Góð þátttaka var þrátt fyrir Fossavatnsgöngu sem fór fram á sama tíma
Góð þátttaka var þrátt fyrir Fossavatnsgöngu sem fór fram á sama tíma
1 af 4
Afar fjölsóttur fundur um atvinnumál á Vestfjörðum var haldinn á Ísafirði í dag.  Fundinn sóttu um 150 manns víðsvegar að af Vestfjörðum.  Að fundinum stóðu verkalýðsfélög og atvinnufyrirtæki á svæðinu, til að vekja athygli á alvarlegri byggðaþróun á Vestfjörðum.  Framsögumenn fjölluðu um tækifæri, aðstæður og samkeppnisskilyrði atvinnufyrirtækja og leiðir til úrbóta.  Ráðherrarnir Jón Bjarnason og Ögmundur Jónasson, sátu fyrir svörum auk Guðna A Jóhannessonar, orkumálastjóra sem var fulltrúi iðnaðarráðherra.  Auk þeirra voru fulltrúar viðskiptabankanna, Fjárfestingarsjóðs Íslands og Orkubús Vestfjarða.

Fram kom í máli innanríkisráðherra að hann hefði skipað starfshóp undir forystu Guðmundar Kristjánssonar, hafnarstjóra á Ísafirði til þess að koma fram með tillögur um strandsiglingar. Var því vel tekið af fundarmönnum.  Auk þess lýsti ráðherra því yfir að mest væri þörfin fyrir samgönguframkvæmdir á Vestfjörðum og Austfjörðum og ættu framkvæmdir þar að njóta forgangs að vegafé.  Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, lýsti því yfir að fyrirhugaðar breytingar á löggjöf í sjávarútvegi ættu að styrkja stöðu strandveiða og að aukin byggðatenging og byggðafesta myndu styrkja samkeppnisstöðu sjávarbyggða. 

Flutt voru þrettán framsöguerindi um skiptinga skatttekna, samgöngur, nýtingu auðlinda og aðgengi að fjármagni.   Í máli Vífils Karlssonar, hagfræðings kom fram að stjórnvöld væru að valda verulegu ójafnvægi í milli landssvæða með ráðstöfun skattfjár til starfsemin hins opinbera.  Telur Vífill á grundvelli rannsókna sem hann hefur unnið, að landsbyggðin njóti í mun minna mæli ávinnings af ráðstöfun skattfjár.   

Ályktanir, glærur og annað efni frá ráðstefnunni mun verða aðgengilegt hér á síðunni innan skamms,

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.