Vinnum öll gegn svartri atvinnustarfsemi !

,,Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands telur óhæfu að nokkurt fyrirtæki stundi óskráða atvinnustarfsemi og hliðri sér þannig hjá greiðslu á lög- og kjarasamningsbundnum launatengdum gjöldum. Launagreiðslur slíkra fyrirtækja eru oftar en ekki undir lágmarkstöxtum kjarasamninga og því brot á grundvallarréttindum launafólks. Algengt er að ákvæðum um aðbúnað og hollustuhætti sé ekki framfylgt né reglum um hvíldar- og vinnutíma.“ segir í samþykkt framkvæmdastjórnar SGS frá 7.september síðast liðnum.

Undirbúningur kjarasamninga – er ríkisstjórninni treystandi ?

Nú er að fara í hönd mikill annatími hjá stéttarfélögum víðsvegar um landið vegna undirbúnings fyrir kjarasamninga. En þeir eru flestir lausir frá og með 30.nóvember næst komandi að undanskildum sjómönnum sem eru með lausa samninga frá 1.janúar 2011. Félögin hafa leitað til félagsmanna um helstu áherslur og hvaða kröfur eigi að gera, á að leggja áherslu á lægst launin ? verður hægt að ná árangri í viðræðum við stjórnvöld ? ætla sjómenn að leggja áherslu á sjómannaafsláttinn ? osfrv. Þetta verða ekki auðveldar viðræður og í mörg horn að líta þegar kemur að hvar við eigum helst að setja áherslupunktana okkar. En það sem verður að vera alveg á hreinu er ef við ætlum að ná árangri þá verðum við að standa saman, þannig og eingöngu þannig náum við markmiðum okkar um mannsæmandi laun á vinnumarkaði.

Samkomulag um vinnustaðaskírteini taka gildi

Þann 15. ágúst sl. tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Öllum atvinnurekendum í hlutaðeigandi greinum ber að sjá til þess að starfsmenn fái vinnustaðaskírteini þegar þeir hefja störf. Nánar um gildissvið og afmörkun starfa má finna í samkomulaginu sjálfu. Síðar er gert ráð fyrir að aðrar atvinnugreinar fylgi í kjölfarið. Atvinnurekandi og starfsmenn hans skulu bera skírteini á sér og vera reiðubúnir að framvísa því, sé þess óskað af eftirlitsfulltrúa. Með atvinnurekanda er einnig átt við sjálfstætt starfandi einstaklinga. Markmið vinnustaðaskírteina og eftirlits á vinnustöðum er að tryggja að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. og þannig verði komið í veg fyrir ólöglega háttsemi fyrirtækja á íslenskum vinnumarkaði.

Forseti ASÍ fundar á Vestfjörðum

Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands fundar með stjórnum aðildarfélaga á Vestfjörðum á Ísafirði í dag. Fundurinn í dag er liður í fundarferð forseta ASÍ með aðildarfélögum um allt land. Gera má ráð fyrir að kjara- og efnahagsmál verði mjög fyrirferðamikil á fundinum í dag, þá verður einnig farið yfir afmarkaðar tillögur að breytingum á skipulagi […]

Aðstoð vegna myntkörfulána

Félagsmönnum í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga býðst nú að leita til lögfræðinga félagsins til að fá úr því skorið hvort myntkörfulán sem þeir kunna að hafa tekið gæti verið ólögmæt samkvæmt úrskurði hæstaréttar. Það eina sem þarf að gera er að koma eftirfarandi gögnum til félagsins:1. Upprunalegur lánasamningur2. Einn greiðsluseðil sem dæmi ( yfirleytt til staðar á […]

Skertar atvinnuleysisbætur vegna séreignargreiðslna

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hvetur þá félagsmenn sem eru 60 ára eða eldri og hafa verið að fá atvinnuleysisbætur ásamt því að fá greiddan séreignarlífeyrissparnað til að kanna hvort bætur þeirra hafi verið skertar vegna þessa. En breytingar voru gerðar á lögum um atvinnuleysistryggingar með lögum nr. 70/2010, sem tóku gildi í júní sl. Breytingar þessar fela meðal annars í sér að þeir sem eru 60 ára eða eldri og hafa fengið skertar greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði á tímabilinu 1. mars 2009 til dagsins í dag, vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði, geta átt rétt á endurgreiðslu úr Atvinnuleysis-tryggingasjóði sem nemur fjárhæð skerðingarinnar. Þetta á hins vegar ekki við um þá sem eru yngri en 60 ára þar sem greiðslur úr séreignarlífeyrissjóðum skerða ekki greiðslur til þeirra úr Atvinnuleysistryggingasjóði.

Uppsagnir í vega og mannvirkjagerð

Nú um þessi mánaðarmót hafa fyrirtæki sem sérhæfa sig í vega- og mannvirkjagerð enn þurft að segja upp starfsfólki. Gera má ráð fyrir að þessar uppsagnir varði rúmlega 200 manns á landinu öllu. Þessir einstaklingar bætast nú við þá tæplega þá 17 þúsund einstaklinga sem eru í atvinnuleit á Íslandi í dag. Ef stjórnvöld í landinu ætla ekki að bregðast við ákalli um auknar framkæmdir má gera ráð fyrir atvinnuleysi festi sig í sessi til lengri tíma, hagvöxtur í landinu frestist og efnhagslægðin verði lengri og erfiðari. Stjórnvöld í landinu verða að átta sig á því að auknar framkvæmdir skila sér að miklu leiti aftur í ríkiskassann.

Fæðispeningar sjómanna hækkuðu 1.júní 2010

Samkvæmt kjarasamningum þá hækkuðuð fæðispeningar til sjómanna um 7,2% frá og með 1. júní 2010. Þetta hefur verið leiðrétt í kaupgjaldskrá sjómanna hér á vefnum. Fæðispeningar frá 1.júní eru því eftirfarandi fyrirhvern dag:A. Skuttogarar, loðnuskip og sambærileg skip……..kr. 1.388B. Önnur skip stærri en 100 brl. sem ekki eru tiltekin í lið A……………………………………….kr. 1.103C. Skip 12 […]

Vöruverð enn hátt þrátt fyrir styrkingu krónunnar !

Þrátt fyrir samfellda styrkingu krónunnar frá áramótum bólar enn lítið á verðlækkunum á innfluttum neysluvörum. Forsvarsmenn verslunarinnar hafa fullyrt að verslunin hafi almennt tekið á sig afkomuskerðingu vegna veikra stöðu krónunnar. En nú þegar krónan hefur styrkst þá er ekki að sjá að verð lækki sem nemur styrkingunni.
Sé verðþróun innfluttra vara skoðuð frá ársbyrjun 2008 þegar krónan tók að veikjast er bein tenging hvernig verðlag á helstu flokkum innfluttra neysluvara hækkaði framan af nokkurn veginn samhliða veikara gengi krónunnar. En það furðulega er að þrátt fyrir 25 – 30% styrkingu krónunnar þá hefur vöruverð ýmist haldið áfram að hækka eða nánast staðið óbreytt undanfarna mánuði.

Verð á þorski lækkar um 5%

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. júlí 2010.

Vel heppnaður fjölskyldudagur verk Vest

Fjölskyldudagur Verk Vest var haldinn í ágætu veðri á víkingasvæðinu á Þingeyri laugardaginn 26.júní síðast liðinn. Félagsmenn og fjölskyldur þeirra áttu ánægjulega samverustund við ýmsa leiki sem íþróttafélagið Höfrungur á Þingeyri stóð fyrir. Þá bauð félagið þeim sem vildu upp á siglingu í víkingaskipinu Vésteini og þáðu nokkrir að leggjast í víking út á Dýrafjörðinn. […]

Vinnuskólinn í heimsókn

Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar er nú kominn á fullt og má sjá ungmenni um allan bæ við hin ýmsu störf. Mest ber á vinnu við snyrtingu umhverfisins svo sem hreinsun opinna svæði ásamt garðslætti að ógleymdum Morranum. En vinnuskólinn er ekki bara vinna, hann áað vera sambland af vinnu, leik og námi. Það hefur tekist mjög vel […]

Breyting á reglum um námsstyrki

Starfsfræðslusjóðirnir Landsmennt og Sveitamennt sem Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að hafa ákveðið að auka við réttindi frá og með 1.júlí næst komandi. Breytingin felst í viðbót við einstaklingsstyrki fyrir eitt samfellt námskeið eða nám sem fara þá eftir reglum sjóðsins. Félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér sinn rétt síðustu þrjú ár eiga rétt á styrk […]

Fjölskyldudagur Verk Vest 26.júní

Fjölskyldudagurinn verður að þessu sinni á víkingasvæðinu á Þingeyri laugardaginn 26.júní milli kl.14.00 og 17.00. Á þingeyri er búið að byggja upp skemmtilegt útivistarsvæði í víkingastíl og er svæðið myndað úr hringhleðslu úr grjóti. Þar er gott svæði til leikja og einnig grillaðstaða, svið, bekkir og borð. Þarna ætlum við að grilla, syngja saman og […]

Vegið að launafólki – verjum grunnstoðirnar og kjör lágtekjuhópa

Undirbúningur að gerð fjárlaga fyrir árið 2011 er í fullum gangi. Gatið sem þarf að fylla er stórt og því óhjákvæmilegt að draga verður úr útgjöldum og hagræða í ríkisrekstrinum. Miðstjórn ASÍ telur mikilvægt við þessar aðstæður að haft sé náið samráð við verkalýðshreyfingunaum forgangsröðun í rekstri ríkisins, með það að markmiði að verja grunnstoðir […]

ASÍ segir sig frá Stöðugleikasáttmálanum

Á miðstjórnarfundi ASÍ þann 16.júní síðast liðinn var samþykkt að slíta samstarfi við ríkisstjórnina vegna hins svokallaða stöðugleikasáttmála. Kornið sem fyllti mælinn voru nýjustu svik ríkisstjórnarinnar um aðkomu ríkisins að starfsendurhæfingarsjóði launþega og atvinnurekenda. Í stöðugleikasáttmálanum hafði verið samþykkt að fresta aðkomu ríkissjóðs að starfsendurhæfingarsjóði til ársins 2010 vegna bágrar stöðu í ríkisfjármálum. Nú er ljóst að ríkisstjórnin ætlar sér ekki að standa við þau loforð eins og kom fram í störfum Alþingis nú fyrir þinglok.
„Það er engin launung að væntingar miðstjórnar ASÍ til lögbindingar þessara ákvæða var síðasta hálmstráið sem rökstuddi aðild ASÍ að stöðugleikasáttmálanum. Nú er sú von að engu orðin og lýsir miðstjórn ASÍ því formlega yfir að engar forsendur eru fyrir aðkomu þess að frekari samstarfi á þeim grunni.“ asi.is

Einarsstaðir og Flókalundur *** LAUST ***

Vikuna 18. – 25.júní er laust á Einarsstöðum á Héraði og í Orlofsbyggðinni í Flókalundi. Áhugasömum er bent á að snúa sér til skrifstofu félagsins um bókanir og frekari upplýsingar. Sími á skrifstofu er 4565190 og tölvupóstur er postur@verkvest.is einnig er rétt að benda á að hér til vinstri á síðunni er að finna tengil […]

LAUST Í ÖLFUSBORGUM *** LEIGÐUR ***

Vegna forfalla var að losna orlofsbústaður í Ölfusborgum dagana 18. – 25.júní nk. Þannig að nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Upplýsingar á skrifstofu félagsins í síma 4565190 eða postur@verkvest.is

Samkomulag um verð á Ufsa

Náðst hefur samkomulag við LÍÚ um verð á Ufsa þegar afla er ráðstafað til eigin vinnslu eða afli seldur til skylds aðila. Samkomulagið sem gildir frá 15.júní 2010 – 1.janúar 2011 er tilkomið vegna bókana um fiskverð í síðustu kjarasamningum. Verðið skal endurskoðað reglulega eða að minnsta kosti mánaðarlega og skulu verðbreytingar meðal annars hafa […]

Dagsferð á Látrabjarg og Rauðasand 12. júní

Minnum á áður auglýsta dagsferð á Látrabjarg og Rauðasand þann 12. júní. Farið verður með rútu frá Landsbankaplaninu á Ísafirði kl. 09:00 og ekið sem leið liggur á Látrabjarg. Eftir það verður farið yfir á Rauðasand sem þykir einn fegursti staður landsins.Sameiginlegur kvöldverður er svo fyrirhugaður á Hótel Flókalundi áður en haldið verður af stað […]

Laust í sumarbústaði – fyrstur kemur fyrstur fær

Þrátt fyrir algjöra sprengingu í umsóknum um sumarbústaði hjá Verk Vest fyrir sumarið þá eru ennþá nokkrar vikur lausar til umsókna. Tímabilin sem eru laus hafa verið sett inn á síðuna undir olofshús og bústaðir. Þeir sem vilja tryggja sér bústaði eru beðnir að hafa samband við skrifstofu félagsins sem fyrst í síma 4565190 eða […]

Verk Vest aðstoðar starfsfólk Eyrarodda vegna orlofslauna

Fulltrúar Verk Vest ásamt túlkum héldu fund með starfsólki Eyrarodda ehf. á Flateyri í gær. Farið var yfir hvernig félagið myndi aðstoða starfsfólk sem ekki hafði fengið greidd orlofslaun á réttum tíma. En eins og fram hefur komið í fréttum hefur Eyraroddi ehf. óskað eftir greiðslustöðvun og fengið tilskilinn frest til að endurskipuleggja rekstur með […]

Aðalfundur Orlofsbyggðarinnar í Flókalundi

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable {mso-style-name:“Table Normal“; mso-tstyle-rowband-size:0; mso-tstyle-colband-size:0; mso-style-noshow:yes; mso-style-priority:99; mso-style-qformat:yes; mso-style-parent:““; mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt; mso-para-margin:0cm; mso-para-margin-bottom:.0001pt; mso-pagination:widow-orphan; font-size:10.0pt; font-family:“Times New Roman“,“serif“;} Aðalfundur Orlofsbyggðarinnar Flókalundi verður haldinn laugardaginn 19. Maí 2012 í Orlofsbyggðinni Flókalundi samkvæmt bókun aðalfundar 2008 og hefst kl. 13:00. Dagskrá:1. Skýrsla […]

Aðalfundur orlofsbyggðarinnar í Flókalundi

Aðalfundur orlofsbyggðarinnar í Flókalundi var haldinn laugardaginn 15.maí sl. Farið var yfir verkefni sem hafa verið framkvæmd í byggðinni, bæði viðhald og nýframkvæmdir. Þykir svæðið hafa tekið miklum stakkaskiptum eftir að sláttutraktor var keyptur til að hirða opin svæði, þá hefur umhverfi sundlaugarinnar verið snyrt og lagfært þannig að mikill sómi er af og samþykkt […]

Gistihús Keflavíkur býður Verk Vest félaga velkomna

Verkalýðfélag Vestfirðinga hefur gert samning við Gistihús Keflavíkur ehf. um afsláttarkjör á gistingu til félagsmanna. Gisthúsið er staðsett á gamla varnarsvæðinu í Keflavík og er boðið upp á geymslu á bílum og akstursþjónustu út á Keflavíkurflugvöll. Félagsmenn panta gistinguna beint hjá Gistihúsinu en þurfa að framvísa félagsskírteyni við innritun. Samningurinn tekur gildi frá og með […]

Dýrafjarðargöng aftur inn á samgönguáætlun

Á fundi stjórnar Verk Vest voru samgöngu- og byggðamál enn til umræðu. Tilefni umræðanna var sú ákvörðun að fresta gerð Dýrafjarðarganga og með þeim hætti viðhalda því óréttlæti sem viðgengist hefur í samgöngubótum milli norður og suðursvæðis Vestfjarða. Stjórn félagsins hvetur Vestfirðinga sem og landsmenn alla að leggjast á ára og taka þátt í undirskriftasönunum til að þrýsta á um að Dýrafjarðargöng verði sett aftur inn á samgönguáætlun.

Sjúkrasjóður Verk Vest mikilvægur í Vestfirsku samfélagi

Sjúkrasjóður Verkalýðsfélags Vestfirðinga hefur verið myndalegur í gjöfum til samfélgsmála á starfsárinu sem senn er að ljúka. Stjórn sjóðsins hefur alltaf haft það að leiðarljósi að styðja við og styrkja málefni á heimaslóðum sem gætu komið félagsmönnum Verk Vest og fjölskyldum þeirra til góða. Þá hefur sú hugsun einnig verið höfð að leiðarljósi að samfélagið á Vestfjörðum nyti einnig góðs af þessum gjöfum og styrkjum.

Við viljum vinna – mótuð verði djörf aðgerðaáætlun

Að vanda var góð þátttaka í kröfugöngu og hátíðarhöldum á 1.maí víða á Vestfjörðum. Á Ísafirði kom fólk saman við skrifstofu verkalýðsfélaganna þaðan sem gengið var fylktu liði niður í Edinborgarhúsið með lúðrasveitina í broddi fylkingar. Í Edinborgarhúsinu var að vanda boðið upp á hefðbundna hátíðardagskrá, en aðalræðumaður dagsins var Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ. En í ræðu sinni kom Gylfi inn á það dugleysi og skammsýni sem einkennt hafði alla hugsun alþingismanna við endurreisn íslensks efnahags- og atvinnulífs.

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 27. maí 2014 kl.18:30, á Hótel Ísafirði. Áður en gengið verður til hefðbundinnar dagskrár aðalfundar verður boðið upp á léttan málsverð. Dagskrá: Skýrsla stjórnar Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2013 Tillögur um lagabreytingar Tillögur um reglugerðabreytingar: a) Sjúkrasjóðs b) Starfs- og siðareglur c) Vinnudeilusjóðs Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð […]

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn laugardaginn 8. maí kl.11:00 í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði 4 hæð. Dagskrá: 1. Setning fundarins 2. Kosning starfsmanna fundarins 3. Skýrsla stjórnar. 4. Kynntur ársreikningar starfsárið 2009. 5. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs 6. Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð 7. Lögð fram tillaga um laun stjórnar. 8. Kosning fulltrúa á ársfund […]