Um hádegi í gær 29. júní var skrifað undir endurnýjaðan kjarasamning vegna sjómanna í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga ( Verk Vest ) við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Verði endurnýjaður samningur samþykktur af sjómönnum taka breytingar samningsins gildi frá og með 1. júní 2016. Kjarasamningurinn var áður samningur Alþýðusambands Vestfjarða ( ASV ) við útgerðarmenn (LÍÚ) en verður nú að sjálfstæðum kjarasamningi Verk Vest við SFS. 

Samningurinn er að mestu sambærilegur við kjarasamning Sjómannasambandsins (SSÍ) fyrir utan gildistíma og breytingu á kauptryggingu og kaupliðum. Fyrir utan þær breytingar liggja nokkur verðmæti í bóknum um vinnu við lausn ágreiningsmála sem unnið verður að á samningstíma undir verkstjórn sáttasemjara, bókun um mönnunarmál sem byggir á gildandi ákvæðum sjómannalaga nr. 35/1985, og reglugerð nr. 975/2004 um vinnu- og hvíldartíma skipverja á íslenskum fiskiskipum sem Samgöngustofa mun hafa usjón með. Einnig er von á frumvarpi ríksistjórnar vegna skattfrjálsra fæðispeninga að hluta og er það framlag ríkisstjórnar til að liðka fyrir samningsgerð. 

Samningurinn mun fljótlega fara í kynningu meðal sjómanna í Verk Vest og atkvæðagreiðslu. Það er mat formanns samninganefndar félagsins að lengra varð ekki komist án átaka. Nú er það sjómanna að greiða atkvæði um samninginn, verði hann samþykktur tekur hann gildi frá 1. júní 2016, en verði hann felldur munu sjómenn í Verk Vest væntanlega greiða atkvæði um boðun verkfalls í haust.

Eintak af undirrituðum breytingum á endurnýjuðum kjarasamningi má finna hér.

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.