Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga 18. maí

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 18. maí 2021 kl.18.00 á Hótel Ísafirði. Vegna samkomutakmarkana eru félagsmenn beðnir að tilkynna þátttöku á postur@verkvest.is. Einnig verður hægt að taka þátt um fjarfundabúnað. Boðið verður upp á málsverð í upphafi fundar. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 24.gr laga félagsins Önnur mál Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og […]

Główne zebranie Verk Vest we wtorek 18 maja.

Główne zebranie Verk Vest odbędzie się we wtorek 18 maja 2021 o godzinie 18.00 w Hotelu w Ísafjordzie. Ze względu na ograniczenia dotyczące spotkań, członkowie są proszeni o powiadomienie o uczestnictwie pod adresem postur@verkvest.is. Możliwy będzie również udział online ( internetowy) Na początku spotkania będzie oferowany posiłek. Program : Padstawowe spotkanie działania zgodnie z art.24 […]

1. maí pistill formanns Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Til hamingju með alþjóðlegan baráttudag verkafólks. Afkoma samfélagsins á Íslandi á fyrri hluta 21. aldarinnar er þrátt fyrir allt með því besta sem þekkist í sögunni. Við búum í landi sem er ríkt af auðlindum – bæði af hendi náttúrunnar og mannauði. Með góðum vilja og réttum ákvörðunum getum við öll notið mannsæmandi lífskjara á […]

1. maí ávarp forseta ASÍ

Úr ávarpi forseta ASÍ sem birt er í vefriti Vinnunnar. …“ Í okkar ríka samfélagi með gjöfulum fiskimiðum, orkunni sem streymir úr iðrum jarðar og eftirsóknarverðri náttúru á enginn að líða skort. Þær raddir heyrast frá viðsemjendum og jafnvel stjórnvöldum að laun á Íslandi séu of há, útflutningsgreinarnar eigi að ráða hvað sé til skiptanna […]

1. maí 2021 – „Það er nóg til“

Annað árið í röð og í annað skiptið síðan 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar. Líkt og í fyrra er brugðist við þessari stöðu með útsendingu frá sérstakri skemmti-og baráttusamkomu sem verður sjónvarpað á RÚV að kvöldi 1. maí (kl. 21:00).Landsþekktir tónlistarmenn, skemmtiatriði og […]

Fyrstu úthlutun um orlofsdvöl sumarið 2021 lokið

Fyrstu úthlutun um orlofsdvöl er lokið og alls bárust 119 umsóknir sem er sprenging frá árinu 2020, en þá voru umsóknir eingöngu 59. Af þessum orsökum var ekki hægt að verða við öllum óskum um fyrsta val og varð að synja 50 umsóknum sem hafa þá alltaf möguleika að sækja um önnur laus tímabil. Þess […]

Verkalýðsfélagið Baldur á Ísafirði 105 ára í dag

Verkalýðsfélagið Baldur var stofnað af verkafólki á Ísafirði 1. apríl árið 1916. Á þeim tíma var mikill uppgangur í bænum, vélbátum fjölgaði ört og mikil atvinna var hjá stóru verslununum sem jafnframt stóðu að útgerð og saltfiskverkun. Á stuttum tíma söfnuðust meir en 400 nöfn á félagalista Verkamannafélags Ísfirðinga, bæði sjómenn og landverkafólk, karlar jafnt […]

Ograniczony dostęp do biur Verk Vest z powodu Covid-19

W świetle decyzji rządu i zaleceń epidemiologa, zachęcamy członków do korzystania z komunikacji elektronicznej z pracownikami stowarzyszenia. Praca w biurach pozostanie niezmieniona, z wyjątkiem tego, że drzwi będą teraz zamknięte, więc osoby, które potrzebują dostępu do kluczy lub muszą odbyć rozmowę osobista , muszą umówić się na wizytę dzwoniąc pod numer 456-5190 lub e-mailem pod […]

Stofnanasamningur undirritaður við Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur

Í hádeginu í gær var undirritaður stofnanasamningur Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða við Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur. Samningurinn byggir á kjarasamningi ríkisins við Starfsgreinasambandið sem undirritaður var 6. mars 2020. Samningurinn tekur til 107 starfsmanna stofnunarinnar á öllum starfsstöðvum. Flest störfin eru í aðhlynningu á hjúkrunarheimilum, við ræstingu og í eldhúsum. Veruleg kjarabót er fólgin […]

Takmarkað aðgengi að skrifstofum Verk Vest vegna Covid-19

Í ljósi ákvörðunar ríkisstjórnar og tilmæla sóttvarnarlæknis hvetjum við félagsmenn til að nýta rafræn samskipti við starfsfólk félagsins. Starfsemi á skrifstofum félagsins verður óbreytt að því undanskildu að nú verður hurðin læst, þannig að þeir sem þurfa nálgast lykla eða þurfa nauðsynlega að eiga samtal þurfa að bóka tíma í síma 456-5190 eða með tölvupósti […]

Sumarúthlutun orlofshúsa

Þann 15. mars verður opnað fyrir umsóknir um orlofshús hjá Verk Vest sumarið 2021. Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins og sótt um með því að velja: Sumar. Félagið býður upp á orlofshús fyrir félagsmenn í öllum landshlutum sumarið 2021. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Einarsstaðir á héraði Flókalundur […]

SUMARÚTHLUTUN ORLOFSHÚSA

Þann 21. mars verður opnað fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir sumarið 2022. Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins  http://orlof.is/verkvest/ og sótt um með því að velja: Sumar. Félagið á orlofshús fyrir félagsmenn í öllum landshlutum sumarið 2022. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Félagið býður upp á orlofshús fyrir félagsmenn […]

Öryggismál sjómanna – Drífa Snædal skrifar

Enn eru menn sem voru í áhöfninni á Júlíusi Geirmundssyni að glíma við eftirköst covid-veikindanna sem komu upp um borð. Skipstjórinn lagði heilsu áhafnarinnar í hættu með því að halda áfram veiðiferð þrátt fyrir smit meðal áhafnarinnar. Enn er of snemmt að segja hvort einstaka sjómenn nái sér að fullu en nú eru fimm mánuðir […]

Mínar síður fyrir félagsmenn Verk Vest

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur opnað Mínar síður fyrir félagsmenn á heimasíðu félagsins. Á mínum síðum geta félagsmenn: Sótt um styrki Bætt fylgiskjölum við umsóknir Séð stöðu umsókna Uppfært persónuupplýsingar Skoðað áður afgreiddar umsóknir Til að fá aðgang að Mínum síðum þarftu að vera með rafræn skilríki eða Íslykil. Þú getur sótt um Íslykil inn á mínum […]

Greiðslur úr félagsmannasjóði til starfsmanna sveitafélaga

Félagsmenn Verk Vest starfa hjá sveitarfélögum fá í samræmi við síðustu kjarasamninga greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð SGS. Greitt var úr sjóðnum í fyrsta sinn 1. febrúar síðastliðinn og hafa nú verið greiddar rúmar 218 milljónir króna til tæplega 5.000 félagsmanna. Félagsmönnum Verk Vest, sem starfa hjá sveitarfélögum, og ekki hafa fengið greitt […]

Veiðileyfi í neðsta svæði Norðurár sumarið 2021

Í ár eins og undanfarin ár býðst félagsmönnum Verk Vest sem dvelja í Svignaskarði að kaupa veiðileyfi í neðsta veiðisvæði Norðurár. Veiðitímabilið frá 7. júní til 14. september. Forgangur til þeirra félagsmanna sem hafa fengið úthlutað húsi í sumar er til 1. júní. Opið verður fyrir almennar pantanir eftir það. Leigjendur á hverjum tíma geta […]

Atvinnulausir njóta almennt ekki afsláttar á leikskóla- eða dagvistunargjöldum

Aðeins Akureyri og Garðabær bjóða upp á lægri leikskólagjöld fyrir atvinnulausa, af þeim 15 sveitarfélögum sem úttekt verðlagseftirlits ASÍ á breytingum á leikskólagjöldum og gjöldum fyrir skóladagvistun og skólamat nær til. Ekkert sveitarfélag er með lægri skóladagvistunargjöld fyrir atvinnulausa. Hafa ber í huga að þrátt fyrir að sum sveitarfélög séu með afslætti fyrir forgangshópa en […]

Mýtan um gott líf á atvinnuleysisbótum hrakin í nýrri skýrslu Vörðu

Um fjórðungur launafólks á erfitt með að ná endum saman samkvæmt nýrri könnun Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Erfiðleikarnir mestir hjá atvinnulausum og innflytjendum, eins og fram kom á veffundi nú í hádeginu þar sem niðurstöðurnar voru kynntar. Varða lagði nýverið könnun fyrir félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands og BSRB þar sem spurt var um stöðu […]

WAŻNA WIADOMOŚĆ!

Czy jesteś członkiem w Verk Vest? Czy w zeszłym roku pracowałeś dla gminy? A może przestałeś pracować w gminie w zeszłym roku? W umowie płacowej między Verk Vest a gminami utworzono specjalny fundusz członków ! Pracodawca wpłaca miesięczną składkę do funduszu w wysokości 1,5% całkowitego wynagrodzenia członka związków i jest wypłacana z funduszu 1 lutego […]

Félagsmannasjóður – ÁRÍÐANDI SKILABOÐ!

Ertu félagsmaður í Verk Vest? Starfaðir þú hjá sveitarfélagi á síðasta ári? Eða hættir þú vinnu hjá sveitarfélag á síðasta ári? Í kjarasamningi Verk Vest við sveitafélög var stofnaður sérstakur félagsmannasjóður. Atvinnurekandi greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanns og er greitt úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert. Allir félagsmenn Verk […]

Mikilvægur dómur um talningu veikindadaga

Á síðustu árum hefur ítrekað komið til ágreinings milli ASÍ og SA um hvernig telja skuli veikindadaga. SA hefur haldið því fram að telja skuli almanaksdaga í forföllum en ASÍ haldið því fram að einungis skuli telja þá daga sem launamaður hefði að óbreyttu átt að vinna. Félagsdómur staðfesti túlkun ASÍ með dómi sínum þann […]

Hvatning til sjómanna í Verk Vest

Verkalýðsfélag Vestfirðinga vill benda félagsmönnum sínum á að óski útgerð eftir því við skipverja að mætt skuli í Covid-skimun áður en farið er á sjó sé ÖLLUM skylt að mæta. Slíkar skimanir eru til að tryggja öryggi og velferð allra skipverja. Víki skipverji sér undan því að mæta í skimun getur viðkomandi átt á hættu […]

Gríptu tækifærið – frí námskeið fyrir félagsmenn !

Frítt starfsmiðað nám í boði fyrir félagsmenn stéttarfélaga á landsbyggðinni. Starfsmenntasjóðirnir Landsmennt, Ríkismennt, Sveitamennt og Sjómennt hafa gert tilraunasamning við NTV skólann um starfsmiðað fjarnám fyrir félagsmenn sína á landsbyggðinni. Námsleiðirnar sem eru að hefjast núna í febrúar eru:– Bókhald grunnur– Skrifstofu- & tölvufærni– Digital Marketing– App & Vefhönnun– Frá hugmynd að eigin rekstri– Vefsíðugerð […]

Skipstjórinn á Júlíusi Geirmundssyni játaði sök fyrir dómi; málinu lokið

Skipstjórinn á Júlíusi Geirmundssyni í hinni margumtöluðu Covid-veiðiferð í september og október sl. játaði sök í málinu fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í gær. Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur ekki enn upplýsingar frá fyrstu hendi varðandi málið, en samkvæmt upplýsingum félagsins var skipstjórinn dæmdur til vægrar sektargreiðslu og missi skipstjórnarréttinda í fjóra mánuði. Skipverjum er mjög létt við að […]

Kjaraviðræður og aukin harka á vinnumarkaði ásamt Covid-19 málum settu sterkan svip á starfsemi Verkalýðsfélags Vestfirðinga árið 2020

Í upphafi nýs árs þykir okkur hjá Verk Vest mikilvægt að rifja upp að rauði þráðurinn í áróðursmaskínu atvinnurekenda í hinni svokölluðu Kovíd-kreppu hafi verið að nú ætti launafólk að sýna ábyrgð. Helsta lausn atvinnurekenda í þeim efnum, þegar efnahagshrun og atvinnuleysi sem dundi yfir í kjölfar Covid19, var í raun að taka kajarasamninga úr […]

Heimsóknarbanni aflétt á skrifstofum Verk Vest

Öllum hömlum hefur nú verið aflétt varðandi heimsóknir á skrifstofur félagsins og ekki þarf lengur að panta tíma fyrirfram. Engu að síður hvetjum við félagsmenn okkar til að halda áfram að nýta sér rafræn samskipti og gesti til að gæta sóttvarna til að lágmarka smithættu.

Kosið í deildarstjórnir hjá Verk Vest

Á aðalfundi starfsgreinadeilda sem haldinn var þriðjudaginn 12. janúar var kosið í stjórnir deilda. Formenn starfsgreinadeilda eiga fast sæti í stjórn Verk Vest. Samkvæmt lögum Verk Vest eru starfandi 5 starfsgreinadeildir og fengu eftirtaldir einstaklingar kosningu. Matvæla- og þjónustudeild ( SGS ) Aðalmenn Gunnhildur B. Elíasdóttir Ísl. sjávarfang Þingeyri – formaður Jóhanna B. Ragnarsdóttir Hólmadrangur […]

AUGLÝSING UM KOSNINGU TIL STJÓRNAR VERK VEST

Samkvæmt 19 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2021 til 2023 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu.Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga og […]

Starfsmenntastyrkir verslunar- og skrifstofufólks

Við hvetjum okkar félagsmenn til að nýta sér styrki sem í boði eru til náms, en aukin þekking getur nýst til að gera starfsmanninn betri og öruggari starfskraft auk þess sem það getur haft áhrif á laun. Hér má sjá dæmi um hvernig fólk hefur nýtt sér þessa styrki. Nánari upplýsingar um styrki eru hér.

Dagbækur 2021

Dagbækur Verk Vest fyrir árið 2021 eru loksins komnar og verða aðgengilegar á skrifstofum félagsins á Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði.