KYNNINGARFUNDUR: Kjarasamningur sjómanna

Kynningarfundur um kjarasamning sjómanna sem var undirritaður 10. febrúar síðastliðinn verður haldinn í kvöld 15. febrúarklukkan 19:00 í fundarsal Verk Vest á efstu hæð í Alþýðuhúsinu á Ísafirði (bíóinu). Sjómenn eru hvattir til að mæta og kynna sér innihald samningsins, en atkvæðagreiðsla opnar á föstudag og stendur til 10. mars kl. 15:00.

Könnun á stöðu launafólks á Íslandi

Nú er opin könnun um stöðu launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Er þetta í þriðja sinn sem könnunin er framkvæmd af Vörðu rannsóknarsetri sem er í eigu ASÍ og BSRB.  Í ár er lögð sérstök áhersla á að afla upplýsinga um fjárhagsstöðu félaga, andlega og líkamlega líðan, kulnun og brot á vinnumarkaði. Nú sem endranær er rík áhersla lögð […]

Kynning: Helstu atriði í nýjum kjarasamningi sjómanna við SFS

Í gærkvöld var undirritaður nýr kjarasamningur sjómanna í Verk Vest við SFS. Helstu atriði sem samningurinn inniheldur má sjá hér en kynningarfundir um innihald samningsins eru á döfinni. Undirritaðan samning má sjá hér en útreiknuð áhrif samningsins fyrir félagsmenn verða kynnt á væntanlegum kynningarfundum. Kynningarfundir verða auglýstir eftir helgi og eru félagsmenn hvattir til að mæta og kynna sér […]

Miðstjórn ályktar um ofstækiskennda orðræðu

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands harmar neikvæða og ofstækiskennda orðræðu í tengslum við kjaraviðræður, nú síðast í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins og miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Mikilvægt er að álitamál fái viðhlítandi meðferð og ótækt er að  ágreiningur sé nýttur til að hafa í frammi haturskennd og viðurstyggileg ummæli í garð tiltekinna einstaklinga, hópa og samtaka. Eðlilegt er […]

Sjómenn skrifa undir tímamóta kjarasamning við útgerðarmenn

Samtök sjómanna skrifuðu undir tímamóta kjarasamning við útgerðarmenn undir miðnætti í gær. Samningurinn er til 10 ára með uppsagnarákvæði sem hægt er að virkja eftir 4 ár. Stóra samningsatriðið var að ná 3,5% viðbótargreiðslum í lífeyrissjóð ásamt því að tryggja að kauptrygging og aðrar greiðslur til skipverjar tækju sömum hækkunum og á almennum vinnumarkaði. Viðmiðið […]

Stýrivaxtahækkun í boði ríkisstjórnarinnar

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands gagnrýnir harðlega stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var í morgun. Meginvextir bankans eru nú 6,5% og hafa ekki verið hærri í þrettán ár. Hækkunin kemur í kjölfar vaxandi verðbólgu en hækkun vísitölunnar í janúar mátti fyrst og fremst rekja til ákvarðana ríkisstjórnarinnar. Miðstjórn ASÍ mun boða til formannafundar til að ræða viðbrögð og […]

Miðstjórn ASÍ lýsir furðu á skýringum stjónvalda um hækkun verðbólgu

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun verðbólgunnar. Miðstjórn telur gagnrýnivert að stjórnvöld hafi kosið að leiða hjá sér ábendingar og varnaðarorð um að hækkun ýmissa skatta og gjalda um áramót myndu koma af fullum þunga niður á almenningi í formi minni kaupmáttar, verðbólgu og vaxtahækkana. Sú spurning gerist sífellt áleitnari hvort […]

Er þínar upplýsingar réttar?

Þann 1. febrúar mun Verk Vest greiða í fyrsta sinn úr Félagsmannsjóði til félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögum á félagssvæðinu. Greiðslan er vegna ársins 2022, en forsenda þess að hægt verði að greiða úr sjóðnum til félagsmanna er að félagið hafi kennitölu, bankaupplýsingar, síma og netfang þeirra félagsmanna sem eiga rétt á greiðslum úr sjóðnum.  Kíktu […]

Miðstjórn ASÍ ályktar um miðlunartillögu ríkissáttasemjara

Miðstjórn ASÍ lýsir því yfir að traust á embætti ríkissáttasemjara hefur skaðast með því að leggja fram ótímabæra miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og SA. Miðstjórn telur að færa megi rök fyrir og véfengja hvort embætti sáttasemjara hafi með þessum hætti farið út fyrir þær valdheimildir sem embættinu eru settar í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. […]

Greiðslur úr Félagsmannasjóði starfsfólks sveitarfélaga 1. febrúar 2023

Allir félagsmenn Verk Vest sem störfuðu hjá sveitarfélagi á árinu 2022 eiga að fá greitt úr Félagsmannasjóði SGS í byrjun febrúar nk. Iðgjald í sjóðinn er 1,5% af heildarlaunum. Síðastliðin tvö ár hefur umsýsla sjóðsins verið hjá Starfsgreinasambandinu (SGS) en í fyrra haust var gerð breyting á og nú mun aðildarfélögin sjálf um umsýslu sjóðsins […]

Samið um nýja kauptaxta hjá starfsfólki sveitarfélaga

Nýir kauptaxtar hjá starfsfólki sveitarfélaga tóku gildi um áramótin og eru þeir nú aðgengilegir á vef Verk Vest. Gildistími kauptaxta er frá 1. janúar til 30. september 2023 en þá rennur gildandi kjarasamningur út. Nýir kauptaxtar hækka grunnlaun í launaflokki 117 að lágmarki um 35.000 kr. skv. nýrri launatöflu en hækkun grunnlauna nemur á bilinu 35.000 kr. til 49.359 kr. […]

Nýjar deildarstjórnir kosnar á aðalfundi deilda og trúnaðarráðs

Á opnum fundi Trúnaðarráðs og aðalfundi starfsgreinadeilda Verk Vest voru kjörnar nýjar deildarstjórnir samkvæmt 4. gr. laga félagsins. Innan Verk Vest starfa fimm starfsgreinadeildir þar sem hópar launafólks er hafa sérstöðu um fagleg málefni sem og kaup og kjör eiga samleið. Starfsgreinadeildirnar eru Matvæla- og þjónustudeild hjá SGS, Opinber deild hjá SGS, Verslunar- og skrifstofudeild […]

Auglýst eftir framboðum til stjórnar og trúnaðarráðs Verk Vest

Samkvæmt 19 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2023 til 2025 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu.Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga og […]

Auglýst eftir umsjónarfólki fyrir Orlofsbyggðina í Flókalundi

Stjórn Orlofsbyggðarinnar í Flókalundi óskar eftir að ráða umsjónarmann byggðarinnar í fullt starf frá og með 2. maí 2023. Árlegur starfstími umsjónarmanns  er frá 2. maí  til 30. september 2023.  Leitað er eftir handlögnum einstaklingi eða tveimur samhentum einstaklingum til að hafa umsjón með umhverfi, orlofshúsum og sundlaug byggðarinnar. Umsækjandi þarf einnig að geta sinnt […]

Opinn fundur Trúnaðarráðs og aðalfundur deilda

Opinn fundur Trúnaðarráðs og aðalfundur deilda annarra en sjómannadeildar verður haldinn mánudaginn 16. janúar klukkan 18:00 í fundarsal Verk Vest í Alþýðuhúsinu á Ísafirði (efsta hæð í bíóinu). Kosið verður í deildarstjórnir í eftirfarandi deildum: Iðnaðardeild Matvæla- og þjónustudeild Opinber deild Verslunar- og skrifstofudeild Samkvæmt 4. gr. laga félagsins um skiptingu deilda og hlutverk skal […]

Ný deildarstjórn Sjómannadeildar kosin

Ný deildarstjórn Sjómannadeildar kosin var kosin til tveggja ára á aðalfundi deildarinnar sem haldinn var 2. Jóladag. Stjórn deildarinnar skipa: Formaður: Sævar Gestsson Varaformaður: Grétar Þór Magnússon Meðstjórnandi: Hörður Snorrason Varamaður: Ómar Sigurðsson Varamaður: Jón B. Hermannsson Við óskum þeim til hamingju með kjörið og velfarnaðar í störfum fyrir félagið. Einnig þökkum við fráfarandi stjórnarmönnum, […]

Launahækkanir greiðast út um mánaðamót

Nú hafa nýjar launatöflur verið birtar á vef félagsins vegna þeirra kjarasamninga sem samþykktir voru fyrr í mánuðinum. Við bendum félagsmönnum á að launahækkanir taka gildi frá og með 1. nóvember sl. þannig að nú um mánaðamótin kemur inn hækkun á laun vegna desember-mánaðar auk leiðréttingar fyrir nóvember-mánuð. Skoðið launaseðla!

Jólaglaðningur eldra félagsfólks í Verk Vest

Nú sem og endranær færir Sjúkrasjóður Verkalýðsfélags Vestfirðinga félagsfólki sem hefur lokið starfsævinni Jólaglaðning ásamt fallegu korti frá félagssvæðinu. Á árinu 2018 varð sú breyting á myndefninu að sjóðsstjórnin óskaði eftir því við elsta félagsfólk Verk Vest að að sitja fyrir á myndum sem prýða Jólakort félagsins. Lögð hefur verið áhersla á að finna elstu […]

Launareiknivélar LÍV

Í kjarasamningum sem undirritaðir voru í desember 2022 var samið um 6,75% hækkun launa, þó að hámarki 66.000 kr. En launataxtar hækkuðu hlutfallslega meira, sjá launataxta. Reiknivél fyrir mánaðarlaun Reiknivél fyrir taxtalaun Launareiknivélar LÍV sýna laun árið 2023 í samanburði við laun 2022. Til að finna út núverandi mánaðarlaun út frá tímakaupi skal margfalda dagvinnutímakaup […]

Kjarasamningur SGS og Verk Vest vegna Þörungaverksmiðjunnar samþykktir

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins á hinum almenna vinnumarkaði sem Verk Vest er aðili að liggja nú fyrir. Nýr kjarasamningur var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta hjá þeim 17 aðildarfélögum sem eiga aðild að honum. Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 9. til 19. desember. Í heildina var kjörsókn hjá SGS félögum 16,56%, […]

Verk Vest býður félagsmönnum og fjölskyldum þeirra í bíó: Njótum aðventunnar

Verk Vest býður félagsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra í bíó þriðjudaginn 20. desember klukkan 20:00 að sjá Avatar 2, The way of water. Myndin verður sýnd í Ísafjarðarbíói og í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði. Athugið að félagsmaður þarf að sýna félagsskírteini við innganginn og fjölskyldan fylgir með. Við minnum á rafrænu félagsskírteinin sem hægt er að sækja hér. […]

Skrifað undir nýjan kjarsamning við Þörungaverksmiðjuna

Á þriðja tímanum í dag var skrifað undir nýjan kjarasamning Verk Vest við Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum. Nýr kjarasamningur er í anda þeirra samninga sem hafa verið gerðir við félög innan ASÍ að undanförnu með áherslu á launatöflubreytingu og krónutöluhækkun líkt og í kjarasamningi SGS. Þær áherslur skila taxtalauna fólki í verksmiðjunni mjög góðum krónutöluhækkunum frá kr. […]

Rafræn félagsskírteini

Nú er hægt að sækja sér rafrænt félagskírteini inn á orlofsvef félagsins. Þú þarft að skrá þig inn og smella á „Sækja rafrænt félagsskírteini“ Ef þú ert með Android verður þú að niðurhala í símann þinn SmartWallet. Síðan getur þú einfaldlega opnað myndavélina inni í appinu og skannað QR kóðann. Ef þú ert með Apple getur […]

Kynning á kjarasamningi iðnaðarmanna

Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Félag járniðnaðarmanna á Ísafirði verða með kynningu á nýjum kjarasamningi Samiðnar í Alþýðuhúsinu á Ísafirði 3. hæð kl.20.00 fimmtudaginn 15. desember. Streymt verður frá kynningu Samiðnar.  Kynningarefni samningsins má finna hér.

Nýjir kjarasamningar fyrir verslunar-, skrifstofu- og iðnaðarfólk í Verk Vest undirritaðir

Landssamband íslenskra verslunarmanna (LÍV) og Samiðn hafa undirritað kjarasamning við Samtök atvinnulífsins fyrir félagsmenn í Verk Vest. Um er að ræða skammtímasamning sem gildir frá 1. nóvember 2022 og rennur út 31. janúar 2024.  Samningurinn felur í sér umtalsverðar kjarabætur. Frá og með 1. nóvember 2022 hækka mánaðarlaun þeirra sem ekki eru á taxtalaunum um […]

Upplýsingar um nýjan kjarasamning SGS

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur tekið saman ýmsar gagnlegar upplýsingar varðandi nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Samtaka atvinnulífsins (SA). Á síðunni er m.a. að finna öll helstu atriði samningsins á íslensku, ensku og pólsku, Félagsmenn sem starfa skv. umræddum samningi eru hvattir til að að kynna sé samninginn vel og nýta atkvæðisrétt sinn, en atkvæðagreiðsla um samninginn […]

Przygotowanie spotkania z pracownikami oddziałów rybnych

Obecnie Verk Vest przygotowuje sie do zebrania w sprawie warunków oraz płac z pracownikami  firm rybnych, , jednak z powodu odległości między placówkami z resortami morskimi i OPC, zebranie będzie odbywać się zdalnie. Aby promować dobra rozmowę z jak największą liczbą osób ,konieczne jest dotarcie do tych którzy pracuja w tej branży, z tego tez […]

UNDIRBÚNINGUR KJARAFUNDA MEÐ STARFSFÓLKI Í FISKELDI

Nú vinnur Verk Vest að undirbúningi kjaramálafunda með starfsfólki í fiskeldi óháð fyrirtæki, en sökum fjarlægða milli starfsstöðva  verða fundir með sjódeildum og OPC haldnir í fjarfundi. Til að stuðla að góðu samtali við sem flesta þarf að ná til þeirra sem vinna í greininni, en Verk Vest þarf tölvupóstfang hjá viðkomandi starfsmönnum til að […]

Desemberuppbót 2022

Kjarasamningum samkvæmt fær launafólk greidda desemberuppbót, en skilyrði uppbótar má finna í viðeigandi kjarasamningi sem finna má á kjaravef Verk Vest. Hér eru upplýsingar um upphæðir og síðasta greiðsludag miðað við fullt starf: Almennur vinnumarkaður: Kr. 98.000 sem greiðist í síðasta lagi 15. desember (flestir atvinnurekendur greiða þetta út með launum 30.nóv.) Ríkisstarfsmenn: Kr. 98.000 sem […]