Sjómenn ! Til hamingju með daginn

Stjórn og starfsfólk Verkalýðsfélags Vestfirðinga sendir sjómönnum og fjölskyldum þeirra árnaðaróskir á hátíðisdegi sjómanna um leið og sjómenn eru hvattir til að taka þátt í hátíðarhöldum dagsins. Gott er heilu fleyi heim að sigla.

Orlofsuppbótin 2013

Nú styttist í að félagsmenn hjá Verk Vest eigi að fá greiddda orlofsuppbót fyrir orlofsárið 2013 sem hófst þann 1. maí. Orlofsuppbót innifelur orlof, eru föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Uppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu (1. maí til 30. apríl), öllum starfsmönnum sem verið […]

Ferð fyrir félagsmenn í Selárdal 15. júní

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE Ferðanefnd VerkVest gengst fyrir skemmtiferð fyrir félagsmenn og maka þeirra laugardaginn 15. júní næstkomandi. Farið verður frá Ísafirði í Arnarfjörðinn og stefnan sett á Selárdal, sem er næst ystur Ketildala. Þar er ætlunin að skoða meðal annars listaverk Samúels Jónssonar, listamannsins með barnshjartað. Fróður og skemmtilegur […]

Árangursríkt starf starfsmanna í velferðarþjónustu um allt land

Í kjarasamningum á árinu 2008 var samið um starfsemi VIRK og fyrstu ráðgjafar VIRK hófu störf á árinu 2009. Síðan þá hafa um 4500 einstaklingar leitað til VIRK og um 2000 einstaklingar hafa lokið þjónustu. Flestir sem útskrifast frá VIRK hafa getu til þátttöku á vinnumarkaði á ný.Á sama tíma og uppbygging VIRK hefur átt […]

Leggur þú þitt af mörkum !

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 Þann 16. maí sl. var undirritaður „Samstarfssamningur um vettvangsheimsóknir á vinnustaði“ milli ASÍ, SA og RSK. Markmið samstarfssamningsins er að með virkum hætti sé lögð áhersla á mikilvægi reglufestu og reglufylgni og stuðla þannig að heilbrigðari starfsháttum. Með því að stuðla að bættri tekjuskráningu, að […]

Lyfja oftast með hæsta verðið á lausasölulyfjum

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE Verðlagseftirlit ASÍ kannaði á mánudaginn verð á 45 algengum lyfjum sem seld eru án lyfseðils. Farið var í 18 apótek en Árbæjarapótek, Lyfjaborg Borgartúni og Apótek Ólafsvíkur neituðu þátttöku í könnuninni. Lægsta verðið var oftast að finna hjá Garðs Apóteki Sogavegi í 25 tilvikum af 45. […]

Aðalfundur Verk Vest samþykkir breytt lög félagsins

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 Mjög góð mæting var á aðalfund Verk Vest sem haldinn var á Hótel Ísafirði í gærkvöldi. Fyrir fundinum lágu efnismiklar laga- og reglugerðabreytingar sem lúta að innra starfi félagsins. Stærsta breytingin er sú að félagið verður skipt upp í starfsgreinadeildir í stað gömlu svæðisdeildanna. En […]

Aðalfundur Verk Vest 14. maí

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 14. maí 2013 kl.18:30, á Hótel Ísafirði Áður en gengið verður til hefðbundinnar dagskrár aðalfundar verður boðið upp á léttan málsverð. Dagskrá:1. Skýrsla stjórnar2. Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2012 3. Lýst kjöri stjórnar, varamanna, trúnaðarráðs, sjúkrasjóðs og skoðunarmanna4. Tillögur stjórnar […]

Sumarúthlutun lokið

Nú styttist í að ferða þyrstir félagsmenn fái svör við umsóknum um dvöl í sumarhúsum félagsins. En lokahnykkur úthlutana fór fram í morgun með útdrætti á vinsælustu tímabilin. Að vanda var fenginn fulltrúi frá Sýlumannsembættinu á Ísafirði til að draga út nöfn félagsmanna. Í framhaldinu munu þeir sem fengu úthlutað fá sent bréf frá félaginu […]

Breytingar á lögum um fæðingarorlof

Með breytingum á lögum um fæðingar- og foreldraorlof sem samþykktar voru á Alþingi í desember 2012 og tóku gildi 1. janúar 2013 og í áföngum á árunum 2014, 2015 og 2016 er að nokkru bætt fyrir þær skerðingar sem gerðar hafa verið á síðustu árum, auk þess sem fæðingarorlofið verður lengt í áföngum á næstu […]

Ný verðkönnun ASÍ

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 Bónus var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í níu dagvöruverslunum víðsvegar um landið mánudaginn 15. apríl. Kannað var verð á 59 algengum matvörum. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Hagkaupum en lægsta verðið var oftast að hjá Bónus. Í um […]

Kassakvittun.is

Reynir Ásgeirsson sem fjallað var um hér á síðunni í tengslum við verðkannanir, ásamt áhugasömum neytendum sem vilja vera á verði í neytendamálum hafa stofnað heimasíðu þar sem reglulega verða birtar verðkannanir helstu „lágvöruverslana“. Einnig hefur verið stofnum fésbókarsíða þar sem neytendur hafa tækifæri til að koma á framfæri ábendingum. Það er mjög áríðandi að […]

Komið að leiðréttingu fyrir þá lægst launuðu !

Starfsgreinasambandið gerir þá kröfu til stjórnmálamanna að loforð í aðdraganda kosninga um eflingu velferðarkerfisins, hækkun lægstu launa innan kerfisins og leiðréttingu kynbundinna launa standist. Innan aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins er fjöldi fólks, aðallega konur, sem vinnur við ræstingar og umönnun á ríkisstofnunum og stofnunum sem háðar eru ríkisframlagi. Þetta starfsfólk hefur tekið á sig kjaraskerðingar síðustu ár […]

Opinn fundur stjórnar og trúnaðarráðs

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 Stjórn Verk Vest boðar til opins fundar stjórnar og trúnaðarráðs á Hótel Ísafirði þriðjudaginn 16. apríl kl.18.00. Dagskrá: 1. Kynning á breytingum á lögum um kynjakvóta í stjórnum lífeyrissjóða 2. Kosning fulltrúaráðs Verk Vest til setu á aðalfundi Lífeyrissjóðs Vestfirðinga 3. Stefnumótunarvinna um breytingar á […]

Atvinnulaus einstaklingur framkvæmir verðkönnun

Reynir Ásgeirsson, sem er atvinnulaus Kópavogsbúi, hefur tekið áskorun ASÍ og stéttarfélagana um virka neytendavakt á annað stig. Upp á sitt einsdæmi hefur Reynr framkvæmt mjög viðamiklar kannanir hjá helstu „lágvöruverslunum“ á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða könnun sem nær til um 170 vörumerkja hjá þessum verslunum. Haft er eftir Reyni á mbl.is að honum […]

Kjaramál og kaupmáttur !

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 Alþýðusamband Íslands í samvinnu við Verk Vest, Félag járniðnaðarmanna og Vls Bolungavíkur boða til fundar á Hótel Ísafirði mánudaginn 18. Mars kl. 20:00. Til fundarins eru sérstaklega boðaðir stjórnarmenn og trúnaðarmenn Verkalýðsfélags Vestfirðinga, Félags járniðnaðarmanna á Ísafirði og Verkalýðs og sjómannafélags Bolungarvíkur. Fjallað verður um […]

ASÍ – UNG skorar á neytendur

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 Áskorun til neytenda – Berjumst gegn leyndarhyggju í verðlagsmálum! Stjórn ASÍ-UNG skorar á alla neytendur að svara þeim verslunum sem úthýsa verðlagseftirliti ASÍ með sniðgöngu. Öflugt verðlagseftirlit er órjúfanlegur hluti af kjarabaráttu ASÍ enda er það nauðsynlegt til að lágmarka skaðleg verðbólguáhrif sem nú þegar […]

Verðlagseftirliti ASÍ vísað á dyr !

Við verðtöku Verðlagseftirlits ASÍ í gær var starfsmönnum eftirlitsins vísað á dyr í fjórum verslunum líkt og í síðasta mánuði. Þær verslanir sem vilja takmarka aðgengi neytenda að upplýsingum um vöruverð hjá sér eru Hagkaup, Nóatún, Víðir og Kostur. Þetta gerist á sama tíma og verðbólga í landinu er komin á skrið. Ætla má að […]

FUNDI MEÐ ASÍ AFLÝST VEGNA ÓFÆRÐAR !

Áður auglýstum fundi Verk Vest, Vls Bolungavíkur, Fél. Járniðnaðarmanna á Ísafirði og ASÍ er aflýst i dag vegna ófærðar og slæmrar veðurspár með kvöldinu. Breyttur fundartími verður auglýstur síðar.

Stjórnarkjör Verk Vest 2013

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 Samkvæmt 15 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2013 til 2015 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu. Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum […]

VERTU Á VERÐI ! – Stöndum saman og rjúfum vítahring verðbólgunnar

Aðildarfélög ASÍ hefja í dag átak gegn verðhækkunum undir yfirskriftinni – Vertu á verði. Almenningur og atvinnulífið eru hvött til að taka höndum saman og rjúfa vítahring verðbólgunnar. Átakinu er ætlað að veita fyrirtækjum og stofnunum aðhald í verðlagsmálum og vekja neytendur til aukinnar vitundar. Sendu ábendingar um verðhækkanir á – www. vertuaverdi.is Á heimasíðu […]

Lítil virðing borin fyrir afkomu launþega !

Um liðin mánaðarmót hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um kr.11.000 á taxtalaun og um 3,25% á önnur laun. Með sátt um framlengingu kjarasamninga var því beint til aðila í verslun og þjónustu í landinu að velta launahækkunum ekki beint út í verðlagið með tilheyrandi keðjuverkun; hækkun neysluvísutölu, verðbólgu og þar með hækkun húsnæðislána. Nýjasta verðkönnun […]

ASÍ höfðar mál gegn LÍÚ vegna meintrar pólitískrar vinnustöðvunar

Þann 28. janúar var þingfest í Félagsdómi, mál Alþýðusambands Íslands f.h. allra aðildarfélaga sinna gegn Samtökum atvinnulífsins f.h. Landssambands íslenskra útvegsmanna. ASÍ krefst þess að viðurkennt verði að sú aðgerð LÍÚ, að beina því til félagsmanna sinna þann 2. júní 2012 að halda skipum sínum ekki til veiða eftir sjómannadag þann 3. júní 2012 og […]

Áframhaldandi hækkanir hins opinbera

Ríki og sveitarfélög auka enn álögur á heimilin með hækkunum á gjaldskrám og neyslusköttum í upphafi árs. Þessar hækkanir skila sér beint út í verðlag og áhrifa þeirra gætir í verðbólgutölum janúarmánaðar sem Hagstofan birti í gær. Samkvæmt þeim hækka opinberar álögur verðlag í janúar um 0,4%. Þau skilaboð sem í þessu felast eru í […]

Flottir útskriftarhópar á Patreksfirði og Tálknafirði

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 Í síðustu viku brautskráði Fræðslumiðstöð Vestfjarða um 80 manns úr grunnnámi fiskvinnslu í fyrirtækjunum Odda á Patreksfirði og Þórsbergi á Tálknafirði. Námið var 60 kennslustundir og kennt samkvæmt vottaðri námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, en vottaðar námsskrár er heimilt að meta til eininga í framhaldsskólum. Kennsla hófst […]

Samningar halda gildi – laun hækka 1.febrúar

Ljóst er að laun á almennum vinnumarkaði munu hækka þann 1. febrúar. En aðilar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins undirrituðu samkomulag þess efnis í gær. Samkomulagið felur í sér styttingu samningstímans og verður gildistími kjarasamninga því til 30. nóvember 2013. Taxtalaun munu því hækka um kr.11.000 og önnur laun munu hækka um 3,25% þann 1. febrúar. […]

Samninganefndir SGS og Samiðnar samþykkja drög að samkomulagi

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands ( SGS ) kom saman til fundar í vikunni til að fjalla um drög að samkomulagi ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins sem nú liggur fyrir. Það var skýr niðurstaða fundarins að samþykkja samkomulagið. Helstu atriði samkomulags ASÍ og SA fjalla um styttingu samningstímans til 30. nóvember 2013 og hækkun iðgjalda til fræðslumála. Áætlað […]

Íslenskukunnátta lykillinn !

Samkvæmt upplýsingum frá Fjölmenningarsetrinu á Ísafirði og kemur fram í frétt á BB.IS þá er fylgni með því að kunna íslensku og eiga frekar möguleik þegar kemur að atvinnuleit. En mjög hátt hlutfall þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá, eða 29% eru af erlendum uppruna. Einnig kemur þar fram að nokkur hópur innflytjanda hefur ekki enn […]

Verk Vest vill halda í kjarasamninga

Stjórn og trúnaðarráð Verkalýðsfélags Vestfirðinga samþykkti á fundi sínum laugardaginn 12. janúar að beina þeim tilmælum til samninganefnda ASÍ að kjarasamningum verði ekki sagt upp. þrátt fyrir þungt hljóð í fundarmönnum gagnvart stjórnvöldum og atvinnurekendum var talið að illskárri kostur væri að halda í samninginn en segja honum upp með tilheyrandi óvissu í kjölfarið. Fundarmönnum […]

Á að segja kjarasamningum upp ?

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE Á næstu dögum mun skýrast hver afstaða félagsmanna innan ASÍ er gagnvart endurskoðun kjarasamninga. Föstudaginn 18. janúar verður haldinn síðasti formannafundur aðildarfélaga ASÍ áður en ákvörðun verður tekin um hvort ASÍ félögin vilji segja kjarasamningum upp vegna […]