Aðalfundur deilda Verk Vest og Trúnaðarráðs

Boðað er til sameiginlegs aðalfundar starfsgreinadeilda Verk Vest og fundar trúnaðarráðs Verk Vest þriðjudaginn 12. janúar kl.18:00. Fundurinn verður haldinn á efstu hæð í Alþýðuhúsinu á Ísafirði. Dagskrá. Kosið um tillögu kjörnefndar Verk Vest Kosning í stjónir starfsgreinadeilda Matvæla og þjónustudeild SGS Opinber deild SGS Deild verlsunar- og skrifstofufólks Iðnaðardeild Önnur mál. Vegna sóttvarna verður […]

Jólafundur sjómannadeildar

Aðalfundur Sjómannadeildar Verk Vest verður haldinn í Alþýðuhúsinu á efstu hæð II Jóladag kl.14:00, en einnig verður boðið upp á fjarfund fyrir þá félagsmenn sem það kjósa. Dagskrá fundarins Kosning deildarstjórnar Kjaramál sjómanna Síðustu kjarasamningum gerð skil Afdrif bókana síðustu kjarasamninga Félagsdómsmál um kauptryggingu Félagsdómsmál um hálfa prósentið Félagsdómsmál um aðstoðarmann matsveins Staðan í samningaviðræðum […]

Fréttatilkynning frá formannafundi SGS

Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af því hvernig gengur að innleiða og skipuleggja styttri vinnuviku hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Í kjarasamningum sem undirritaðir voru síðasta vor var samið um styttingu vinnuvikunnar. Í samningum er lögð áhersla á að það fari fram alvöru samtal milli starfsmanna og stjórnenda um fyrirkomulag og innleiðingu á hverri stofnun/starfsstöð […]

Skil á gögnum fyrir fræðslusjóði og Sjúkrasjóð

Síðasta greiðsla dagpeninga og styrkja hjá Verk Vest og Félagi járniðnaðarmanna vegna desembermánaðar fer fram 22. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári. Skila þarf gögnum til félagsins í síðasta lagi fimmtudaginn 17. desember nk. til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í janúar 2021.

Framlenging á fræðsluátaki fræðslusjóðanna! Til 1.apríl 2021

Fræðslusjóðirnir, Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt, hafa ákveðið að framlengja fræðsluátak sjóðanna sem sett var af stað sl. vor f.o.m. 15.mars 2020. Samningar við fræðsluaðila; Gerðir voru samningar við fræðsluaðila sem bjóða upp á vefnám/fjarnám (einnig staðbundið þegar það er hægt vegna Covid)þar sem fyrirtækjum og einstaklingum er boðin þátttaka í námi/námskeiðum þeim að kostnaðarlausu. […]

Sjóprófi lokið

Nú er sjóprófi um Covid-veiðiferð Júlíusar Geirmundssonar lokið og rétt að gera málinu skil. Sjóprófið gekk mjög vel að okkar mati, en 16 skipverjar voru beðnir um að mæta og bera vitni og ekki nema tveir báðust undan mætingu, þannig að 14 skipverjar auk umdæmislækni sóttvarna á Vestfjörðum báru vitni. Tilgangur sjóprófa er að draga […]

Rafrænn fulltrúaráðs- og sjóðsfélagafundur Gildis

Fimmtudaginn 3. desember næstkomandi heldur Gildi-lífeyrissjóður opinn fund fyrir fulltrúaráð og sjóðfélaga. Í ljósi samkomutakmarkana vegna útbreiðslu Covid-19 verður fundurinn að þessu sinni rafrænn. Dagskrá: Staða og starfsemi Gildis á COVID-19 ári Fjárfestingar Gildis Önnur mál Hægt verður að horfa á fyrirlestra á netinu og senda fyrirspurnir á frummælendur.

Ný launareiknivél SGS

Ertu óviss hvort verið er að borga þér laun samkvæmt kjarasamningum? Ef svo er hvetjum við þig til að skoða nýju launareiknivél SGS. Þar er hægt að reikna út laun miðað við kjarasamninga SGS á almennum markaði, við ríki og sveitarfélög og með þeim hætti athuga hvort launaseðlar eru réttir. Byrjaðu á að velja þitt […]

Desemberuppbót 2020

Desemberuppbót skal greidd ekki síðar en 15. desember, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Fullt ársstarf telst 45 unnar vikur eða meira. Full desemberuppbót 2020 er sem hér segir: Verkafólk, starfsmenn […]

Vinnur þú hjá ríkisstofnun eða sveitafélagi?

Ertu félagi í Verk Vest og starfar hjá ríkisstofnun eða sveitafélagi? Ef svo er þá styttist vinnuvikan hjá þér í allt að 36 virkar vinnustundir á nýju ári. Innleiðing á styttingu vinnuvikunnar á að vera í gangi á þínum vinnustað og á að vera lokið fyrir 31.desember 2020. Við hvetjum þig til að skoða nánari […]

Er Lífskjarasamningurinn að murka lífið úr veitingageiranum?

Í morgunútvarpinu á Bylgunni 10. nóvember var rætt við Emil Helga Lárusson, stjórnarformann Serrano. Umræðuefnið var ný skýrsla KPMG fyrir Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði sem hefur orðið til fréttaflutnings undir fyrirsögnunum „Veitingarekstur á vonarvöl – Launakostnaður veitingareksturs á Íslandi er sá langhæsti á Norðurlöndunum“ á síðu Veitingageirans, „Veitingarekstur á vonarvöl“ í Fréttablaðinu og „Jólin gætu […]

Illugastaðir og Ölfusborgir loka tímabundið vegna Covid19

Vegna hertra sóttvarnareglna hafa stjórnir orlofsbyggðanna á Illugastöðum og í Ölfusborgum tekið ákvarðanir um að loka fyrir bókanir í byggðunum. Ákvarðanir um lokanir voru teknar í samráði við aðgerðastjórnir almannavarna á viðkomandi svæðum til að takmarka útbreiðslu smita á Covid19. Sumarhús félagsins í Ölfusborgum verða því lokuð fyrir bókunum til 20. nóvember og haft verður […]

Útgerðin neitar að afhenda skipsdagbók

Útgerðin Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. hefur neitað að afhenda skipsdagsbók Júlíusar Geirmundssonar ÍS 270 fyrir sjópróf sem mun fara fram vegna hópsmits um borð í togaranum. Skylda útgerðarinnar til að afhenda skipsdagbókina er skýr samkvæmt siglingalögum. Útgerðin ber fyrir sig persónuverndarsjónarmiðum. Stéttarfélög skipverja telja þessa afstöðu útgerðarinnar fordæmalausa, óeðlilega og á skjön við lögmælta skyldu. Skylda til […]

Miðstjórn ASÍ styður kröfur ÖBÍ

Miðstjórn ASÍ samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum 4. nóvember 2020. Tryggjum afkomuöryggi allra Miðstjórn Alþýðusambandsins styður kröfu Öryrkjabandalags Íslands um að endurhæfingar- og örorkulífeyrir verði hækkaður svo að hann fylgi kjarasamningsbundnum taxtahækkunum. Ekki er hægt að samþykkja að stórum hópi fólks sem býr við skerta starfgetu sé haldið í fátækt. Slíkt er ekki sæmandi […]

TAKMARKAÐ AÐGENGI AÐ SKRIFSTOFUM FÉLAGSINS VEGNA COVID-19

Í ljósi tilmæla Sóttvarnarlæknis hvetjum við félagsmenn til að nýta sér rafræn samskipti. Starfsemi verður óbreytt á skrifstofum félagsins að því undanskildu að nú verður hurðin læst, þannig að þeir sem óska afgreiðslu á staðnum þurfa að bóka tíma áður en þeir koma í síma 456-5190. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann […]

Fiskiskip – Leiðbeiningar um smitgát

Stéttarfélög sjómanna og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi í samráði við embætti landlæknis hafa gefið út endurbættar leiðbeiningar um smitgát og viðbrögð ef grundur er um smit um borð í fiskiskipuum. Leiðbeiningarnar eru sambærilegar þeim sem sendar voru út í vetur, en hafa verið uppfærðar. Leiðbeiningarnar hafa verið yfirfarnar að landlæknisembættinu og eru sendar til allra […]

Mál skipverja á Júlíusi Geirmundssyni ÍS-270 komið í viðeigandi ferli

Stéttarfélög skipverja á Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 hafa sent kröfu til Héraðsdóms Vestfjarða að fram fari sjópróf vegna hópsmits um borð í togaranum og jafnframt sent lögreglustjóranum á Vestfjörðum kæru þar sem útgerð og fyrirsvarsmenn hennar eru kærð til lögreglu vegna mögulegra brota á sjómannalögum, sóttvarnarlögum og almennum hegningarlögum. Stéttarfélögin ítreka að nauðsynlegt er að […]

Félagsmenn fá námskeið hjá NTV að fullu niðurgreidd*

Gerður hefur verið samningur við NTV skólann um fulla fjármögnun á 6 námskeiðum/námsleiðum sem allt eru starfsþróunarmiðuð og verkefnadrifin fjarnámskeið sem boðið verður upp á í samstarfi við aðildarfélög Landsmenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og Sjómenntar. Félagsmenn aðildarfélaga sjóðanna munu fá námskeið að fullu niðurgreidd. Einstaklingar skrá sig hjá NTV skólanum eða í gegnum sitt stéttarfélag og […]

Fjarnámskeið: Óvissa og einmanaleiki

Nú er tækifæri til að styrkja sig í leik og starfi, en þetta námskeið er ætlað þeim sem vinna við umönnunarstörf t.d. á hjúkrunarheimilum og öðrum stofnunum en er opið öllum sem málið varðar. Nánari upplýsingar á vef Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða. https://www.frmst.is/nam/endur-_og_simenntun/Ovissa_og_einmanaleiki/

Stéttarfélög skipverja taka saman höndum

Stéttarfélög skipverja á Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 funduðu með lögmönnum í morgun um sameiginlegar aðgerðir vegna framgöngu Hraðfrystihússins Gunnvarar hf. og hunsun á tilmælum yfirvalda um viðbrögð við hópsmiti um borð í togaranum. Stéttarfélögin telja þessa framgöngu vítaverða og hafa ákveðið bæði að kæra málið til lögreglu og krefjast þess að fram fari sjópróf. Stéttarfélögin […]

Óvægin umræða á samfélagsmiðlum

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur til meðferðar mál skipverja á Júlíusi Geirmundssyni ÍS-270 og vill beina eftirfarandi tilmælum til þeirra sem vilja láta sig þetta mál varða: Málið er litið mjög alvarlegum augum hjá félaginu og verður málið unnið með hagsmuni félagsmanna að leiðarljósi. Hins vegar hefur mjög óvægin og oft á tíðum ósmekkleg umræða átt sér […]

„Skelfilegt ástand“ segja skipverjar Júlíusar Geirmundssonar um síðustu veiðiferð

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hélt fund með skipverjum af Júlíusi Geirmundssyni í framhaldi af hópsmiti sem skipverjar urðu fyrir í kjölfar þess að útgerð hunsaði tilmæli um viðbrögð frá sóttvarnaryfirvöldum. Á þriðja tug skipverja sóttu fundinn, sem var bæði staðfundur fyrir þá sem ekki tóku þátt í umræddri veiðiferð og einnig fjarfundur fyrir þá sem höfðu sýkst […]

Langar þig á fjarnámskeið?

Fræðslumiðstöð Vestfjarða heldur fjarnámskeið í Teams og OneDrive 27. október nk. Nánari uppýsingar á vef FRMST hér.

Yfirlýsing frá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga vegna Covid hópsmits um borð í Júlíusi Geirmundssyni

Verkalýðsfélag Vestfirðinga fordæmir það fullkomna virðingarleysi sem útgerð frystitogarans Júlíusar Geirmundssonar ÍS 270 sýndi skipverjum með því að halda skipi til veiða þrátt fyrir ítrekuð tilmæli umdæmislæknis sóttvarna á Vestfjörðum, að koma skipverjum strax til sýnatöku vegna gruns um Covid 19 smit hjá áhafnarmeðlimum. Útgerðin hunsaði með því einnig viðbragðsáætlun Sjómannasambands Íslands um smitgát og […]

Opnum fyrir umsóknir um jól og áramót þriðjudaginn 20. október

Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir jól og áramót 2020, þriðjudaginn 20. október kl. 9:30. Orlofshúsin eru sem eru í úthlutun eru: íbúðir í Kópavogi og íbúð á Akureyri, Svignaskarð og Ölfusborgir. Umsóknarfrestur verður til 4.nóvember og mun úthlutun fara fram þann 5. nóvember.

Vertu starfsmaður 21. aldarinnar !

Mímir símenntun býður upp á hagnýtt námskeið fyrir alla þá sem þurfa og vilja styrkja sig í tækni. Á námskeiðinu, sem er kennt í fjarnámi, er leitast við að efla einstaklinga í þeirri tækni sem mest ákall er um að einstaklingar tileinki sér til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Námskeiðið snýr að því að […]

Afbókanir orlofsíbúða vegna hertra sóttvarnareglna

Vegna hertra sóttvarnarreglna á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ákveðið að koma á móts við félagsmenn sem eiga bókaðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og vilja afbóka. Nú er aftur farið að fresta hinum ýmsu viðburðum vegna COVID-19 og mælst er til að fólk sé ekki að ferðast að óþörfu til höfuðborgarsvæðisins. Félagsmenn eru þegar farnir að hafa samband […]

Verk Vest hvetur til rafrænna samskipta

Ný reglugerð um hertar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu COVID-19 hafa tekið gildi og leggur Verk Vest áherslu á að fylgja tilmælum um hertar sóttvarnir. Meginreglan er að hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman er 20 manns. Vegna þessa vill starfsfólk Verk Vest enn og aftur hvetja félagsmenn til að nýta sér síma, tölvupóst […]