Á Patreksfirði verður hátíðin á Vatneyrarvelli og ætla félagar í Björgunarsveitinni Blakki að sjá um að grilla pylsur ofan í liðið og stjórna hópleikjum fyrir börnin og hina fullorðnu.
Í Súðavík verður hátíðin haldin í Raggagarði með svipuðu sniði. Grillaðar verða pylsur og farið í leiki.
Félagar í VerkVest eru hvattir til að fjölmenna með fjölskyldum sínum og hafa það gaman saman.