Í kjarasamningum á árinu 2008 var samið um starfsemi VIRK og fyrstu
ráðgjafar VIRK hófu störf á árinu 2009. Síðan
þá hafa um 4500 einstaklingar leitað til VIRK og um 2000 einstaklingar
hafa lokið þjónustu. Flestir sem útskrifast frá VIRK hafa getu til
þátttöku á vinnumarkaði á ný.
Á sama tíma og uppbygging VIRK hefur átt sér stað hefur þjóðin gengið í
gegnum eitt mesta efnahagshrun síðari ára með
miklu atvinnuleysi og erfiðleikum hjá fjölda fólks. Það var og er
ástæða til að óttast að þessar aðstæður
valdi því að fleiri einstaklingar en áður búi við skerta starfsgetu og
fari á örorkulífeyri til lengri tíma. Rannsóknir
og reynsla bæði hérlendis og erlendis hafa einnig sýnt fram á slæm áhrif
langtíma atvinnuleysis á heilsu og vinnugetu einstaklinga.
Byggð hefur verið upp öflug starfsendurhæfingarþjónusta um
allt land á vegum VIRK og í samvinnu við
stéttarfélög og fjölda annarra aðila. Nú eru starfandi hjá
stéttarfélögum um 40 ráðgjafar og VIRK hefur gert
samninga við fjölda úrræðaaðila og starfsendurhæfingarstöðvar um allt
land til að tryggja einstaklingum fjölbreytta ráðgjöf,
þjónustu og úrræði við hæfi.
Að þessu starfi kemur því fjöldi fagaðila
sem vinnur markvisst að því
að bæta vinnugetu og lífsgæði fólks sem þarf á stuðningi að halda í
kjölfar veikinda eða slysa. Þessi
þjónusta á án efa sinn þátt í því að færri einstaklingar hafa farið á
örorkulífeyri en búast
mátti við í kjölfar hrunsins enda hafa um 2000 einstaklingar lokið
starfsendurhæfingu á vegum VIRK og flestir þeirra eru með vinnugetu að
fullu
eða hluta við útskrift. Starfsendurhæfing skilar árangri - bæði
fjárhagslegum og í formi aukinna lífsgæða og er
því án efa arðbær fjárfesting fyrir einstaklinga og þjóðfélagið.
Búast má við að
það muni taka langan tíma að vinna úr afleiðingum kreppunnar til
framtíðar. Nú stöndum við t.d. frammi fyrir því að
stærri hópur en nokkru sinni fyrr hefur verið atvinnulaus í mjög langan
tíma og það getur haft alvarlegar afleiðingar á starfsgetu
þessara einstaklinga til framtíðar. Áhrif kreppunnar hvað þetta varðar
eru því að öllum líkindum ekki að fullu komin fram
og því er gríðarlega mikilvægt að gera enn betur en áður.
Nánar má lesa um þetta á heimasíðu
VIRK.