Námskeið fyrir trúnaðarmenn

Verkalýðsfélag Vesfirðinga og Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum halda námskeið fyrir trúnaðarmenn félagsins mánudaginn 25.janúar næst komandi. Námskeiðið sem hefst kl. 08:30 verður í sal Verk Vest í Pólgötu 2 á Ísafirði. Trúnaðarmenn félaganna eru hvattir til að láta skrá sig sem fyrst á námskeiðið hjá skrifstofum félaganna. Leiðbeinandi á er Eyþór Eðvarðsson, en námskeiðinu […]
Verð á ýsu hækkar um 5%

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um 5%. Verð á þorski og karfa er óbreytt frá síðustu ákvörðun. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag.
Dyravarðanámskeið

Dyravarðarnámskeið í samstarfi lögreglunnar á Vestfjörðum, Verkalýðsfélags Vestfriðinga, slökkviliðsstjórans í Ísafjarðarbæ og Tryggingarmiðstöðvarinnar hf. verður haldið dagana 11 – 14.janúar næst komandi. Námskeiðið er ætlað þeim starfsmönnum veitinga- og skemmtistaða sem sinna dyravörslu og öðrum þeim sem sinna dyravarðarstarfi á einstökum skemmtunum eða dansleikjum. En allir sem sinna dyravarðastarfi, hvort heldur sem aðalstarfi eða hlutastarfi […]
Ríkið flytur kostnað á milli vasa

Ákveðið hefur verið að segja upp öllu starfsfólki á hjúkrunardeildinni Sólborg á Flateyri og leggja störf þess niður. Með þessum hætti á að vera hægt að ná fram auknum sparnaði í rekstri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, en rekstrareiningin á Sólborg þykir mjög óhentug og barn síns tíma. Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni verður ekki hægt að bjóða starfsfólkinu sem missir vinnuna önnur störf hjá stofnuninni, en ef um nýráðningar verði að ræða hjá stofnuninni þá verði vissulega horft til þessara einstaklinga. Þarna munu því sjö einstaklingar missa vinnuna og bætast í stækkandi hóp atvinnuleitenda á Vestfjörðum.
Kaupliðir sjómanna hækka um áramót

Samkvæmt kjarasamningi þá hækka kaupliðir sjómanna þann 1.janúar 2010. Kauptrygging háseta hækkar um kr.6.500 og taka tímakaup og starfsaldursálag mið af þeirri hækkun. Við útreikning á tímakaupi skal miða við deilistuðulinn 173,33 í kauptryggingu, aðrir launaliðir s.s. hlífðarfata og fæðispeningar hækka um 2,5%.
Skrifstofan lokuð á Gamlársdag

Skrifstofa verkalýðsfélaganna verður lokuð á Gamlársdag. Við opnum aftur mánudaginn 4.janúar 2010 kl 08:00.Starfsfólk skrifstofu verkalýðsfélaganna sendir öllum Vestfirðingum nær og fjær bestur óskir um gleðilegt nýtt ár og þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.Nýárskveðjur,Finnbogi, Helgi, Karitas og Eygló.
Rógsherferð gegn verkalýðshreyfingunni

Af einhverjum undarlegum hvötum er enn herjað á verkalýðshreifinguna og forustumenn innan hennar og þeim brigslað um óheilindi. Er þar gefið í skyn að forystumenn innan hreyfingarinnar reyni að koma í veg fyrir að upplýsingar um þá sem sitji í stjórnum og nefndum verði gerðar opinberar. Þessar ásakanir komu fram í kvöldfréttum RÚV þann 21.desember […]
GLEÐILEG JÓL

Félagar og samstarfsfólk ! Starfsfólk skrfstofu verkalýðsfélaganna á Ísafirði sendir ykkur öllum , Bestu óskir um gleðileg jól. Megi nýtt ár færa ykkur gleði og fasæld. Jólakveðjur að vestan. Finnbogi , Karitas , Helgi og Eygló.Athugið að Skrifstofa Verkalýðsfélaganna verður lokuð frá og með 24.desember til 28.desember.
Átta útskrifaðir með sveinspróf í hússmíði

Þrátt fyrir lægð í byggingargeiranum þá hafa nemar í húsamíði við Menntaskólann á Ísafirði haldið ótrauðir áfram og luku átta námi með sveinsprófi sem var þreytt á dögunum. Í ávarpi Þrastar Jóhannssonar sviðsstjóra tréiðngreina við Menntaskólann kom fram að það væru 18 ár frá því nemar í húsasmíði hefðu síðast verið útskrifaðir frá skólanum. Ástæða […]
Forseti ASÍ vandar stjórnvöldum ekki kveðjurnar

Í pistli á heimasíðu ASÍ fer Gylfi Arnbjörnsson forseti sambandsins yfir það samningsbrot sem ríkisstjórnin hefur samþykkt með afgreiðslu á skattafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þar vísar forsetinn fyrst og fremst í afnám verðtryggingar persóuafsláttar og niðurfellingu á 3000 kr sérstakri hækkunar persónuafsláttar sem átti að taka gildi þann 1. janúar 2011. Þá rekur forsetinn baráttu ASÍ fyrir því að verðtryggingu persónuafsláttar verði komið á að nýju eftir að hún var afnumin 1989. Þá minnir hann einnig á að það voru Samfylkingin og Vinstri hreyfingin grænt framboð sem höfðu ítrekað tekið undir þessar kröfur ASÍ.
Miðstjórn ASÍ ályktar um áformuð samningssvik ríkisstjórnarinnar

Á fundi miðstjórnar ASÍ varð nokkur umræða um þau áform ríkisstjórnarinnar að svíkja gerða samninga er varðar verðtryggingu persónuafsláttar og sérstaka 3.000 kr hækkun hans. Að loknum umræðum þá var samþykkt að leggja fram eftirfarandi ályktun. Miðstjórn Alþýðusambands Íslands mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum ríkisstjórnar Íslands að virða ekki gerða samninga. Samkvæmt stjórnarfrumvarpi um breytingar tekjuskattskerfinu […]
Vísir hf og Oddi hf greiða auka desemberuppót

Fiskvinnsæufyrirtækin Vísir á Þingeyri og Oddi á Patreksfirði hafa ákveðið að greiða starfsfólki sínu auka desemberuppbót. Hjá Vísi munu fyrirtækið greiða tvöfalda desemberuppbót til starfsmanna í hlutfalli við starfstíma og starfshlutfall. Hjá Odda á Patreksfirði hefur enn ekki verið ákveðið hver upphæðin verður, en það mun koma í ljós fljótlega. Félagið hefur ekki fregnað að […]
Verðtrygging persónuafsláttar afnumin – ekki í fyrsta sinn

Það er ljóst að fátt virðist halda í loforðum og samningum við stjórnvöld. Þetta sést best á tekjulagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. En samkvæmt endanlegum útfærslum sem þar liggja fyrir þá hefur verið ákveðið að standa ekki við 3000 kr. umsamda hækkun persónuafsláttar í byrjun árs 2011. Ekki nóg með það […]
VIRK – starfsendurhæfingarsjóður

Á Vestfjörðum er starfandi ráðgjafi á vegum VIRK í 25% starfi. Þessi ráðgjafi þjónustar félagsmenn Verkalýðsfélags Vestfirðinga, Félags opinberra starfsmanna, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungavíkur og Félag Járniðnaðarmanna á Ísafirði. Ráðgjafinn er með aðstöðu á skrifstofu verkalýðsfélaganna í Pólgötu 2 á Ísafirði, en Fanney Pálsdóttir sjúkraþjálfari hefur haft það starf með höndum frá opnun fyrr á þessu ári.
Forseti ASÍ vill sjá svipaða vexti hér og í Evrópu í lok næsta árs

Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands fagnar eins prósentustiga vaxtalækkun sem Seðlabankinn kynnti í morgun. „Við höfum barist fyrir vaxtalækkun lungan úr þessu ári og lækkunin núer í takt við það samkomulag sem við gerðum við stjórnvöld og óbeint við Seðlabanka í Stöðugleikasáttmálanum. Það er alveg ljóst að hátt vaxtastig hefur hamlað uppbyggingu atvinnulífsins sem er […]
Tilbúinn hráefnisskortur ógnar störfum í fiskvinnslu.

Skúli Thoroddsen framkvæmdarstjóri fjallar um þá vá sem útfluttningur á óunnum sjávarafurðurðum hefur fyrir störf starfsfólks í fiskvinnslu í pistli sem hann skrifar á heimasíðu Starfsgreinasambands Íslands. Veltir Skúli þar upp ýmsum áhugaverðum flötum á möguleikum í að gera meira verðmæti úr aflanum hér heima ásamt því að tryggja stöðu landverkafólks í fiskvinnslunni.66 þúsund tonn […]
Ný deildarstjórn Byggingadeildar Verk Vest

Á deildaraðalfundi byggingardeildar Verk Vest sem var haldinn í gær, var kosin ný deildarstjórn.Formaður: Guðjón Kr. HarðarsonVaraformaður: Þröstur KristjánssonRitari: Snorri HinrikssonVaramenn: Bergsteinn Gunnarsson og Hermann GunnarssonVerkalýðsfélag Vestfirðinga býður nýja stjórnarmenn byggingardeildar velkomna til samstarfs og óskar þeim velfarnaðar í trúnaðarstörfum fyrir félagið.
Miðstjórn ASÍ ályktar um skattamál

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af umfangi skattahækkana en það er mun meira en boðað var við gerð stöðugleikasáttmálans. Mikilvægt er að breytingar á sköttum einstaklinga verði með þeim hætti að þeim tekjulægstu verði hlíft sem kostur er. Miðstjórn varar sérstaklega við þeim áhrifum, sem hækkun neysluskatta hefur á rekstur og skuldir heimilanna. […]
Fiskverð hækkar

Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Þá var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um 10%. Verð á karfa var hækkað um 5%. Verðið gildir frá og með deginum […]
KNH segir upp starfsfólki vegna stjórnvaldsaðgerða

Verktakafyrirtækið KNH á Ísafirði hefur ákveðið að segja upp 60 af 84 starfsmönnum nú um næstu mánaðarmót. KNH sendi starfsmönnum fyrirtækisins bréf fyrr í vikunni þar sem farið er yfir þá stöðu sem KNH stendur frammi fyrir. Ástæða uppsagnanna er sögð endurskipulagning á fyrirtækinu vegna nýtilkominna stjórnvaldsaðgerða í formi aukinnar skattpíningar og álögur á fyrirtæki ásamt algjöru verkefnafrosti. En KNH er stærsta fyrirtækið á Vestfjörðum í vega- og jarðvegsframkvæmdum og byggist starfsemi KNH nánast alfarið á þesskonar framkvæmdum.
Munu standa vörð um sjómannaafsláttinn

Það er með öllu ótækt að í hvert sinn sem fjallað er um breytingar á skattkerfinu þá skuli eiga að höggva í sjómannaafsláttinn í leiðinni. Sjómannaafsláttur er hluti af tekjum sjómanna, lækkun eða skerðing er bein aðför að kjörum ákveðinnar starfsstéttar á Íslandi. Sjómenn eru sagðir hálaunastétt og beri að leggja sitt til samfélagsins í sama hlutfalli og aðrir skattborgarar. Sjómenn leggja sitt til samfélagsins og rúmlega það, allt tal um að sjómenn borgi ekki sinn skerf til samfélagsins er móðgun við sjómannsstéttina.
Enn á að höggva í velferðarmálin

Nýjustu hugmyndir félagsmálaráðherra um niðurskurð í velferðarmálum ganga út á að lækka greiðslur í fæðingarorlofi. Ekki dugir ráðherra að boða lækkun hámarksviðmiðs bótanna úr 350.000 í 300.000 á mánuði, heldur á líka að lækka tekjutengda viðmiðið úr 80% í 75%. Þetta er bein aðför að samfélagslegu framfaramáli sem hefur kostað launþega töluverðar fórnir við að ná fram. Verði þessar hugmyndir að veruleika munu þær bitna harðast á ungu fólki og þeim sem eru tekjulágir, þar að auki mun þetta leiða til ennfrekari mismununar karla við töku fæðingarorlofs.
Verk Vest mótmælir hugmyndum félagsmálaráðherra

Verkalýðsfélag Vestfirðinga mun aldrei sætta sig við að áratugalöng barátta hreyfingarinnar fyrir bótakerfi atvinnulausra verði skert með þeim hætti sem nú hefur verið boðað, verði hugmyndir félagsmálaráðherra að veruleika. Atvinnuleysisbætur eru hluti af samningsbundnum kjarabótum sem náðust fram í vinnudeilum um miðja síðustu öld. Þær verða ekki gefnar eftir baráttulaust. Launamenn sem greitt hefur verið af tryggingargjald eiga fullan bótarétt hjá sjóðnum óháð aldri, kyni eða búsetu og því með öllu óasættanlegt að á þeim verði brotið.
Treystum því að Vestfirsk fyrirtæki standi við launahækkanir

Ekki hefur orðið vart við það á félagssvæði Verk Vest að fyrirtæki innan raða Samtaka atvinnulífsins (SA) hafi verið að beita starfsfólk þrýstingi um að falla frá umsömdum kauphækkunum. Samkvæmt upplýsingum sem komu fram á fundi miðstjórnar ASÍ hefur borið á því að einstaka fyrirtæki innan raða SA hafi hótað starfsfólki að ef fyrirtækið þurfi […]
Ályktun vegna fyrirhugaðrar þjónustuskerðingar Breiðarfjarðaferjunnar Baldurs.

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir yfir þungum áhyggjum og sendir frá sér eftirfarandi ályktun vegna fyrirhugaðrar þjónustuskerðingar Breiðafjarðarferjunnar Baldurs.“Ferðir ferjunnar Baldurs eru samfélaginu á sunnanverðum Vestfjörðum lífsnauðsynlegar. Samkeppnisstaða svæðisins verður stórlega skekkt gagnvart öðrum landshlutum ef dregið verður úr daglegum ferðum. Má í því samhengi nefna, að fiskútflutningsfyrirtæki hafa á síðustu árum byggt upp verðmæt viðskiptasambönd sem nú er hætta á að fari forgörðum ef daglegar ferjusiglingar verða ekki tryggðar áfram.
Kreppan kallar á aðgerðir – opið bréf til ríkisstjórna Norðurlanda

Industrianställda i Norden, IN sem eru samtök stéttarfélaga með um 2,1 milljón félagsmanna í iðnaði á Norðurlöndum sendi ríkisstjórnum landanna fimm opið bréf dags. 6. nóvember s.l. um aðgerðir gegn kreppunni. „Nú er ekki tími til að hörfa. Það er ekki leið til að takast á við efnahagsvandann. Þvert á mót þarf markvissar og skilvirkar aðgerðir. Því fyrr, því betra,“ segir þar.
Fiskverð í beinum viðskiptum hækkar

Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ákvað á fundi þann 2. nóvember síðastliðinn að hækka viðmiðunarverð á þorski, ýsu og karfa í viðskiptum skyldra aðila. Slægður og óslægður þorskur hækkar um 15%, slægð og óslægð ýsa hækkar um 15% og karfi hækkar um 10%. Verðhækkunin tekur gildi 2. nóvember 2009.
Uppfærslu taxta á vef SGS

Í kjölfar framlengingar kjarasamninga þá hafa launataxtar á vef Starfsgreinasambands Íslands nú verið uppfærðir. Allar hækkanir gilda frá 1.nóvember 2009, en nánari upplýsingar má finna á heimasíðu SGS. Þess má geta að hækkanir í ákvæðisvinnu við ræstingu er nokkuð önnur og hærri en almennu hækkanirnar, samkæmt því átti ræstingin að hækka um 3,25% þann 1.júlí […]
Kjarasamningarnir halda – SA nýtti sér ekki uppsagnarákvæði

Ljóst er að kjarasamningar munu halda og koma launahækkanir til framkvæmda þann 1. nóvember næst komandi. Taxtalaun á almennum markaði munu þá hækka um kr.6750 en um kr.8750 hjá skrifstofufólki og iðnaðarmönnum. Þeir sem eru á persónubundnum launum og hafa ekki fengið launahækkun munu fá 3,5% launahækkun hafi þeir ekki hækkað í launum á tímabilinu 1. janúar – 1.nóvember 2009 (launaþróunartryggingin). Helmingur ákvæðisvinnutaxta, kostnaðarliðum og fastákveðnum launa breytingum koma koma einnig til framkvæmda. Þá er vert að minna á að starfsmenn sveitarfélaga og starfmenn á ríkisstofnunum eiga einnig að hækka í launum um næstu mánaðarmót. Þess má geta að unnið er að uppfærslu á kaupgjaldsskrá á heimasíðu félagsins.
Byggjum réttlátt Þjóðfélag – yfirskrift ársfundar ASÍ 2009

Ársfundur ASÍ 2009 verður haldinn á Hilton hótelinu við Suðurlandsbraut dagna 22. og 23. október. Yfirskrift fundarins verður Byggjum réttlátt þjóðfélag þar sem áherslan verður á hag heimilanna, efnahags- og kjaramál og atvinnumál og samfélagslega ábyrgð. Verkalýðsfélag Vestfirðinga á rétt á 6 ársfundarfulltrúum þetta árið, en Finnbogi Sveinbjörnsson, Ólafur Baldursson, Gunnhildur Elíasdóttir, Halldór Gunnarsson, Finnur Magnússon og Erna Sigurðardóttir voru kosnir sem fulltrúar félagsins. Allar upplýsingar varðandi umræðuskjöl fundarins má nálgast hér.