Enn hækkar matarkarfan í verði !

Hinn almenni launamaður fer ekki varhluta af stöðugum hækkunum matvara og annarra nauðsynja til reksturs heimila. Ýmis útgjöld eins og viðhald húsnæðis hafa aukist umtalsvert svo ekki sé minnst á rekstrargjöld heimilisbílsins. Samkvæmt nýjustu úttekt verðlagseftirlitsins á vörukörfu ASÍ þá nemur hækkunin um 35% frá því í apríl á síðasta ári. Á þessu sama tímabili […]

Örvun hagkerfisins nauðsynleg

Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga fer yfir það í pistli hér á síðunni að ráð- og stefnuleysi megi ekki ráða för þrátt fyrir að mikið gangi á í pólitíkinni. Leita verði leiða til að örva hagkerfið og skapa atvinnumöguleika með því að boða til sóknar í framkvæmdum á vegum ríkis og sveitafélaga. Þegar pistillinn var skrifaður hékk […]

Kjarasamningur sjómanna samþykktur

Kosningu um framlengingu á kjarasamningi sjómanna í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga lauk kl.17:00 þann 30. desember sl. Kynningarfundir um samkomulagið fóru fram dagana 22.desember í skrifstofu félagsins á Ísafirði og 29. desember í húsnæði Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og var fundurinn sendur út um fjarfundarbúnað til Patreksfjarðar. Á kjörskrá voru 120 sjómenn í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga og greiddu 33 atkvæði […]

Kjarasamningur sjómanna samþykktur

Sameiginlegri talningu atkvæða um kjarasamninga milli Sjómannasambands Íslands, Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Sjómannafélags Íslands fór fram hjá ríkissáttasemjara fyrr í kvöld. Engar kærur eða athugasemdir höfðu borist til kjörstjórnar vegna framkvæmdar kosningarinnar. Á kjörskrá voru alls 2.214 sjómenn og greiddu 1.189 atkvæði eða 53,7% þeirra sem voru á kjörskrá. Niðurstaða sameiginlegrar talningar […]

Breytingar á persónuafslætti og atvinnuleysisbótum

Frá og með 1.janúar 2009 koma inn hækkanir á persónuafslætti og sjómannaafslætti. Einnig kemur til framkvæmda hækkun á atvinnuleysisbótum, bæði grunnatvinnuleysisbótum og tekjutengdum. Þann 1. janúar hækkar persónuafsláttur úr kr.34.034 í 42.205 og nemur hækkunin því kr.8.171. Sjómannaafsláttur hækkar úr kr. 874 á dag í kr.987 á dag eða 113 krónu hækkun á dag. Hækkun […]

Kjörfundur vegna kjarasamninga sjómanna

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur staðið fyrir tveimur kynningarfundum um kjarasaminga sjómanna á Vestfjörðum og hafa fundarmenn getað kosið um samninginn að loknum kynningum. Í þessu sambandi er rétt að ítreka að kjörfundur er einnig í dag 29.desember til kl 17:00 og á morgun 30. desember frá kl.08:00 – 17:00 í skrifstofu félagsins á Ísafirði. Sjómenn eru […]

Jólakveðja

Verkalýðsfélag Vestfirðinga sendir bestu óskir um gleðileg jól, gott og farsælt ár með þökkum fyrir samstarfið á árinu. Megi nýtt ár færa ykkur öllum farsæld og frið. Jólakveðja frá Verk -Vest

Jólakveðja

Stjórn og starfsfólk Verkalýðsfélags Vestfirðinga óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Merry Christmas and a happy new year! Wesolych Swiat Bozego Narodzenia. Priecigus Ziemsvetkus un laimigu Jauno Gadu! Maligayang Pasko at manigong bagong taon. เมอรี่คริสต์มาส และสวัสดีปีใหม่

Jólagjöfin í ár – enn frekari hækkun á verðbólgu !

Nýjustu mælingar á verðbólgu sýna að sá raunveruleiki sem blasir við okkur er með nöturlegri jólakveðjum sem heimili landsmanna fá yfir sig þessa dagana. Þrátt fyrir að ráðamenn þjóðarinna hafi hvatt til þess að hækkanir á neysluvöru yrðu takmarkaðar af fremsta megni, þá hafa þeir nú boða ýmsar hækkanir sem eiga eftir að reynast mörgu heimilinu erfiðar. Hvaða skilaboð sendir þetta út í samfélagið, jú við skulum líka hækka, það hlýtur að vera í lagi ! Við skulum rétt vona að verslun og þjónusta fari ekki í sama farveg og ríkisstjórnin og æði af stað með hækkanir með skeliflegum afleiðingum fyrir samfélagið allt.

Kynningarfundir vegna kjarasamninga sjómanna

SJÓMENN ATHUGIÐ ! Verkalýðsfélag Vestfirðinga verður með kynningarfundi um kjarasamning sjómanna mánudaginn 22.desember og mánudaginn 29.desember. Kynningarfundurinn 22.desember hefst kl.13:30 í húsi félagsins á Ísafirði. Kosning um kjarasamninginn verður að lokinn kynningu. Kynningarfundurinn 29.desember hefst kl. 13:30 í húsnæði Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða á Ísafirði. Sjómenn á sunnanverðum Vestfjörðum eru hvattir til að mæta í þekkingarsetrið Skor […]

Miðstjórn ASÍ ályktar um fjárlagafrumvarp og ráðstafanir í ríkisfjármálum

Miðstjórnar ASÍ kom saman 17. des. og fjallaði um fjárlagafrumvarp og ráðstafanir í ríkisfjármálum. Í ályktun fundarins segir að óhjákvæmilegt sé að ráðast í það erfiða verkefni að taka á hallarekstri ríkissjóðs. Að áilit miðstjórnar mun það taka nokkur ár að koma ríkisfjármálunum í jafnvægi. Miðstjórnin leggur á það áherslu að stjórnvöld leggi fram tillögur sem taka á því hvernig jafnvægi verði komið á ríkisreksturinn á næstu árum og óvissu verði þannig eytt. Miðstjórnarfundur telur afar mikilvægt að varin verði staða þeirra sem minnst mega sín við þessar erfiðu aðstæður, s.s. elli- og örorkulífeyrisþega. Í þeim ráðstöfunum sem kynntar hafa verið vantar verulega á að þetta hafi verið gert. Heildarsamtök launafólks ákváðu því í síðustu viku að fresta öllum viðræðum um endurskoðun og gerð nýrra kjarasamninga vegna áranna 2009 og 2010 fram yfir áramót. Ályktun fundarins ér svohljóðandi:

Kjarasamningar sjómanna undirritaðir

Normal 0 false false false MicrosoftInternetExplorer4 /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable {mso-style-name:“Table Normal“; mso-tstyle-rowband-size:0; mso-tstyle-colband-size:0; mso-style-noshow:yes; mso-style-parent:““; mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt; mso-para-margin:0cm; mso-para-margin-bottom:.0001pt; mso-pagination:widow-orphan; font-size:10.0pt; font-family:“Times New Roman“; mso-ansi-language:#0400; mso-fareast-language:#0400; mso-bidi-language:#0400;} Vinnulotu við kjarasamningsgerð sjómanna lauk á fimmta tímanum í dag með undirritun kjarasamninga Alþýðusambands Vestfjarða, Sjómannasambands Íslands, Farmanna- og fiskimannasabands Íslands og VM félags […]

Samningur SGS við Launanefnd sveitarfélaga samþykktur

Niðurstaða atkvæðagreiðslu um samning SGS við Launanefnd sveitarfélaga, sem skrifað var undir 29. nóvember sl. liggur nú fyrir. Alls voru 1.661 einstaklingar á kjörskrá. Atkvæði greiddu 753 eða 45,3%. Já sögðu 726, nei sögðu 25. Auðir og ógildir seðlar voru 2. Niðurstaðan er sú að samningurinn var samþykktur með miklum meirihluta greiddra atkvæða eða 96,4%. […]

Fórnið ekki réttindum – aldrei of varlega farið !

Verkalýðsfélag Vestfirðinga vill koma því á framfæri við félagsmenn að þrátt fyrir að nú séu ýmsar blikur á lofti er varða atvinnuhorfur þá gilda kjarasamningar og réttindabundin ákvæði sem þeim tengjast. Um laun er samið í kjarasamningi og getur atvinnurekandi því ekki ákveðið að lækka laun einhliða. Breytingar á ráðningarkjörum eru bundnar við sama fyrirvar og uppsagnarfresturinn er í hverju tilfelli. Þrátt fyrir erfiðleika á vinnumarkaði gilda ennþá lög og reglur á vinnmarkaði og því verða báðir aðilar að hlíta.

26. þings Sjómannasambands Íslands

Normal 0 false false false MicrosoftInternetExplorer4 /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable {mso-style-name:“Table Normal“; mso-tstyle-rowband-size:0; mso-tstyle-colband-size:0; mso-style-noshow:yes; mso-style-parent:““; mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt; mso-para-margin:0cm; mso-para-margin-bottom:.0001pt; mso-pagination:widow-orphan; font-size:10.0pt; font-family:“Times New Roman“; mso-ansi-language:#0400; mso-fareast-language:#0400; mso-bidi-language:#0400;} Verkalýðsfélag Vestfirðinga átti 3 fulltrúa á 26. þingi SSÍ sem haldið var dagan 4 – 5. desember í Reykjavík. Umræðan um atvinnu og kjaramál […]

Viðhald og endurbætur eldri timburhúsa – námskeið á Patreksfirði

Dagana 5. og 6. desember nk. mun Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samstarfi við Húsafriðunarnefnd og VerkVest halda námskeið á Patreksfirði ætlað húsasmiðum. Á námskeiðinu verður fjallað um undirstöður og burðarvirki eldri timburhúsa. Farið er yfir frágang bæði utan- og innanhúss. Skoðuð eru gömul hús sem hefur verið gert við og hús sem þarfnast viðgerða. Einnig er […]

„Lægjum öldu reiði og óánægju – byggjum upp til framtíðar !“

Fundur stjórnar og trúnaðarráðs Verkalýðfélags Vestfirðinga sem var haldinn í húsi félagasins í gær var vel sóttur og umræður heitar og líflegar. Fyrsta mál á dagskrá fundarins var nýgerður samningur við Launanefnd sveitafélaga um framlengingu kjarasamnings og breytingar sem honum fylgja. Þá var einnig tekið fyrir breytingar á atvinnuleysisbótum sem fjall um hlutastörf og hlutabætur sýndist sitt hverjum í þeim efnum en almennt voru fundarmenn á því að þessar breytingar stuðluðu að því að gera fyrirtækjum og starfsfólki að halda ráðningarsambandi ef fara á í breytingar á starfskjörum. Ítrekað var að fyrirtæki ættu að skoða þessa möguleika áður en ákvörðun yrði tekin um uppsagnir.

Skrifað undir samning við sveitarfélögin – megin áhersla á launaliði

Á fimmta tímanum í dag skrifaði samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands ( SGS ) undir samning við Launanefnd sveitarfélagnna ( LN ) um framlengingu og breytingar á kjarasamningi við sveitafélögin. Gildistími samningsins er frá 1.desember 2008 – 31. ágúst 2009. Einnig var undirrituð yfirlýsing milli aðila sem tekur á því að náist sátt um sameiginlega niðurstöðu á almennum og opinberum markaði, þá mun sú niðurstaða gilda frá þeim tíma og með þeim breytingum sem niðurstaðan felur í sér.

Samfélag siðvæðingar – eigum við að borga fyrir patrýið ?

Þriðji fundurinn í röð fundarherferðar Alþýðusambands Íslands var haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í gærkvöldi. Fundurinn var í samstarfi við Verkalýðsfélag Vestfirðinga og landssambönd innan ASÍ. Ræðumenn kvöldsins voru þeir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Finnbogi Sveinbjörnsson formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, fundarstjóri var Finnur Magnússon formaður verslundardeildar Verk Vest. Málefnalegar umræður sköpuðust í kjölfar framsögu þeirra […]

Námskeið í fjármálalæsi

Félagsmálaskóli Alþýðu og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa fyrir námskeiði í Fjármálalæsi – Fjármál heimilanna. Námskeiðið, sem verður í samstarfi við Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Ísafjarðarbæ, Vesturbyggð og Strandabyggð, er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Hlutastörf og hlutabætur

Að tilstuðlan félags- og tryggingamálaráðherra, ASÍ og SA hafa verið gerðar breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóð launa sem er ætlað að koma til móts við breyttar aðstæður á vinnumarkaði og þá áherslu sem lögð hefur verið á mikilvægi þess að sem flestir geti verið virkir þátttakendur á vinnumarkaði að einhverju leyti, sjálfum sér og samfélaginu til hagsbóta.

Áfram Ísland – fyrir hag heimilanna

Alþýðusamband Íslands í samstarfi við Verkalýðsfélag Vestfirðinga stendur fyrir opnum fundi í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 20. nóvember kl. 20:00. Fundarefni: Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ mun ræða um stöðuna og framtíðarsýn Alþýðusambandsins. Áhersla verður lögð á fyrirspurnir úr sal þar sem að formenn landssambanda og forsetinn munu sitja fyrir svörum. Áherslur ASÍ til varnar heimilum, […]

Ný pökkunar vél hjá Mjólkurstöðinni

Á dögunum var tekin í notkun ný pökkunar vél hjá Mjólkurstöðinni á Ísafirði. Með tilkomu vélarinnar má segja að styrkari stoðum hafi verið skotið undir að sú starfsemi sem hér fer fram verði áfram í heimabyggð. Töluverð fyrirhöfn var að ná vélinni hingað vestur, en hún hafði verið föst á Akureyri frá því í vor. […]

Hópferð Verk Vest til Kraká í Póllandi

Orlofsnefnd Verk Vest skipulagið hópferð til Kraká í Póllandi dagana 17. – 23. október síðast liðinn. Undirbúningur ferðarinnar hófst snemma á þessu ári og þá voru fá merki þess að efnahagsástandið yrði með þeim hætti sem nú er reyndin. Þrátt fyrir þessar þrengingar tók 21 félagi þátt í ferðinni sem þótti takast mjög vel í […]

Gífurleg hækkun stýrivaxta – óskiljanleg ákvörðun !

Formaður Verk Vest fjallar um þær afleiðingar sem boðar stýrivaxtahækkanir Seðlabankans gætu haft í för með sér fyrir atvinnulíf landsmanna í pistli hér á síðunni. Hér fyrir neðan má lesa stuttan útdrátt úr pistlinum.“ Stjórn seðlabankans hefur tekið þá ákvörðun að veita atvinnulífi landsmanna náðarhöggið með 550 punkta hækkun stýrivaxta. Var vandinn ekki nægur þótt […]

Lífeyrissjóðsiðgjöld og staða lífeyrissjóðanna

Íslenskt launafólk er þeirrar gæfu aðnjótandi, að eiga og reka eitt öflugasta lífeyrissjóðakerfi heims. Skv. lögum ber okkur að greiða til lífeyrisjóðanna a.m.k.4% af launum gegn 8% mótframlagi atvinnurekanda eða alls 12%. Þessi framlög renna til samtryggingar. Fjölmargir greiða einnig viðbótarlífeyrissparnað 2-4% gegn 2% mótframlagi atvinnurekanda. Vegna þeirra efnahagsörðugleika sem á hafa dunið er fyrirsjáanlegt […]

Hvaða inneignir almennings eru tryggðar ?

Alþýðusamband Íslands, ASÍ, hefur gefið út leiðbeiningar vegna inneigna almennings í banka og fjármálastofnunum. Er þar farið yfir hvaða reglur gilda um innistæður, séreignasparnað og séreignasjóði. Er þar bæði vísað í lög um innistæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta þ.e. tryggingasjóðslögin, og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 6. október sl. en samkvæmt henni mun ríkissjóður ábyrgjast allar innistæður. […]

Úr mínus í plús – ekki veitir af !

Ákveðið hefur verið að bjóða félagsmönnum Verkalýðsfélags Vestfirðinga að taka þátt í námskeiðinu „Úr mínus í plús“ félagsmönnum að kostnaðarlausu. Námskeiðið verður haldið á Ísafirði 21. október nk. frá kl. 18:15 – 22:15. Verið er að kanna möguleikana á því að fá samskonar námskeið á Hólmavík og Patreksfirði. Má segja að tímasetning námskeiðsins gæti ekki […]

Rekstrarerfiðleikar og réttarstaða launafólks

Í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem hafa skapast í íslensku þjóðlífi og því gjörningaveðri sem nú ríkir á banka- og fjármálamarkaði hefur Alþýðusambandi Íslands (ASÍ) gefið út upplýsingabækling til aðstoðar launþegum. Þarna er tekið á helstu réttindamálum ef til uppsagna og gjaldþrota kemur og einnig hvernig ný lög sem samþykkt voru á alþingi gætu haft […]