Aukin verkefni hjá ráðgjafa VIRK á Vestfjörðum

Vegna mikillar aukningar á verkefnum ráðgjafa VIRK á Vestfjörðum, sem Fanney Pálsdóttir sinnir, var ákveðið að auka starfshlutfall þannig að viðvera ráðgjafa er eftirleiðis frá kl.08:00 – 14:00 alla virka daga. Starfsemi VIRK hefur verið að skila umtalsverðum árangri til skjólstæðinga stéttarfélaganna á Vestfjörðum eins og dæmin sanna. En meiginverkefni VIRK er að skipuleggja og […]
Aðgerðir hafnar, 83,5% vilja verkafall í fiskimjölsverksmiðjum til að knýja á um gerð nýs kjarasamnings !

Ljóst er að mikil hugur er í bræðslumönnum og hann hefur ekki minnkað við síðasta útspil Samtaka atvinnulífsins. Atkvæði voru talin á skrifstofu Starfsgreinasambandsins í morgun. Starfsfólk í fiskimjölsverksmiðjum á Austurlandi og í Vestmannaeyjum, félagsmenn Starfsgreinasambandsfélaganna Afls á Austurlandi og Drífanda í Vestmannaeyjum, hefur samþykkt að boða til verkfalls 7. febrúar n.k. í fiskimjölsverksmiðjum á […]
ASÍ gagnrýnir þvingunaraðgerðir Samtaka atvinnulífsins.

Miðstjórn ASÍ lýsir yfir megnri óánægju með þá stöðu sem upp er komin í yfirstandandi kjarasamningsviðræðum. Samningsaðilar hafa á undanförnum vikum kannað forsendur fyrir því að samið verði til allt að þriggja ára á grundvelli samræmdrar launastefnu og aðgerðaáætlunar í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum. Allt benti til þess að hægt væri að ná breiðri samstöðu um slíka leið. Nú hafa Samtök atvinnulífsins lýst því yfir að samtökin muni taka efni slíks samnings og nota sem þvingunaraðgerð við stjórnvöld til að knýja fram að væntanlegar breytingar á fiskveiðistjórnarlöggjöfinni verði þóknanlegar LÍÚ.
Samtök atvinnulífsins klúðra eigin hugmyndafræði !

Fyrsti fundur samninganefndar Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins, eftir að kjaradeilunni var vísað til Ríkissáttasemjara þann 16. þ.m., var haldinn hjá sáttasemjara í morgun.
Ljóst er að mikið ber í milli samningsaðila. Samtök atvinnulífsins lýstu þeirri kröfu sinni að ekki yrði samið á almennum vinnumarkaði nema gengið væri fyrst frá málefnum sjávarútvegsins innan ríkisstjórnarinnar. Þessi krafa SA var ekki til umræðu þegar samningsaðilar hittust þann 7. janúar. Þá óskaði SA eftir því við Starfsgreinasambandið að samið yrði um samræmda launastefnu til 3ja ára, m.a. til að tryggja stöðugleika og atvinnuppbyggingu hér á landi. Þeim sjónarmiðum svaraði samninganefnd SGS á jákvæðum nótum og því kemur það verulega á óvart að SA geri nú kröfu um að blanda málefnum sjávarútvegsins inn í kjaraviðræðurnar þegar viðræðurnar virtust vera að falla í farveg. Krafa SA núna verður ekki túlkuð öðruvísi en svo að Samtök atvinnulífsins hafni sinni eigin hugmyndafræði.
Hlúum að því sem fyrir er !

Mikið hefur verið rætt um hvernig eigi að bjarga atvinnulífinu á Flateyri. Kastað hefur verið fram í umræðuna upphrópunum um að margir hafi sýnt því áhuga að hefja vinnslu á nýjan leik. Við þessar aðstæður er þetta ekki það sem fólk sem hefur misst atvinnuna þarf að heyra. Fólkið vill staðreyndir og raunveruleika, hvað blasir við og hvernig það geti framfleytt sér og sínum við breyttar aðstæður. Þetta kom fram á fundi sem haldinn var með fyrrverandi starfsmönnum Eyrarodda hf. í Félagsbæ á Flateyri í gær. Fjárhagsleg aðstoð Verkalýðsfélags Vestfirðinga hrekkur skammt og atvinnuleysis-bætur koma ekki fyrr en í byrjun mars. Nei þetta dugir ekki til, hér þurfa að koma til bráðaaðgerðir, aðgerðir sem felast í því að hlúa að því sem fyrir er, bæði mannlífi og atvinnulífi.
Starfsgreinasambandið vill skoða samræmda launastefnu.

Á fundi samninganefndar Starfsgreinasambandins, annarra en Flóafélanna þriggja, sem haldinn var í dag gerðu fulltrúar aðildarfélaganna grein fyrir afstöðu viðkomandi félaga til hugmynda að samræmdri launastefnu á vinnumarkaði. Tólf félög samþykktu að skoða nánar hugmyndir um samræmda launastefnu, þó með ýmsum fyrirvörum. Tvö félög voru andvíg þessum sjónarmiðum en fulltrúar tveggja félaga voru fjarverandi. Samninganefndin […]
Kjaradeilu Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins vísað til ríkissáttasemjara

Á fundi samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands(SGS) f.h. aðildarfélaga sinna annarra en Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis sem haldinn var í dag, var samþykkt að vísa kjaradeilu SGS við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Að mati samninganefndarinnar hefur hægt miðað og því sé mikilvægt að þrýsta á um markvissari viðræður sem leiddar […]
Þingeyringar athugið !

Áður frestuðum deildaraðalfundi Brynju deildar í Verk Vest verður haldinn mánudaginn 10. janúar kl. 20.00 í húsnæði félagsins Fjarðargötu 2 á Þingeyri, Sparisjóðshúsinu. Gestir fundarins verða formaður og varaformaður Verk Vest. Dagskrá. 1. Kosning deildarstjórnar og varamanna 2. Kjaramál 3. önnur mál Félagsmenn Verk Vest á Þingeyri eru hvattir til að mæta á fundinn og […]
Nýr skrifstofustjóri tekur til starfa

Eins hefur komið fram hér á vefnum þá var auglýst eftir skrifstofustjóra fyrir skrifstofu verkalýðsfélaganna á Ísafirði. Alls bárust 18 umsóknir um starfið, allt mjög hæfir einstaklingar. Úr hópi umsækjanda var ákveðið að ráða Friðgerði Ebbu Sturludóttur. Ebba mun koma í stað Karitasar Pálsdóttur sem hefur þjónað félagsmönnum hátt í 30 ár, bæði í trúnaðarstörfum […]
Ný stjórn í sjómannadeild Verk Vest

Á deildaraðalfundi sjómanna í Verk Vest sem haldinn var í gær var kjörin ný stjórn, en hana skipa eftirfarandi: Sævar Gestsson, formaður, Grétar Þór Magnússon, varaformaður, Ólafur Skúlason, meðstjórnandi. Til vara eru Magnús Björgvinsson, Símon Viggósson og Höskuldur B. Gunnarsson. Á fundinum urðu líflegar umræður um kjaramál sjómanna, þá voru öryggis- og fræðslumál einnig mjög […]
Deiladaraðalfurndur Brynju deildar Verk Vest á Þingeyri

Aðalfundur Brynju, deildar Verk Vest á Þingeyri, verður haldinn í húsnæði félagsins að Fjarðargötu 2 , Sparisjóðshúsinu, miðvikudaginn 29.desember kl. 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf: 1. Kosning stjórnar. 2. Önnur mál. Mætum nú og sínum samstöðu í kjarabaráttunni. Stjórn Brynju Þingeyri.
Öldrunardeild á Ptreksfirði færðar gjafir

Stjórn sjúkrasjóðs Verk Vest afhenti öldrunardeild Heilbrigðisstofnunar á Patreksfirði veglegann flatskjá ásamt veggfestingum að gjöf. Tækið sem var fyrir var nánast ónýtt og ekki fyrirsjáanlegt að farið yrði í endurnýjun eftir niðurskurðartillögur til heilbrigðismála á Vestfjörðum. Vistmenn voru að vonum mjög þakklátir með framtakið enda nýja tækið allt hið vandaðasta. Starfsfólk og vistmenn eru mjög […]
Deildaraðalfundur sjómannadeildar Verk Vest

Deildaraðalfundur sjómannadeildar Verk Vest verður haldinn mánudaginn 27.desember kl. 17.00 í fundarsal félagsins Pólgötu 2 á Ísafirði. Dagskrá. Kosning deildarstjórnar og varamanna Kjaramál Fræðslumál sjómanna önnur mál Sjómenn í Verk Vest eru hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér málefni sjómanna í kjara- og fræðslumálum.
Deildaraðalfundur Sjómannadeildar Verk Vest
Aðalfundur Sjómannadeildar Verk Vest verður haldinn annann í jólum kl.17.00 í húsi félagsins á Ísafirði. Sjá nánar í auglýsingu hér til hliðar.
Fréttablað Verk Vest komið út

Þessa dagana ætti Fréttabréf Verk Vest að berast félagsmönnum, en blaðið fór í dreifingu hjá Íslandspósti 15.desember. Í blaðinu kennir margra grasa og má þar nefna kafla úr fyrsta bindi sögu verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum Vindur í seglum þar sem sagt er frá verkfallinu í Hnífsdal 1927. Þá er einnig samantekt um Alþýðuhúsið sem varð 75 […]
Bakkavör ræðst á verkafólk í Bretlandi

Nú hafa þeir Bakkabræður, Ágúst og Lýður Guðmundssynir ráðist til atlögu gegn verkafólki við ávaxta- og grænmetisiðju Bakkavarar í Bourne í Lincolnshire í Englandi. Störf eru britjuð niður, laun lækkuð og vinnuskilyrði skert. Þau voru þó fyrir ein þau lökustu í Bretlandi. Efnt verður til mótmælaaðgerða, kröfugöngu og útifundar föstudaginn 17. desember í Spalding þar […]
DAGBÓKIN 2011

Dagbókin 2011 er komin, félagsmenn geta nálgast hana á skrifstofu félagsins. Dagbókin er einnig komin í dreifingu til deildarformanna sem hefur verið falið að koma dagbókinni inn á vinnustaði á svæðadeildum Verk Vest. Þannig ættu sem flestir félagsmenn að geta nálgast eintak. Einnig er hægt að vera í sambandi við skrifstofu félagsins og fá bókina […]
Megináherslur Starfsgreinasambandsins afhentar samninganefndum ríkis og sveitarfélaga

Kröfugerðir samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands f.h. aðildarfélaga sinna voru kynntar samninganefndum ríkis og sveitarfélaga í dag og í gær. Samninganefnd Starfsgreinasambandins vill stuðla að stöðugleika svo að takast megi að auka kaupmátt, skapa ný störf og létta á böli atvinnuleysisins og þeim fjárhagsvanda sem fjölskyldur í landinu glíma við. Almennar launahækkanir verða að koma til framkvæmda […]
Áherslur og kröfur Starfsgreinasambandsins lagðar fram hjá Samtökum atvinnulífsins

Kröfugerð samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands f.h. aðildarfélaga sinna annarra en Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur var kynnt Samtök atvinnulífsins í dag á fyrsta formlega samningafundi aðila, en kjarasamningurinn rann út þann 30. nóvember s.l. Samninganefnd Starfsgreinasambandins vill stuðla að stöðugleika svo að takast megi að auka kaupmátt, skapa ný störf og létta […]
Útför Ingbjargar R. Guðmundsdóttur fer fram í dag

Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og fyrrverandi varaforseti Alþýðusambands Íslands, lést miðvikudaginn 24. nóvember á Landspítalanum við Hringbraut, 61 árs að aldri. Ingibjörg fæddist í Reykjavík 19. ágúst 1949, dóttir hjónanna Guðmundar Jónssonar frá Eyrarbakka og Helgu Sigríðar Eiríksdóttur frá Reykjavík. Systir Ingibjargar var María, f. 1943 en hún lést 1980. Ingibjörg lætur eftir sig kjörsynina Bjarna Jónsson og Andrés Jón Esrason.
Ingibjörg starfaði lengst af hjá Flugleiðum og fyrir verkalýðshreyfinguna í rúmlega 30 ár. Hún sat í stjórn VR í alls 14 ár frá árinu 1975, þá aðeins 26 ára gömul. Hún var kosin formaður LÍV á þingi sambandsins árið 1989 og er eina konan sem gegnt hefur embætti formanns landssambands innan ASÍ.
Þing sjómannasambands Íslands

27. þingi Sjómannasambands Íslands ( SSÍ ) sett var í dag. Þingið er haldið á Grand Hótel í Reykjavík og hófst dagskrá þess með ávarpi formanns Sjómannasambandsins Sævars Gunnarssonar. Í ræðu sinni beindi Sævar spjótum sínum mjög að aðgerðum stjórnvalda í málefnum er varða breytingar á fiskveiðistjórnunarlögum og skipun skipun í marg um rædda sáttanefnd […]
Þing Sjómannasambands Íslands
Þing Sjómannasambands Íslands er haldið í Reykjavík dagana 29. – 30. september. Verkalýðsfélag Vestfirðinga átti rétt á að senda einn fulltrúa frá félaginu á þingið og er Sævar Gestsson, formaður sjómannadeildar Verk Vest, fulltrúi félagsins á þinginu. Eins og áður sagði þá hófst þingið í gær með ávörpum gesta og var einn af ræðumönnum forseti […]
Endurbætur í Svignaskarði

Endurbætur við hús nr. 9 í Svignaskarði eru komnar á fullt skrið, en ætlunin er að stækka húsið þannig að þar verði gisting fyrir 8 manns ásamt því að farið verður í nauðsynlegar endurbætur á innréttingum. Byggingaverktakinn Eiríkur J. Ingólfsson í Borgarnesi vinnur verkið fyrir félagið, en þess má geta að félagið hefur átt mjög […]
Kjararsamningar lausir

Kjarasamningar aðildarfélaga ASÍ og SA eru lausir frá og með deginum í dag en eru þó í fullu gildi þangað til nýjir kjarasamningur hafa verið samþykktir. Kjarasamningar sjómanna renna svo út um áramótin. Landssambönd og félög innan ASÍ hafa frá því í haust verið að móta kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga, formlegar viðræur aðila eru þó […]
Atvinnuleitendur fá desemberuppót

Atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins fá eingreiðslu í desember samkvæmt tillögu Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, sem ríkisstjórnin samþykkti í morgun. Full uppbót er 44.857 krónur en greiðsla hvers og eins reiknast í hlutfalli við rétt hans til atvinnuleysisbóta árið 2010. Uppbótin verður greidd þeim sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember-5. desember á þessu ári og ræðst heildarfjárhæðin af fjölda daga sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun.
Ber okkur gæfu til að standa saman ?

Hvernig heldur þú að komandi kjarasamningar komi til með að ganga? Þessari spurningu er ég spurður að nánast hvern einasta dag og á öllum mannamótum sem ég fer á. Ég svara því til að þetta verði ekki einfaldir samningar og að eitt sé víst ef launafólk í landinu ætlar ekki að ganga í takt þá verði fjandinn laus. Ég fékk góða hvatningu frá félagsmanni á dögunum sem sagði að nú yrði launafólk að sýna hvað alvöru samstaða er og hverju þessi samstaða geti skilað launafólki þegar upp er staðið. Þetta eru orð að sönnu því alvöru samstaða launafólks hefur skilað samfélaginu stærstu sigrunum, en við lifum ekki um alla tíð á sigrum í gömlum orrustum.
Deildarfundur hjá sjómönnum í Verk Vest

Sjómannadeild Verk Vest heldur fund þriðjudaginn 16.nóvember næstkomandi. Sjómenn sem eru í landi á þriðjudaginn eru hvattir til að mæta á fundinn.Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa og varafulltrúa á 27 þing Sjómannasambands Íslands 2. Niðurstöður kjaramálaráðstefnu Verk Vest 3. Önnur mál.
Fjöldauppsagnir á Vestfjörðum

Fiskvinnslufyrirtækið Eyraroddi og jarðverktakafyrirtækið Ósafl tilkynntu á starfsmannafundum í hádeginu í dag að öllu starfsfólki fyrirtækjanna yrði sagt upp störfum frá og með 1.nóvember næst komandi. Alls eru þetta rúmlega 60 einstaklingar sem munu missa vinnuna með þessum neyðarúrræðum fyrirtækjanna sem hópuppsagnir eru. Starfsmenn Ósafls hafa haldið í vonina að eftir að framkvæmdum við jarðgöng milli Hnífsdals og Bolungavíkur lauk að þá yrði settur kraftur í framkvæmdir við snjóflóðagarð í Bolungavík sem einnig hefur verið unnið af Ósafli. Hjá Eyrarodda hefur verið róinn lífróður við að halda fyrirtækinu gangandi frá því um síðustu áramót. Hefur verið farið í ýmsar hagræðingaraðgerðir sem hafa bitnað á starfsfólki í formi uppsagna, en frá áramótum hefur starfsfólki í fiskvinnslu fækkað úr 45 í 28, en hjá fyrirtækinu störfuðu rúmlega 40 einstaklingar við veiðar og vinnslu.
Undirbúningur kjarasamninga – Fundur og námskeið

Vinna og undirbúningur fyrir kjarasamninga og kröfugerðir hjá aðildarfélögum ASÍ er um þessar mundir að ná hámarki. Landssamböndin eru nú hvert af öðru að kalla eftir samningsumboðum og kröfum frá aðildarfélögum svo hægt sé að móta endanlegar kröfur fyrir komandi kjarasamningsgerð. Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að Starfsgreinasambandi Íslands, SGS, Sambandi iðnfélaga, Samiðn, Landssambandi íslenskra verslunarmanna, LÍV og Sjómannasambandi Íslands, SSÍ, þannig að í mörg horn er að líta þegar kemur að kröfugerð félagsins.
Kvennafrídagurinn 24.október – ÁFRAM STELPUR !

Verkalýðsfélag Vestfirðinga beinir þeim eindregnu tilmælum til vinnuveitenda á Vestfjörðum að þeir styðji við bakið á konum á kvennafrídaginn, sem verður haldinn hátíðlegur í dag 25. október, og gefi komun tækifæri til að taka þátt í þeim fundarhöldum sem kunna að vera í dag án þess að laun þeirra verði skert. Á þessum degi fyrir […]