Þann 14. nóvember var skrifað undir endurnýjaðan kjarasaming sjómanna og var verkfalli frestað frá kl.20:00 þann 15. nóvember. Rafræn atkvæðagreiðsla um endurnýjaðan kjarasamninga sjómanna í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga er hafin. Kjarasamingur Verk Vest fyrir sjómenn er sjálfstæður samningur því er talið sér hjá okkar félagi. Verði kjarasamningur Verk Vest felldur hefst verkfall að nýju þann 14. desember kl.20:00.
Kosning um kjarasamninginn stendur til kl.12:00 miðvikudaginn 14. desember.
ATKVÆÐAGREIÐSLA UM KJARASAMNING SJÓMANNA
Hægt er að auðkenna sig/skrá sig inn til að greiða atkvæði með því að slá inn kennitöluna sína og síðan leyniorðið sem viðkomandi fékk sent í kynningarbréfinu. Einnig er hægt að auðkenna sig beint með innskráningu á island.is þ.e. með Íslykli eða rafrænum skilríkjum á farsíma. Þeir sem týna bréfinu með lykilorðinu og þeir sem kært hafa sig inn á kjörskrá geta einungis greitt atkvæði með innskráningu á island.is.
Opnast nú Atkvæðaseðill Þar er merkt í Já eða Nei eða Skila auðu og atkvæðinu skilað með því að smella á „Skrá atkvæði“.
Leynd atkvæða er tryggð - EKKI ER HÆGT AÐ REKJA ATKVÆÐI TIL FÉLAGSMANNS.