Minnumst verkafólks á blóðvöllum HM

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hvetur landsmenn alla, og áhugafólk um knattspyrnu sérstaklega, til að gleyma ekki þeim fórnum sem farandverkafólk færði við byggingu mannvirkja og annan undirbúning vegna heimsmeistaramóts í knattspyrnu karla í Katar. Talið er að 6.500 manns hafi týnt lífi við störf tengd undirbúningi mótsins. Raunverulegur fjöldi liggur ekki fyrir því stjórnvöld í […]

Yfirlýsing formannafundar Sjómannasambands Íslands

Fundur formanna aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands, haldinn í Vestmannaeyjum 7. og 8. október 2022, ítrekar kröfugerð sína á hendur útgerðarmönnum í yfirstandandi kjaraviðræðum. Krafa aðildarfélaganna er skýr um að sjómenn fái inn í kjarasamning sinn ákvæði um að útgerðin greiði 3,5% viðbótarframlag í lífeyrissjóði sjómanna með sama hætti og launafólk á almenna vinnumarkaðnum hefur þegar samið […]

OPNUM FYRIR UMSÓKNIR UM JÓL OG ÁRAMÓT ÞRIÐJUUDAGINN 25. OKTÓBER

Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga YFIR jól og áramót 2022, þriðjudaginn 25. október kl. 9:30. Orlofshúsin eru sem eru í úthlutun eru: íbúðir í Kópavogi og íbúð á Akureyri, Svignaskarð og Ölfusborgir. Umsóknarfrestur verður til 7.nóvember og mun úthlutun fara fram þann 8. nóvember.

Við höfnum gerræði og hótunum innan ASÍ

Línur eru teknar að skýrast varðandi framtíð Alþýðusambandsins. Ragnar Þór Ingólfsson hefur tilkynnt um forsetaframboð og lýst yfir stuðningi við Kristján Þórð Snæbjarnarson, Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Vilhjálm Birgisson í embætti varaforseta. Ragnar Þór hefur jafnframt lýst því yfir að hann ætli sér ekki að sleppa tökunum á VR í komandi kjaraviðræðum og sitja sem formaður […]

Trúnaðarmenn Verk Vest á námskeiði

Trúnaðarmenn hjá Verk Vest luku námslotu 6 hjá Félagsmálaskóla Alþýðu sem haldin var í Heydal í Mjóafirði við Djúp. Leiðbeinendur í 6 lotu voru þau Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ sem fjallaði um helstu hagfræðihugtök í daglegu lífi og í kjarasamningagerð, s.s. kaupmátt launa, mun á hlutfallslegri hækkun eða krónutöluhækkun.  Bergþóra Guðjónsdóttir sem kynnti helstu hugtök í samningtækni. Lögð […]

Helgartilboð í Flókalundi

Framundan er síðasta opnunarhelgin í Orlofsbyggðinni í Flókalundi og það spáir fallegu haustveðri. Af því tilefni er boðið upp á helgartilboð frá fimmtudegi til mánudags kr. 20.000.  Nú gildi reglan fyrstur kemur fyrstur fær! Bókanir eru á orlofsvef félagsins eða í síma 4565190

Opnum aftur á Patreksfirði

Frá 1. september mun starfsemi og þjónusta á skrifstofu félagsins á Patreksfirði aftur komast í eðilegt horf með ráðningu starfsmanns í tímabundna afleysingu. Sigurbjörg Ásgeirsdóttir í Neðri Tungu við Patreksfjörð mun taka við keflinu af Völu Dröfn sem er á leið í fæðingarorlof. Opnunartími skrifstofunnar verður óbreyttur frá kl.09.30 – 15:00 alla virka daga.  

Yfirlýsing frá formönnum innan SGS vegna afsagnar Drífu Snædal, forseta ASÍ

Við undiritaðir formenn félaga innan Starfsgreinasambands Íslands viljum þakka fráfarandi forseta ASÍ fyrir farsælt og gefandi samstarf undanfarin 10 ár. Fyrst með flestum okkar sem framkvæmdastjóri SGS og síðustu fjögur ár sem forseti ASÍ. Drífa hefur verið róttæk, sýnileg og fylgt áherslum Alþýðusambands Íslands mjög vel eftir og verið hreyfingunni til sóma á allan hátt.  […]

Leiðbeiningar og nánari upplýsingar fyrir leigjendur íbúða Verk Vest

Félagsmönnum til hægðarauka hafa verið birtar ýmsar upplýsingar og leiðbeiningar fyrir þá sem leigja íbúðir félagsins í Sunnusmára í Kópavogi, og kemur til með að bætast ört við á næstu vikum. Beinn hlekkur á þessar leiðbeiningar er hér en á meðfylgjandi mynd má sjá hvar upplýsingarnar er að finna á vef félagsins. Við vonum að þessi viðbót […]

Kynning rannsóknar á hinsegin vinnumarkaði í Veröld, húsi Vigdísar 5. ágúst kl. 14:30

Föstudaginn 5. ágúst kl. 14:30 standa heildarsamtök launafólks að viðburði í Veröld – Húsi Vigdísar þar sem rannsókn á kjörum hinsegin fólks á íslenskum vinnumarkaði verður kynnt. Rannsóknin er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er viðburðurinn hluti af dagskrá hinsegin daga, en þeim lýkur með gleðigöngu á laugardag. Áherslur verkalýðshreyfingarinnar verða kynntar auk þess […]

Breytingar á útgreiðslum styrkja vegna sumarleyfa

Vegna sumarleyfa starfsfólks þá verða breytingar á greiðslum sjúkra- og fræðslustyrkja. Greiðslur verða 15. júlí n.k. og síðan ekki aftur fyrr en 15. ágúst. Greiðslur á sjúkradagpeningum og dánarbótum verða óbreyttar. Bendum á að í dagatalinu er að finna allar dagsetningar á útgreiðslum o.fl.     

Tungumálatöfrar – Íslenskunámskeið fyrir 5-9 ára börn

Tungumálatöfrar er íslenskunámskeið fyrir 5 – 9 ára börn sem fram fer í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Töfraútivist Tungumálatöfra er hressandi útivistarnámskeið fyrir 10-14 ára sem fram fer á Flateyri og nágrenni.  Báðum námskeiðum lýkur með Töfragöngu á Ísafirði laugardaginn 13. ágúst. Kennt er frá kl.10-14 á daginn, mánudag til föstudags. ATH. Börn koma með hollt […]

Pistill forseta ASÍ – Gleðilegt sumar!

Ferðaþyrst fólk flykkist til og frá landinu eftir tveggja ára ferðatakmarkanir. Flugvellir víða um heim standa ekki undir álaginu og aldrei að vita hvar farangur endar eða í versta falli ferðamenn. Mjög víða vantar starfsfólk og álagið á vinnandi fólk er mikið. Ýmsir furða sig á því að þó atvinnuleysi sé víða um heim skorti […]

Kröfugerð Starfsgreinasambandsins afhent Samtökum atvinnulífsins

Viðræðunefnd Starfsgreinasambands Íslands afhenti í gær fulltrúum Samtaka atvinnulífsins kröfugerð SGS vegna kjarasamninga á almennum markaði, sem verða lausir 1. nóvember næstkomandi. Á fundinum var rætt um fyrirkomulag komandi viðræðna og þau úrlausnarefni sem liggja fyrir samningsaðilum. Gert er ráð fyrir að formlegar viðræður byrji um miðjan ágúst og voru aðilar sammála um að ganga […]

Sjómannadagurinn í kjölfar Covid

Eins og með svo margt annað hefur Sjómannadagurinn breyst í tímans rás. Sjómenn voru mjög mikilvægir landinu í heild sinni, enda fæðuöflun mjög mikilvæg þessari litlu eyþjóð úti í miðju Atlantshafi, og þar af leiðir naut sjómennska mikillar virðingar áður fyrr. Sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur 1938 á Ísafirði og í Reykjavík, en svo um […]

Aðalfundur Verk Vest veitir RKÍ styrk

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga samþykkti að svara ákalli frá félögum okkar í verkalýðsfélögum í Úkraínu og nágrannaríkjum þeirra um stuðning í orðum og verki. Stjórn Verk Vest lítur á það sem samfélagsskyldu félagsins að veita stríðshrjáðum flóttamönnum aðstoð og lagði því til við aðalfund félagsins að veita styrk til Rauðakross Íslands (RKÍ). Félagar á aðalfundi samþykktu […]

Lokað vegna viðhalds á tölvukerfi og búnaðar

Skrifstofur félagsins á Ísafirði og Patreksfirði verða lokaðar frá kl.13.00 föstudaginn 10. júní vegna viðhalds á tölvukerfum félagsins og uppfærslu á búnaði þeim tengdum.   Félagsmenn eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kanna að valda. Starfsfólk Verk Vest á Ísafirði og Patreksfirði. 

Nokkrar vikur enn lausar á Spáni

Nokkrar vikur eru enn lausar í húsi félagins í Los Arenales del Sol á Spáni.  Í júní er laust frá 1. – 16. júní. Í ágúst er laust frá 16. – 30. ágúst  Í september er laust frá 13. september og áfram inn í veturinn. Almennar upplýsingar um húsið og staðsetningu má finna hér. Fyrir […]

Miðstjórn gagnrýnir aðgerðaleysi stjórnvalda harðlega

Miðstjórn Alþýðusambandsins kallar eftir tafarlausum aðgerðum til að bregðast við hratt vaxandi verðbólgu og óásættanlegri stöðu á húsnæðismarkaði. Sú kjararýrnun sem almenningur verður fyrir þessa dagana vegna verðbólgu og hækkandi vöru- og húsnæðisverði mun hafa veruleg áhrif á kjaraviðræður komandi hausts.  Verðbólga mælist 7,2% um þessar mundir og hefur ekki verið hærri frá fjármálahruni. Helsti […]

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn fimmtudaginn 12. maí 2022 kl.18.00 á Hótel Ísafirði. (english and polish below)

Félagsmenn beðnir að tilkynna þátttöku á postur@verkvest.is eða í síma 4565190. Einnig verður hægt að taka þátt gegnum fjarfund. Vinsamlega gefið upp nafn, kennitölu, og póstfang fyrir fjarfund. Boðið verður upp á kvöldverð í upphafi fundar. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 24.gr laga félagsins  Önnur mál Ársreikningar félagsins liggja frammi á skrifstofum félagsins á Ísafirði og Patreksfirði. […]

Launafólk! til hamingju með baráttudaginn okkar 1. maí

Yfirskrift baráttudags launafólks í ár er “ Við Vinnum“ en það er einmitt vinnandi fólk skapar verðmæti samfélagsins og heldur hjólum atvinnulífsins gangandi. Aldrei varð þetta skýrara en í gegnum heilan heimsfaraldur þar sem launafólk stóð vaktina og hélt öllu samfélaginu gangandi. Í lok dags var það svo að mörg fyrirtæki gátu vel við unað […]

Launahækkun vegna hagvaxtarauka gildir frá 1. apríl

Forsendunefnd ASÍ og SA sem starfar samkvæmt kjarasamningum hefur hist og rætt hagvaxtarauka kjarasamninga. Líkt og greint var frá nýverið jókst landsframleiðsla á mann um 2,53% á síðasta ári. Þetta hefur þá þýðingu að hagvaxtarauki kjarasamninga hefur virkjast í fjórða þrepi. Forsendunefnd ASÍ og SA hefur ákveðið að hagvaxtaraukinn komi til greiðslu 1. maí líkt […]

Hátíðarhöld 1. maí

Eftir tveggja ára hlé verða nú hátíðarhöld á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Dagskrá á Ísafirði Kl. 14:00  Bíó fyrir börn: Ævintýri Pílu. >>AÐGANGUR ÓKEYPIS Kl. 14:00  Kröfuganga frá Alþýðuhúsinu á Ísafirði í heiðursfylgd lögreglu með Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi. Kl. 14:30  Hátíðardagskrá í Edinborg Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar flytur tónlist. Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verk Vest […]

Yfirlýsing stjórnar Verkalýðsfélags Vestfirðinga vegna hópuppsagnar hjá Eflingu stéttarfélagi

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga harmar þá ósvífnu ákvörðun Baráttulista stjórnar Eflingar að segja öllu starfsfólki á skrifstofu félagsins upp störfum. Slíkar aðgerðir eiga að vera algjört neyðarúrræði ef hagræða þarf í rekstri en ekki til að lækka laun. Stéttarfélögum ber skylda til að ganga fram með góðu fordæmi og þannig tryggja að réttindi vinnandi fólks sé […]

FYRSTU ÚTHLUTUN UM ORLOFSDVÖL SUMARIÐ 2022 LOKIÐ

Fyrstu úthlutun um orlofsdvöl er lokið og alls bárust 87 umsóknir. Þetta er nokkur fækkun frá fyrra ári, en þá voru umsóknir 119.  Þrátt fyrir þessa fækkun þá þurfti að synja 31 umsókn, en þeir sem fengu synjun hafa möguleika á að sækja um önnur laus tímabil. Hægt er að skoða niðurstöðu úthlutunar á vefnum: https://orlof.is/verkvest/site/message/message.php?id=34. Einnig […]

SZKOLA BIUROWA NTV I ISLANDZKI W PRACY BIUROWEJ MÍMIR- KURS ONLINE

W przypadku pracy biurowej znajomosc komputera jest kluczowa. Oferujemy Panstwu szkolenie biurowo-komputerowe, które jest skierowane do osób pragnacych rozszerzyc swoje umiejetnosci zawodowe lub zmienic profil zatrudnienia. Kurs obejmuje równiez nauke jezyka islandzkiego potrzebnego do pracy w biurze. Kurs jest przeznaczony glwwnie dla osób z niepelnym wyksztalceniem. Kolejny kurs rozpoczyna sie 25 kwietnia i potrwa do […]

Fræðslu- og tengsladagar ASÍ-UNG

Verk Vest augslýsir eftir ungu fólki á aldrinum 16 – 35 ára til að taka þátt í fræðslu- og tengsladögum ASÍ – UNG. Viðburðurinn er ætlaður öllu ungu fólki hjá Verk Vest sem eru 16-35 ára, og hafa áhuga á starfi stéttarfélaga. Tími: 28.-29. apríl 2022 Staðsetning: Haldið á Hótel Harmi í Borgarfirði og er gert ráð […]

Framleiðni hækkar umfram laun

Framleiðni hækkar umfram laun Í nýlegu mánaðaryfirliti var að finna samantekt á nýjum gögnum Hagstofunnar um laun og framleiðni í hagkerfinu. Gögnin frá Hagstofunni sýna að framleiðni hækkaði umfram laun milli 2020 og 2021. Framleiðni og laun eru skilgreind sem framleiðsla og laun auk launatengdra gjalda á hverja unna vinnustund. Framleiðni jókst um 4,1% í […]

Forkastanleg ummæli seðlabankastjóra

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands furðar sig á ummælum seðlabankastjóra á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun, um að Hagvaxtaraukinn muni ekki koma sér vel. Launafólk um land allt sem fær, í samræmi við taxtahækkun kjarasamninga, 10.500 króna hækkun útborgaða 1. maí, á ekki skilið slíka sendingu frá seðlabankastjóra. Hækkunin endurspeglar þann hagvöxt sem er […]