Vel heppnuð fræðsluferð í Reykjanes

Eins og kom fram í auglýsingu hér á vefnum þá stóð Verkalýðsfélag Vestfirðinga fyrir fræðsluferð inn í Reykjanes við Ísafjarðardjúp dagana 16 – 17.október. En með tilkomu nýrrar brúar yfir Mjóafjörð er Reykjanesið orðinn frábær valmöguleiki fyrir hópa og félagasamtök sem vilja njóta næðis og friðar í fallegri náttúru. Á tímabili leit þó út fyrir að fresta þyrfti ferðinni eina ferðina enn og nú vegna veikinda bæði hjá félagsmönnum og leiðbeinendum.

Mikill verðmunur á umfelgun og smurþjónustu

Í könnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði á kostnaði við umfelgun og smurþjónustu kemur fram mikill verðmunur á þeirri þjónustu, verðmunurinn er sýnu meiri í smurþjónustu en umfelgun. ASÍ vann könnunina í samstarfi við Framsýn, Ölduna stéttarfélag, Einingu-Iðju og Verkalýðsfélag Vestfirðinga hjá 10 þjónustuaðilum víðs vegar um Norðurland og á Ísafirði mánudaginn 12. október sl. Munur á hæsta og lægsta verði á smurþjónustu fyrir minni meðalbíl (t.d. Ford Focus), reyndist tæplega 2.500 kr. eða 101% verðmunur. Munur á hæsta og lægsta verði þjónustu fyrir jeppa reyndist vera rúmlega 4.100 kr, sem er 117% verðmunur.

Flygill Tónlistaskólans á Hólmavík tekin í notkun

Undanfarna mánuði hafði staðið yfir söfun til kaupa á nýju hljóðfæri fyrir Tónlistaskólann, þar höfðu margar hendur lagt málefninu lið. Nemendur og kennarar skólans haldið tónleika þar sem ágóðinn rann í söfnunina, félagasamtök og stofnanir höfðu einnig lagt söfnuninni lið svo draumurinn gæti orðið að veruleika sem fyrst. Þess má geta að Verkalýðsfélag Vestfirðinga lagði […]

Aukin þjónusta – breyttur opnunartími skrifstofu verkalýðsfélaganna

Til að koma á móts við þarfir félagsmanna Verk Vest og Félags járniðnaðarmanna og annar sem þurfa á þjónustu skrifstofunnar að halda, hefur verið ákveðið að auk þjónustu skrifstofunnar með því að hafa opið í hádeginu alla virka daga.Frá og með morgundeginum 15. október verður því opnunartími skrifstofu verkalýðsfélaganna þannig að eftirleiðis verður opið alla […]

Staða, hlutverk og framtíð verkalýðshreyfingarinnar – námskeið

Verkalýðsfélag Vestfirðinga í samstarfi við Félagsmálaskóla alþýðu og ASÍ halda opið námskeið um umhverfi og starfsemi verkalýðshreyfingarinnar. Gerð verður grein fyrir skipulagi á íslenskum vinnumarkaði, samtökum launafólks og atvinnurekenda sem og samskiptum á vinnumarkaði og hvernig þau hafa þróast. Þá verður einnig leitað svara við spurningunni um verkefni verkalýðshreyfingarinnar við breyttar aðstæður og hvernig hún […]

Umhverfisráðherra ógnar Stöðugleikasáttmálanum

Úrskurðurinn gengur í berhögg við Stöðugleikasáttmálann og setur hann í uppnám. Umhverfisráðherra tefur framkvæmdir svo mánuðum skiptir. Frá því Stöðugleikasáttmálinn var undirritaður í júní s.l. hefur lítið miðað í að koma verkefnunum af stað. Um það var fjallað hér á síðunni 3. september s.l. og enn er áréttað að sáttmálinn hafi ekki verið undirritaður upp […]

Sveitarfélagið verður starfsfólki þjónustudeildar á Hlíf innan handar

Eins og fram hefur komið þá var ákveðið á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku að loka þjónustudeildarinni á Hlíf. Með þeirri ákvörðun var einnig ákveðið að segja starfsfólkinu, 10 manns, upp störfum frá og með 1. október 2009. Eins og fram kom hér á vefnum er farið fram á það að bæjaryfirvöld fundi með starfsfólkinu þar sem komi fram hver framtíð þeirra sem starfsmanna hjá sveitarfélaginu verði. Að sögn Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar hefur það þegar verið gert, þó svo ekki hafi verið gengið frá ráðningu í önnur sambærileg störf hjá sveitarfélaginu.

Störf félagsmanna Verk Vest á þjónustudeildinni á Hlíf lögð niður

Á bæjarstjórnarfundi í gærkvöld var ákveðið með atkvæðum bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að loka Þónustudeild aldraðra á Hlíf á Ísafirði. Tillaga bæjarfulltrúa Í-listans um að vísa málinu til félagsmálanefndar og þjónustuhóps aldraðra var felld með fimm atkvæðum gegn fjórum. Með þessari ákvörðun eru fimm aldraðir einstaklingar sviptir heimili sínu og tíu starfsmenn missa vinnuna.Starfsfólki þjónustudeildar hefur sinnt störfum sínum í algjörri óvissu um atvinnuöryggi undanfarin misseri. Engin skýr svör hafa borist frá bæjaryfirvöldum um næstu skref er varðar framtíð starfsfólksins fyrr en á bæjarstjórnarfundi sem var haldinn í gær.

Ályktanir – uppfært !

Athygli er vakin á því að hér á síðunni hafa ályktanir sem félagið hefur sent frá sér verið uppfærðar. Nýjustu ályktanirnar eru eftirfarandi:Ályktun um greiðsluvanda heimila og aðgerðarleysi stjórnvalda frá 2. sept sl.Ályktun aðalfundar Verk Vest 2009 frá 23. maí sl.Stjórnarályktun um eflingu atvinnulífs og jöfnun raforku- og flutningskostnaðar frá 5. maí sl.Eldri ályktanir frá […]

Grunnnám fyrir skólaliða í grunn- og leikskólum

Fræðslumiðstöðin heldur opinn kynningarfund um Grunnnám fyrir skólaliða mánudaginn 28. september kl. 20:00 í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12, Ísafirði. Fundinum er meðal annars ætlað að fá fram hversu mikill áhugi er á náminu, upplýsa um hvað felst í náminu og hvaða fyrirkomulag hentar væntanlegum þátttakendum best. Líta má á námið bæði sem starfsnám ætlað […]

Ekkert lát á hækkunum matvöru !

Enn eru miklar hækkanir á matvörum í verslunum, að því er fram kemur í nýrri mælingu verðlagseftirlits á vörukörfu ASÍ sem gerð var um sl. mánaðarmót (viku 36). Við samanburð á mælingu verðlagseftirlitsins frá því í maí (viku 19), hækkar vörukarfan um 2-5% hjá öllum verslunarkeðjum nema Nóatúni, þar sem karfan lækkar um 1%. Miklar […]

Viðmiðunarverð á þorski og karfa hækkar

Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 7. september 2009 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum þorski um 5% og viðmiðunarverð á karfa um 10%. Verðhækkunin tekur gildi 7. september. Þá skal einnig minnt á fæðispeningar sjómanna á fiskiskipum hækkuðu frá og með 1.júní 2009. Hækkunin nemur 17,5% og kemur til vegna […]

Hvers virði er ferðaþjónustan? Málþing SGS og Matvís

Starfsgreinasamband Íslands og Matvís, Matvæla og veitingafélag Íslands halda opið málþing á Hótel Ísafirði 24. september 2009 um framtíðarsýn í ferðaþjónustu. Málþingið, sem er haldið í samvinnu við Ferðamálsamtök Vestfjarða og Markaðsstofu Vestfjarða mun leitast við að svara spurningum um það hvers virði ferðaþjónustan er í atvinnusköpun á Íslandi og hvað þurfi til að fjölga störfum í greininni og gera þau verðmeiri. Frummælendur koma úr röðum atvinnulífsins, háskólasamfélagsins, launþegahreyfingarinnar og stjórnsýslunnar auk þess sem iðnaðarráðherra mun fytja ávarp. Eftir hverja framsögu verða fyrirspurnir og stuttar umræður. Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður VerkVest stjórnar málþinginu.

Vaxtatekjur skekkja kaupmáttar útreikninga Hagstofu

Jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna í fyrra? Þannig hljómar fyrirsögn á frétt ASÍ um útreikninga hagstofu Íslands á kaupmáttaraukningu sem á að hafa orðið á síðasta ári. Gera má ráð fyrir að flesta hafi rekið í rogastans þegar féttir af kaupmáttaraukningu komu fyrir augu almennings nú fyrr í vikunni. Ekki hefur hinn almenni launamaður fundið það á […]

Framkvæmdarstjórn SGS – nú þarf að koma verkunum af stað !

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins áréttar að Stöðugleikasáttmálinn hafi ekki verið undirritaður upp á grín. Á fundi framkvæmdarstjórnar SGS þann 2.september síðast liðinn var stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðarins mjög til umræðu. Einhugur ríkti meðal framkvæmdarstjórnar um að ekki væri við unað að Alþingis og embættismenn drægu lappirnar í þeim vanda sem blasir við verði ekki farið að koma brýnustu […]

Ný deildarstjórn kjörinn á Suðureyri

Á aðalfundi deildar verkal. og sjómannaf. Suðureyrar í Verk Vest var kosin ný deildarstjórn. Nýju stjórnina skipa eftirfarandi.Formaður – Lilja Rafney MagnúsdóttirVaraformaður – Lilja G. GuðbjörnsdóttirMeðstjórnandi – Jóhann Daníel Daníelsson Varamenn – Violetta Maria Duda – Dariuz Duda – Anna K. Kosmala.Á fundinum sköpuðust líflegar umræður um atvinnu og kjaramál sem og horfur með stöðugleikasáttmála […]

Laun og starfshlutfall rúmlega þriðjungs launafóks skertur

Í skoðunarkönnun sem Capacent Gallup vann fyrir ASÍ kemur fram að laun 35% þeirra sem eru í launaðri vinnu hafa lent í því að starfshlutfall eða laun hafa verið skert. Flestir af þeim sem hafa orðið fyrir skerðingu eða 18% hafa lent í launalækkun, þá hefur vinnutími hjá 9% svarenda verið skertur og 8% hafa orðið fyrir annarskonar skerðingu. Þetta er gríðarleg aukning frá því í desember 2008, en þá höfðu um 21% launafólks orðið fyrir skeðingu launa. Lang stærstur hluti þeirra sem hafa orðið fyrir skerðingu í formi lækkunar launa eða styttri vinnutíma eru iðnaðarmenn eða 40%.

Deildaraðalfundur verkal. og sjómannafél. Súganda

Deiladaraðalfundur verkalýðs og sjómannafélags Súganda, Suðureyrardeildar Verk Vest, verður haldinn í Bjarnarborg miðvikudaginn 2.september 2009 kl.20.00.Dagskrá. 1. Kosning deildarstjórnar og varamanna 2. Önnur mál Gestir fundarins verða formaður og varaformaður Verk Vest. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Miðstjórn ASÍ ályktar um greiðsluvanda heimilanna

Á fundi miðstjórnar ASÍ var samþykkt ályktun um greiðsluvanda heimilanna. Í ályktuninni er aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart þeim vanda sem almenningur í landinu stendur frammi fyrir harðlega gagnrýndur. Öll getum við verið sammála um að alltof miklum tíma hafi verið verið eytt í Icesavemálin í stað þess að ráðast í verkefni sem snúa að því að verja stöðu almennings í landinu. Þá hefur ekkert komið frá stjórnvöldum sem gefa vonir um að stöðugleikasáttmáli sem aðilar vinnumarkaðarins undirrituðu fyrr í sumar muni halda að óbreyttu.Ályktun miðstjórnar ASÍ er eftirfarandi.

Kjörgögn vegna kjarasamnings starfsmanna á ríkisstofnunum

Kjörgögn vegna kjarasamninga starfsmanna á ríkisstofnunum hafa nú verið send út samkvæmt kjörskrá fjársýslu ríkisins. Þeir sem ekki hafa fengið send kjörgögn í pósti en telja að viðkomandi eigi að vera á kjörskrá geta komið við á skrifstofu félagsins með launaseðil sem staðfestir kjörgengi og fengið afhent kjörgögn ásamt kjörseðli. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga eru […]

Átak gegn svartri atvinnustarfsemi

Samtök Iðnaðararins SI hafa nú hleypt af stokkunum auglýsingaátaki gegn svartri atvinnustarfsemi. Þessu átaki ber að fagna þar sem eitt af okkar helstu samfélagsmeinum er svört atvinnustarfsemi. Svarti markaðurinn hefur grafið undir eðlilegu samkeppnisumhverfi fyrirtækja og veikir réttarstöðu einstaklinga, bæði þeirra sem vinna svarta vinnu og þeirra sem kaupa svarta vinnu. Á heimasíðu SI má finna upplýsingar um svarta atvinnustarfsemi og þá fjármuni sem þjóðarbúið verður af vegna hennar á hverju ári.

KJörgögn vegna sveitafélagsamninga

Kjörgögn vegna kjarasamninga starfsmanna sveitarfélaga hafa nú verið send út samkvæmt kjörskrá sem liggur frammi á skrifstofu félagsins. Þeir sem ekki hafa fengið send kjörgögn í pósti en telja að viðkomandi eigi að vera á kjörskrá geta komið við á skrifstofu félagsins og fengið afhent kjörgögn ásamt kjörseðli. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga eru hvattir til […]

Utanhússviðgerðir á Pólgötu 2

Tilboð í útanhúsviðgerðir og málun. Verkalýðsfélag Vestfirðinga óskar eftir tilboðum í utanhúsviðgerðir á húsi félagsins Pólgötu 2 á Ísafirði. Í tilboðinu skal eftirfarandi vera innifalið: múrviðgerðir á útveggjum, endurnýjun á þakrennum og niðurföllum, gler endurnýjað þar sem þörf er á ásamt glerlistum þá skal skipt um alla undirlista. Opnanleg fög, þéttikantar, lamir o.þ.h. verði yfirfarið […]

Kaupgjaldsskrár uppfærðar

Í ljósi þess að samninganefndir ASÍ og SA hafa samþykkt samkomulagið frá 25. júní síðast liðnum þá hafa allflest landssambönd innan ASÍ nú uppfært sína launataxta. Verið er að vinna í að uppfæra launataxta á heimasíðu félagsins, þangað til þeirri vinnu er lokið bendum við félagsmönnum okkar á að nota eftirfarandi tengla þangað til þeirri vinnu verður lokið. Einnig er hægt að koma við á skrifstofu félagsins og fá útprentun á töxtunum, eða hafa samband og fá þá senda heim.

Víðtæk samstaða innan ASÍ um samkomulag við SA

Mikill meirihluti samninganefnda innan landsambanda ASÍ samþykktu samkomulag sem samninganefnd ASÍ skrifaði undir við Samtök atvinnulífsins (SA) þann 25. júní síðast liðinn. Samkvæmt því munu almenn taxtalaun því hækka um kr 6.750 frá 1. júlí 2009, taxtalaun skrifstofufólks og faglærðra iðnaðarmanna hækka um kr 8.750. Gangi aðgerðir ríkisstjórnarinnar eftir þannig að svigrúm myndist til vaxtalækkana mun það ýta enn frekar undir að samkomulagið við SA haldi. Að því gefnu munu almenn taxtalaun því hækka aftur þann 1. nóvember um kr 6.750 og taxtalaun skrifstofufólks og faglærðra iðnaðarmanna um kr 8.750 þá munu þeir launahópar sem ekki eru á taxtalunum fá 3,5% hækkun að því gefnu að laun þeirra hafi ekki hækkað frá 1. janúar – 1. nóvember 2009. Aðrar kjarabreytingar sem áttu að taka gildi þann 1. janúar 2010 munu þá taka gildi þann 1.júní 2010 má þar nefna að taxtalaun hækka um kr 6.500.

Fræðslustarf vinnuskóla Ísafjarðarbæjar til fyrirmyndar

Það er mikið um að vera hjá vinnuskólakrökkum í Ísafjarðarbæ þessa dagana, auk þess að snyrta umhverfi Ísafjarðarbæjar þá hefur einnig verið í gangi öflugt fræslustarf, enda á vinnuskólinn að vera sambland af vinnu, leik og fræslu. Krakkarnir ásamt flokksstjórum hafa sótt námskeið í skyndihjálp og þá hefur Verk Vest einnig verið með kynningu sem […]

Skrifað undir kjarasamning við sveitarfélögin

Samkomulag um framlengingu og breytingu á kjarasamningi við Launanefnd sveitarfélaga var undirrituð í gærkvöldi. Gildistími samkomulagsins er frá 1. júli 2009 – 30. nóvember 2010 án endurskoðunarákvæða og tekur ný launatafla gildi frá og með 1. júli 2009 verði samningurinn samþykktur. Í samkomulaginu kveður einnig á um að lágmarkslaun fyrir fullt starf skuli vera kr. 157.000 frá 1. júli 2009 kr. 165.00 frá 1. nóvember og kr. 170.000 þann 1. júní 2010. Þetta á við um starfsmenn sem eru 18 ára og eldri sem hafa starfað í fjóra mánuði samfellt hjá sama sveitarfélagi. Laun fyrir tímamælda ákvæðisvinnu og fermetragjald í ræstingu hækka um 11.4% á samningstímanum. Orlofsuppbót hækkar í kr 25.800 fyrir árið 2010 en desemberuppbótin verður óbreytt út samningstímabilið.

Kjarasamningur við ríkið undirritaður – helstu atriði

Samninganefnd SGS og ríkisins náðu loksins samkomulagi sem var undirritað á áttunda tímanum þann 4. júlí. Frá þessu er greint á heimasíðu SGS en þar má einnig finna helstu áhersluþætti samkomulagsins og framkvæmdaáætlun.

Ný spá hagdeildar ASÍ staðfestir miklar þrengingar framundan

Samkvæmt því sem kemur fram í spá hagdeildarinnar þá munum landsmenn sigla inn í tvö mjög erfið ár þar sem landsframleiðsla mun dragast mikið saman og mikið atvinnuleysi mun vera viðvarandi. Ekki fari að draga úr atvinnuleysinu fyrr en kemur fram á árið 2011. Eins og við velflest höfum fengið að kynnast þá hafa heimilin ekki farið varhluta af þeim þrengingum sem yfir okkur ganga og eins og kemur fram í spánni þá mun staða heimilanna áfram verða þröng þar sem ráðstöfunartekjur lækka og atvinnuástandið verður áfram slæmt.

Niðurstaða samninganefndar Verk Vest verður gerð opinber 13. júlí

Á fundi samninganefndar Verkalýðsfélags Vestfirðinga þann 25. júní sl. kynnti formaður félagsins samkomulag ASÍ og SA og einnig stöðugleikasáttmála milli aðila vinnumarkaðarins og rískisstjórnarinnar. Það má vera ljóst á sáttmálanum að landsmenn munu ekki fara varhluta af þeim gríðarlega niðurskurði sem og þeim skattahækkunum sem þar eru boðaðar. En einnig má vera ljóst að ef samkomulag um breytingar á kjarasamningi hefði ekki náðst þá gæti staða launamanna orðið mun verri. Þess ber þó að geta að samkomulagið felur í sér frestun á endurskoðunarákvæði kjarasamninga sem þurfa að liggja fyrir eigi síðar en 27. október nk.