Fyrrverandi starfsmenn TH á Ísafirði fá fjárhagsaðstoð

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hélt fund með starfsmönnum TH innréttinga í gær eftir að ljóst var að fyrirtækið hefði verið úrskurðað gjaldþrota. Formaður Verk Vest fór yfir það ferli sem væri framundan varðandi ógreidd laun starfsmanna, ábyrgðir og tryggingar og hvernig staðið yrði að vinnu við launakröfu af hálfu félagsins í þrotabú TH. Á fundinum var upplýst […]
Sérhæft fiskvinnslufólk útskrifað

Eins og kom fram hér á vefnum hefur staðið yfir kjarasamningsbundið fiskvinnslunámskeið á Flateyri. Því lauk formlega með útskrift föstudaginn 9.desember þegar Fræðslumiðstöð Vestfjarða útskrifaði 20 einstaklinga sem sérhæft fiskvinnslufólk. Fiskvinnslunámskeiðin eru hluti af kjarasamningsbundnu námi fiskvinnslufólks en sú breyting hefur orðið á náminu að það hefur verið fært undir Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Þetta er fyrsta […]
Stjórnvöld svíkja almennt launafólk

Á 100 framkvæmdastjórnarfundi SGS, Starfsgreinasambands Íslands var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða. „Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands harmar að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ætli að svíkja loforð um jöfnun lífeyrisréttinda á milli almenna og opinberra lífeyriskerfisins sem gefin voru við undirritun kjarasamninga í vor. Áformum stjórnvalda um skattlagninu á lífeyrissjóði er harðlega mótmælt, enda munu þau leiða til skerðingar […]
Virðum rétt afgreiðslufólks í jólaösinni

Nú fer í hönd einn mesti annatími afgreiðslu fólks í verslunum þegar
jólaösin fer að þyngjast. Í desember eykst álag á verslunar og
afgreislufólki mjög mikið og því vert að hafa í huga nokkur mikilvæg
atriði er varða réttindi þessarra starfsmanna. Þá beinir félagið þeim
tilmælum til verslunar og afgreiðslufólks að halda vel utan um skráningu
vinnu tíma.Frídagar yfir hátíðarnar eru:Eftir kl. 12 á aðfangadag ( stórhátíðardagur)Jóladagur (stórhátíðardagur)Annar í jólum (almennur frídagur)Eftir kl. 12 á gamlársdag ( stórhátíðardagur )Nýjarsdagur (stórhátíðardagur)
Ekki er vinnuskylda
á þessum dögum og skulu launþegar halda sínum dagvinnulaunum óskertum. Auk þess
má minna á að fyrsta vinnudag eftir jól skal dagvinna í verslunum hefjast kl.
10.
Fiskvinnslunámskeið hafið á Flateyri

Í morgun hófst fiskvinnslunámskeið á vegum Verk Vest og Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða. Námskeiðið sem haldið er á Flateyri er hluti af kjarasamingsbundnu námi fiskvinnslufólks. Um er að ræða 40 stunda grunnnámskeið og að námskeiði loknu útskrifast þátttakendur sem sérhæft fiskvinnslufólk og munu launataxti hækka í samræmi við það. Námskeiðið á Flateyri fer að mestu fram á […]
Dagbækurnar komnar !

Dagbókin 2012 fyrir félagsmenn Verk Vest er nú komin í afgreiðslu félagsins á Ísafirði. Dagbókinni verður komið í dreifingu allra næstu daga til deildarformanna á félagssvæðinu og ætti því að verða aðgengileg á flestum vinnustöðum innan skamms.
Ríkisstjórnin ræðst á réttindi almenns launafólks

Miðstjórn ASÍ hefur sent frá sér harðorða ályktun vegna einhliða
ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um minni hækkun bóta til þeirra sem lökust
hafa kjörin í þjóðfélaginu. En ákvörðunin hefur í för með sér að
atvinnuleysisbætur hækka eingöngu um 5.500 krónur en ekki 11.000 krónur
þann 1. febrúar 2012. Þetta eru hrein og klár svik ríksisstjórnarinnar
sem kennir sig við velferð. Og til að bíta höfuðið af skömminni þá er
ætlun ríkisstjórnarinnar að halda til streitu svokölluðu 3ja mánaða
sveltitímabili langtímaatvinnulausra. Þetta þíðir ekkert annað en auknar
álögur á ílla stödd sveitarfélög sem bera framfærsluskyldu gagnvart
íbúum sínum sem hafa enga framfærslu sjálfir. Ekki meigum við heldur
gleyma atlögu ríkisstjórnarinnar að lífeyrissparnaði landsmanna með
skattlagningu á séreignarsparnað lífeyrissjóðanna. Ef fram fer sem
horfir þá ætlar ríkisstjórnin að sauma mjög harkalega að launþegum í
landinu á komandi mánuðum, slíku verður að spyrna við með ölum tiltækum
ráðum.
Desemberuppbót og sérstakt álag

Senn líður að því að vinnuveitendur greiði starfsfólki desemberuppbót fyrir árið 2011. Uppbótin á að greiðast eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma. Þeir sem eiga rétt á uppbótinni þurfa að hafa verið í samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi […]
Laust í Svignaskarði !

Vegna forfalla er hús nr. 9 í Svignaskarði laust til útleigu helgina 25 – 28. nóvember. Nú er um að gera að bregðast fljótt við því nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.
Laust í Svignaskarði !
Vegna forfalla er laust í bæði húsin í Svignaskarði helgina 9. – 12. mars. Einnig er laust í hús nr. 30 helgina 16. – 19. mars vegna forfalla. Nú gildir reglan – FYRSTUR KEMUR FYRSTUR FÆR –
Kjarasamningar smábátasjómanna

Eins og fram kom í fréttum ruv.is og bb.is þá eru viðræður Sjómannasambands Íslands (SSÍ) við Landssamband smábátaeigenda (LS) um kaup og kjör sjómanna á smábátum hafnar. Fram kemur að mikið beri á milli deiluaðila, enda ekki að undra þar sem ekki er til heildstæður gildandi kjarasamningur um kjör smábátasjómanna á landsvísu. Í dag eru […]
Samfélagslegt tap vegna svartrar vinnu smærri fyrirtækja 13,8 milljarðar á ári

Svört vinna mest á Vestfjörðum en minnst á Norðausturlandi !
Í tengslum við gerð kjarasamninga í vor skapaðist umræða
um hvernig minnka mætti svarta atvinnustarsemi og bæta viðskiptahætti í
landinu. Árangurinn var átaksverkefnið „Leggur þú þitt af mörkum?“ sem
unnið var í samvinnu Ríkisskattstjóra (RSK), ASÍ og SA. Heimsótt voru
yfir tvö þúsund lítil og meðalstór fyrirtæki í sumar og fengu 55% þeirra
athugasemdir. Rætt var við sex þúsund starfsmenn og reyndust 12% þeirra
vinna svart, flestir á Vestfjörðum eða 18,5%. Vert er að vekja á því athygli að þrátt fyrir að einna minnst atvinnuleysi sé á Vestfjörðum, þá skuli hlutfall þeirra sem vinna svart vera eins hátt og kemur fram í skýrslunni. Tap þjóðarbúsins vegna svartrar
atvinnustarfssemi nemur 13,8 milljörðum á ári.
Skattlagning séreignarlífeyris svik!

Ólafur Darri Andrason 12.00 Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable {mso-style-name:“Table Normal“; mso-tstyle-rowband-size:0; mso-tstyle-colband-size:0; mso-style-noshow:yes; mso-style-priority:99; mso-style-qformat:yes; mso-style-parent:““; mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt; mso-para-margin-top:0cm; mso-para-margin-right:0cm; mso-para-margin-bottom:10.0pt; mso-para-margin-left:0cm; line-height:115%; mso-pagination:widow-orphan; font-size:11.0pt; font-family:“Calibri“,“sans-serif“; mso-ascii-font-family:Calibri; mso-ascii-theme-font:minor-latin; mso-hansi-font-family:Calibri; mso-hansi-theme-font:minor-latin; mso-bidi-font-family:“Times New Roman“; mso-bidi-theme-font:minor-bidi; mso-fareast-language:EN-US;} Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir yfir stuðningi við […]
Forusta sjómanna vill nýja björgunarþyrlu strax !

Á fundi formanna innan Sjómanna sambands Íslands ( SSÍ ) sem haldin var dagana 21 – 22. októberl síðast liðinn var samþykkt að senda eftirfarandi ályktun til Innanríkisráðherra um tafarlausa lausn á björgunarþyrlumálum Landhelgisgæslunnar. En frá og með næstu áramótum mun skapast neyðarástand þar sem aðeins ein björgunarþyrla mun verða til taks verði ekkert að […]
Skiptakjör á rækjuveiðum

Þar sem veiðar á inndjúpsrækju eru nú hafnar að nýju eftir alllangt hlé er rétt að benda sjómönnum og útgerðaraðilum á að eldri samningar um skiptakjör sjómanna er enn í fullu gildi. En í samningnum um inndjúpsrækjuveiði segir að þegar bátar stunda rækjuveiðar skuli skipverjar hafa í sinn hlut aflaverðmæti, sem hér segir:a. Hásetar 17,5%b. […]
ÁSHOLT – LEIGÐ !

Vegna forfalla er ein af íbúðum félagsins í Ásholtinu laus dagana 28 – 31. október næst komandi. Þannig að nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Íbúðin hefur verið leigð.
Námskeið í almannatengslum og markaðsmálum

Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Verk Vest í samstarfi við Gústaf Gústafsson forstöðumann Markaðsstofu Vestfjarða bjóða upp á námskeið í almannatengslum og markaðsmálum. Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur. Markmiðið er að auka skilning á þeim leiðum sem best nýtast auk […]
Niðurskurður bitnar á þeim lægstlaunuðu

Nái hagræðingarhugmyndir bæjaryfirvalda í Ísafjarðarbæ í málefnum skólaliða hjá Grunnskóla Ísafjarðar fram að ganga munu tekjur skólaliða skerðast um 20%. Þessu hafa skólaliðar ásamt stéttarfélögunum Verk Vest og Fos Vest, mótmælt harðlega og krafist þess að ákvörðunin verði dregin til baka. Skólaliðar hafa sent bæjaryfirvöldum bréf þar sem skorað er á að fallið verði frá […]
Þingmönnum sendar ályktanir frá þingi SGS

Alþingismönnum hafa verið sendar ályktanir frá þingi SGS er varða kjör
og hasmuni verkafólks á Íslandi. Hér fyrir neðan má lesa stutta
samantekt um þessar ályktanir. Einnig er hægt að nálgast ýtarefni með
því að smella á meira við hverja ályktun.
Þing Starfsgreinasambands Íslands

Þing Starfsgreinasambands Íslands ( SGS ) verður haldið í Reykjavík dagana 13. – 14. október. Kjörorð þingsins er „horft til framtíðar“, en gera má ráð fyrir að skipulagsmál SGS verði nokkuð fyrirferðamikil á þinginu ásamt umræðum um atvinnu og kjaramál. Þingið sitja 137 fulltrúar frá 18 félögum víðsvegar af landinu. Verk Vest á þrjá fulltrúa […]
Trúnaðarmenn á námskeið

Góður hópur trúnaðarmanna Verk Vest víðsvegar af Vestfjörðum situr nú trúnaðarmannanámskeið sem haldið er í samstarfi við Félagsmálaskóla Alþýðu. Á námskeiðinu er farið yfir helstu mál er snúa að störfum trúnaðarmanna á vinnustaðnum ásamt grunnuppbyggingu vinnuréttarins. Námið fer fram í fundarsal Verk Vest á Ísafirði og sækja 13 trúnaðarmenn frá vel flestum sviðum vinnumarkaðarins námskeiðið.
Þorskur og karfi lækka um 5%

Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna hefur ákveðið 5% lækkun á verði þorsks og karfa í beinum viðskiptum milli skyldra aðila. Verðákvörðunin gildir frá og með 1. október 2011.
Bókasöfnum á Vestfjörðum færð bókargjöf

Stjórn og trúnaðarráð Verk Vest samþykkti á fundi þann 20. september að bókasöfnum á Vestfjörðum yrði fært eintak af fyrsta bindi sögu verkalýðsbaráttu á Vestfjörðum „Vindur í seglum“ eftir Sigurð Pétursson sagnfræðing, en bókin kom út fyrr á þessu ári. Það var samdóma álit fundarins að sagan væri ekki eingöngu saga baráttunnar fyrir bættum kjörum […]
Mjólkina heim !

Stjórn og trúnaðarráð Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun Mjólkursamsölunnar að áfram eigi að þrengja að þjónustu við íbúa á Vestfjörðum og nú með fækkun ferða með mjólkurafurðir. Ekki hafi verið nóg að skera niður starfsemina þannig að eingöngu eru 3 stöðugildi hjá MS á Vestfjörðum heldur megi gera ráð fyrir að MS ráðist í að taka niður nýleg og fullkomin tæki sem búið var að koma upp í Mjólkustöðinni á Ísafirði. Þessi tæki hefði jafnvel mátt nýta til annarskonar matvælavinnslu og skapa þannig fleiri störf en voru skorin niður eftir að MS hélt innreið sína á Vestfirði.
Stjórn og trúnaðarráð

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable {mso-style-name:“Table Normal“; mso-tstyle-rowband-size:0; mso-tstyle-colband-size:0; mso-style-noshow:yes; mso-style-priority:99; mso-style-qformat:yes; mso-style-parent:““; mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt; mso-para-margin-top:0cm; mso-para-margin-right:0cm; mso-para-margin-bottom:10.0pt; mso-para-margin-left:0cm; line-height:115%; mso-pagination:widow-orphan; font-size:11.0pt; font-family:“Calibri“,“sans-serif“; mso-ascii-font-family:Calibri; mso-ascii-theme-font:minor-latin; mso-hansi-font-family:Calibri; mso-hansi-theme-font:minor-latin; mso-bidi-font-family:“Times New Roman“; mso-bidi-theme-font:minor-bidi; mso-fareast-language:EN-US;} Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur boðað stjórn og trúnaðarráð félagsins til fundar annað […]
Loksins höggvið á hnútinn

Gengið hefur verið frá kaupum Arctic Fish ehf. á eignum þrotabús
Eyrarodda ehf. samkvæmt því sem fram kemur í fjölmiðlum. Hið nýja
fyrirtæki mun með kaupunum eignast nánast öll vinnsluhús þrotabúsins
ásamt línubátnum Stjána Ebba. Verkalýðsfélag Vestfirðinga fagnar því að
loksins skuli hafa tekist að höggva á hnút þeirrar óvissu sem málefni
fiskvinnslu á Flateyri hefur verið í undanfarna 8 mánuði. Hið nýja
fyrirtæki, sem er einn af aðaleigendum fiskeldisfyrirtækisins Dýrfisks,
hefur í hyggju að byggja starfsemina á vinnslu á eldisfiski ásamt að
vinna úr þeim sjávarafla sem mun berast á land á Flateyri. Samkvæmt
heimildum RÚV er haft eftir Sigurði Péturssyni forstjóra Arctic Fish
ehf. að þeir muni fara rólega af stað og verði um 4 – 5 störf að ræða í
byrjun
Kjarasamningur við Bændasamtök Íslands

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands fyrir hönd aðildarfélaga hefur lokið samningum við Bændasamtökin um nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk sem vinnur landbúnaðarstörf. Samningurinn er á svipuðum nótum og kjarasamningar SGS við Samtök Atvinnulífsins. Samningurinn er afturvirkur og gildir frá og með 1. júní 2011. Nánar er greint frá innihaldi samningsins á heimasíðu SGS .
Trúnaðarmannanámskeið
Verk Vest heldur trúnaðarmannanámskeið þessa dagana í samstarfi við Félagsmálaskóla Alþýðu, trúnaðarmenn frá Fos Vest taka einnig þátt í námskeiðinu. Leiðbeinendur koma frá ASÍ, Virk starfsendurhæfingarsjóði en á námskeiðinu verður fjallað um samspil kjarasamninga og trygginga, starfendurhæfingu og vinnueftirlit. Um er að ræða þriggja daga námskeið sem er hluti af kjarsamningsbundinni fræðslu trúnaðarmanna. Námskeiðinu lýkur […]
Trúnaðarmannanámskeið

Verk Vest heldur framhaldsnámskeið fyrir trúnaðarmenn félagsins dagana
6. – 7. október næst komandi. Áríðandi er að trúnaðarmenn félagsins
tilkynni þátttöku eins fljótt og auðið er. Trúnaðarmenn sem fóru á
námskeiðið í vor eru hvattir til að skrá sig og eru aðrir trúnaðarmenn
félagsins einnig hvattir til að sækja námskeiðið. Kennslan fer fram í
húsnæði félagsins að Pólgötu 2 á Ísafirði.
Laust í Flókalundi

Berin í Vatnsfirðinum eru falleg sem aldrei fyrr og nú er tækifær til að ná sér í nokkur því það eru lausir bústaðir í Flókalundi á næstu helgi.