýr formaður sambandsins. Staða kjarasamninga setti svip sinn umræðurnar á […]
Flestar verslanir hækka vöruverð umfram verðbólgu !

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í flestum verslunarkeðjum frá því í janúar 2013 (viku 5) þar til nú í byrjun nóvember (viku 44), nema hjá Hagkaupum og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga þar sem hún lækkar í verði á milli mælinga. Mesta hækkunin var hins vegar 6,4% hjá Iceland. Verðbólgan á sama tíma var 3,8%. Á tímabilinu má sjá […]
Desemberuppbót 2013

Upplýsingar um desemberuppbót félagsmanna í Verk Vest eru einnig aðgengilegar undir flipanum Tilkynningar hér á síðunni. Desemberuppbót 2013 Almenni samningur milli SGS og SA 52.100 kr. Starfsfólk á hótel og veitingastöðum ( bensínstöðvar ) 52.100 kr. Samningur f.h. Ríkissjóðs og SGS 52.100 kr. Samingur SGS og Launanefndar sveitarf. 80.700 kr. Starfsfólk Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum 86.855 […]
Hlutastörf karla og kvenna

Færri konur vinna hlutastörf á Íslandi en í flestum öðrum Norðurlöndunum (að Finnlandi undanskildu) en enginn þó eins lítið og íslenskir karlar, þeir eru langflestir í fullum störfum. Það er ljóst að hlutastörf eru töluvert algengari á hinum Norðurlöndunum og miklu algengari alls staðar meðal kvenna en karla. Flestar konur segja ástæðu þess að þær […]
Skattalækkunarhugmyndir ASÍ bæti kaupmátt ráðstöfunatekna

ASÍ telur að í stað þess að tryggja einungis þeim tekjuhæstu fullan ábata af skattalækkun sé að eðlilegra nýta þá fjármuni sem verja á til lækkunarinnar til þess að koma betur til móts við fólk með millitekjur og þá sem eru með lægri tekjur. Skilvirkasta leiðin til þess er að hækka mörkin þar sem miðþrep […]
Launakröfur SGS lagðar fyrir Samtök atvinnulífsins

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) lagði fyrr í dag fram launakröfur fyrir komandi kjarasamninga til Samtaka atvinnulífsins. SGS hefur umboð 16 aðildarfélaga sinna til að ganga til samninga fyrir þeirra hönd og hefur þar með umboð til kjarasamningsgerðar fyrir almennt og sérhæft verkafólk á öllu landinu að undanskildum þeim félögum sem eru innan vébanda Flóabandalagsins. Í kröfugerð […]
Kjara- og velferðarmál í brennidepli á formannafundi ASÍ

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ var harðorður í garð ríkisstjórnarinnar í setningarræðu sinni á formannafundi ASÍ. Hann gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að gefa ekki kost á samtali við verkalýðshreyfinguna þrátt fyrir fögur fyrirheit á vormánuðum. Gylfi sagði ríkisstjórnina fara fram með rangar áherslur og forgangsröðun. Mikilvægir tekjustofnar hafi verið rýrðir og horfið hafi verið af braut enduruppbyggingar […]
Allt að 81% verðmunur á umfelgun

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 29 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið sl. miðvikudag. Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa (t.d. Mitshubishi) með 18´´ álfelgum (265/60R18) sem var ódýrust á 7.157 kr. hjá Bifreiðaverkstæði S.B á Ísafirði en dýrust á 12.980 kr. hjá N1, verðmunurinn var 5.823 […]
Kennitöluflakk kostar okkur tugi miljarða á hverju ári

Alþýðusamband Íslands gaf nýlega út skýrslu um kennutöluflakk og það tjón sem íslenskt samfélag verður fyrir vegna þess. Í sinni einföldustu mynd má lýsa kennitöluflakki sem skipulagðri aðgerð einstaklinga þar sem verðmæti eru tekin út úr einu félagi (hf./ehf.) og sett í annað félag en skuldir og aðrar skuldbindingar skildar eftir og félagið síðan sett […]
Þing SGS ályktar um ríkisfjármál

Ályktun um ríkisfjármál 4. þing Starfsgreinasambands Íslands haldið í Hofi á Akureyri 16. – 18. október 2013 krefst þess að skattkerfið verði nýtt til tekjujöfnunar og hagsbóta fyrir þá lægst launuðu í landinu. Það er sanngirniskrafa að fólk með hæstu tekjurnar leggi hlutfallslega meira til samneyslunnar en fólk með lágar tekjur. Því leggur þing SGS […]
Þing SGS ályktar um Atvinnu- og húsnæðismál

Ályktun um atvinnumál 4. þing Starfsgreinasambands Íslands, haldið í Hofi á Akureyri dagana 16.-18. október 2013, minnir á þau grundvallarmannréttindi að hafa aðgang að vinnu. Þó vissulega hafi náðst ákveðinn árangur í baráttunni við atvinnuleysið þá eigum við enn langt í land að ná viðunandi stöðu í atvinnumálum. Atvinnuleysi er mikið og vinna verður af […]
Þing SGS ályktar um kjaramál

4. þing Starfsgreinasambands Íslands, haldið í Hofi á Akureyri dagana 16.-18. október 2013, telur að vegna óvissu í efnahagsmálum á næstu misserum sé ekki ráðlegt að semja til langs tíma. Þingið leggur áherslu á að í komandi kjarasamningum verði ríkisstjórnin krafin um efndir á fyrirheitum sem gefin voru í kosningabaráttunni sl. vor og bæta eiga […]
4. Þing SGS – Samstaða og samvinna !

4. þing Starfsgreinasambands Íslands var sett í Hofi á Akureyri í gær klukkan 15:00 undir yfirskriftinni Samstaða og Samvinna. Á þinginu mun verða fjallað um kjaramál í aðdraganda kjarasamninga, atvinnumál almennt, húsnæðismál og fleira. Formaður Sarfsgreinasambandsins, Björn Snæbjörnsson flutti kröfuga settningaræðu í þingbyrjun, en ásamt Birni fluttu þau Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra og Gylfi […]
Ágætu þingmenn Norðvesturkjördæmis !

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 Stjón Verkalýðsfélags Vestfirðinga vill beina þeim tilmælum til þingmanna Norðvestur kjördæmis að þið gerið allt sem í ykkar valdi stendur til að verja þá miklu uppbyggingu sem orðið hefur undanfarin ár í rækjuveiðum og vinnslu í kjördæminu. Af sex starfandi rækjuverksmiðjum á landinu eru fimm […]
Íslenska fyrir útlendinga – Islandzki dla cudzoziemców

Vilt þú bæta þig í íslensku? Czy chcesz poprawić swój islandzki? Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður nám í íslensku á öllum stigum. Centrum Dokształcania na Fiordach Zach. proponuje naukę na różnym etapie.Kennt utan vinnutíma. Kursy organizowane są po godzinach pracy.30 kennslustunda námskeið (20 klukkustundir, 10 skipti) kostar 26 þúsund krónur á þátttakanda. 30 godzinny kurs (20 godzin, […]
Gegn svartri atvinnustarfsemi

Meðal margra verkefna stéttafélaganna er að sinna eftirliti með svartri atvinnustarfsemi. Þetta eftirlit er samstarfsverkefni ASÍ og Samtaka atvinnulífsins með vísan í lög frá Alþingi frá árinu 2010. Eitt af meginhlutverkum stéttafélaganna, fyrir utan að semja um lágmarks kaup og kjör, er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna að öðru leiti, til dæmis að passa upp […]
Einhugur á útvíkkuðum fundi samninganefndar SGS

Samninganefnd Starfsgreinasambandsins hélt útvíkkaðan fund á Hótel Heklu til að fara yfir kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga. Sextán félög hafa veitt Starfsgreinasambandinu umboð til samninga á hinum almenna markaði og kröfugerðir hafa borist frá flestum félögum. Töluverð óvissa er um hvernig framhald viðræðna verður enda liggur ekki fyrir endanleg viðræðuáætlun við Samtök Atvinnulífsins auk þess sem […]
Mikill verðmunur í fiskbúðum

Í nýrri könnun ASÍ á fiskafurðum kemur í ljós að verðmunurinn á hæsta og lægsta verði er að lágmarki 75%. Könnunin var gerð í 25 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð, víðsvegar um landið sl. mánudag. Kannað var verð á 23 algengum tegundum af fiskafurðum. Melabúðin neitaði þátttöku í könnuninni. Munur á hæsta og lægsta […]
Málefnalegur Kjaramálafundur Verk Vest

Eins og fram hefur komið hér á síðunni og í auglýsingum í fjölmiðlum þá stóð Verkalýðsfélag Vestfirðinga fyrir opnum kjaramálafundi á Hótel Ísafirði í gærkvöldi. Mjög málenfalegar umræður fóru fram á fundinum þar sem farið var yfir stöðu kjaramála og spáð í horfurnar framundan. En fyrir liggur að núgildandi kjarasamningar á almennum vinnumarkaði renna úr […]
Nýtt félaga- og iðgjaldakerfi hjá Verk Vest

Nýtt tölvukerfi, Jóakim, hefur verið tekið í notkun hjá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga. Auk þess að vera félaga- og iðgjaldakerfi þá heldur það utan um orlofsíbúða- og órlofshúsaleigur sem og styrki allskonar. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að því að uppfæra bókhaldið frá gamla kerfinu yfir í það nýja. Í tengslum við breytingar í bókhaldsvinnu hefur fyrirtækjum […]
Framfærsluskylda sveitarfélaga ótvíræð

Samkvæmt minnisblaði sem lögfræðideild ASÍ hefur sent til aðildarfélaga sinna kemur fram, með ótvíræðum hætti, að sveitafélaögin geta ekki skotið sér undan framfærslu til þeirra íbúa sem vegna atvinnuástands eða annarrra sannarlegra ástæðna geta ekki séð sjálfum sér eða fjölskyldum sínum farborða. Í niðurstöðum minnisblaðsins kemur eftirfarandi fram:“Sveitarfélag skal sjá um að veita íbúum þjónustu […]
Kjaramálafundur Verk Vest 10. september

Félagið stendur fyrir opnum kjaramálafundi á Hótel Ísafirði þriðjudaginn 10. september kl.18.30. Þátttaka tilkynnist til skrifstofu félagsins eigi síðar en 6. september í síma 4565190 eða á postur@verkvest.is. Boðið verður upp á ferðir frá Hólmavík og Patreksfirði ef næg þátttaka fæst.Dagskrá: Kjaramál félagsmanna Verk Vest – undirbúningur fyrir komandi kjaraviðræður Fundarhlé – léttur málsverður. Samningsumnboð […]
Vegleg bókagjöf

Verkalýðsfélaginu barst á dögunum vegleg gjöf. Fyrrverandi formaður félagsins, Pétur Sigurðsson og kona hans, Hjördís Hjartardóttir færðu félaginu á sjötta tug bóka sem þau hafa eignast í gegnum árin. Um er að ræða fagurbókmenntir ýmis konar sem og ævisögur merkra manna og kvenna. Þessi vísir að bókasafni er félaginu kærkominn og verður þessum bókakosti skipt […]
Láttu ekki plata þig! – Leitaðu ráða hjá stéttarfélaginu þínu

Nokkuð algengt er að starfsfólk á félagssvæði Verk Vest sem ráðið er til starfa í ferðaþjónustu og á veitingastöðum sé boðin vinna á „Jafnaðarkaupi“. Jafnaðarkaup er ekki til samkvæmt kjarasamningum og því óheimilt að semja um slíkt við starfsfólk. Ekkert virðist skorta á hugmyndarflug hvað er sett inn í jafnaðarkaupið. Hafa sumir ferðaþjónustuaðilar gengið svo […]
Þriggja nátta skemmtiferð um Norðvesturland í ágúst

Árleg sumarferð félaga í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga verður að þessu sinni um miðjan ágúst og er ferðinni heitið norður í land. Húnavatnssýslur, Skagafjarðarsýsla og Eyjafjarðasýsla heimsóttar. Farið verður með Sophusi Magnússyni strandamanni að morgni fimmtudagsins 15.ágúst. Farið að Laugarbakka í Miðfirði þar sem gist verður fyrstu nóttina. Frægastur Miðfirðinga er líklega Grettir Ásmundarson og má finna […]
Vörukarfan hefur hækkað meira hjá lágvöruverðsverslunum en öðrum verslunum

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um allt að 4,9% frá því í janúar (viku 5) og nú í júní (viku 24). Á tímabilinu janúar til maí var verðbólgan hins vegar aðeins tæp 2% (verðbólgumæling fyrir júní er ekki komin). Það sem af er árinu hefur vörukarfan hækkað meira hjá lágvöruverðsverslunum en öðrum verslunum, mest hjá Nettó, […]
Hvað gerir stéttarfélagið fyrir þig?

Í tenglum við vinnustaðaheimsóknir og kynningar stéttarfélaga er þeirri spurningu oft velt upp hvað stéttarfélagið geri fyrir félagsmanninn? Með því að smella á þennan tengil, er hægt að nálgast vital við Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdarstjóri ASÍ, sem svarar spurningunni á mjög fræðandi hátt.
Staðið verði við „Jafnlaunaátak“

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 Í kjölfar umræðna á Alþingi um Jafnlaunaátak og kjarasamninga sá framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands ekki annað fært en senda frá sér eftirfarandi Ályktun.Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands (SGS) krefst þess að staðið verðið við þau fyrirheit að hækka laun kvennastétta innan heilbrigðisstofnana eins og gefin voru fyrirheit um […]
Allir í leik, allir í leik…. Fjölskylduhátíð VerkVest á laugardag!

Undanfarin ár hefur Verkalýðsfélag Vestfirðinga staðið fyrir fjölskylduhátíð. Í ár fer hátíðin fram á tveimur stöðum samtímis, á Patreksfirði og í Súðavík. Hátíðin verður á morgun laugardag, 22. júní, og hefst dagskráin kl. 15 og stendur til kl. 17. Boðið verður uppá grillaðar pylsur og gos og farið í leiki. Á Patreksfirði verður hátíðin á […]
Formannafundur SGS á Húsavík

Formenn og varaformenn aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands áttu mjög góðan fundi á Húsavík dagana 3.-4. júní til að fara yfir undirbúning kjarasamninga. Frá Verk Vest fóru þeir Finnbogi Sveinbjörnsson og Ólafur Baldursson. Á fundinum kom fram að félögin væru komin af stað í undirbúning með ýmsum hætt, víða eru haldnir fundir með trúnaðarmönnum, gerðar kannanir á […]