mánudagurinn 18. maí 2009

Bíldudalssókn færðar góðar gjafir

Hannes Friðriksson formaður Bíldudalssóknar þakkar góðar gjafir
Hannes Friðriksson formaður Bíldudalssóknar þakkar góðar gjafir
1 af 6

 

Á stjórnarfundi Verk Vest sem var haldinn laugardaginn 16. maí í Gamla skóla á Bíldudal voru Bíldudalssókn færðar góðar gjafir. En á stjórnarfundi þann 1. apríl sl. var samþykkt að eignarhlutur Verk Vest í Gamla skóla yrði færður Bíldudalssókn að gjöf. Með gjöfinni fylgdi allt innbú í eigu félagsins og aðrir þeir munir í eigu félagsins sem hafa sögulegt gildi fyrir Bíldudal. Þá var sóknarnefnd einnig færð peningagjöf til viðhalds á húsinu.  Formaður sóknarnefndar ásamt sóknarpresti Bíldælinga færðu félaginu góðar þakkir fyrir höfðinglega gjöf og vonaðist til áframhaldandi góðs samstarfs við félagið í framtíðinni.

Á fundinum samþykkti stjórn félagsins að taka undir ályktun málþings um sókn í eflingu atvinnulífs á suðursvæði Vestfjarða frá 5. maí sl. Í framhaldi af umræðum um atvinnu- og samgöngumál í fjórðungnum var einnig samþykkt að senda út eftirfarandi ályktun.


"Stjórnarfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga haldinn á Bíldudal 16. maí 2009 tekur undir ályktun málþings "Sókn í eflingu atvinnulífs á suðursvæði Vestfjarða" frá 5. maí sl.  Engin sanngirni felst í því að þau landssvæði sem tóku á sig mikinn skell vegna ofþenslu síðustu ára þurfi að taka á sig enn frekari skell vegna þeirrar kreppu sem nú dynur á heimilum landsmanna. Fundurinn beinir þeim tilmælum til Alþingis að horfa sérstaklega til þeirra sóknarfæra sem felast í atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni bæði í sjávarútvegi og landbúnaði.

 

Fundurinn krefst þess að stjórnvöld geri stórátak í jöfnun raforku- og flutningskostnaðar sem og standa við fyrri hugmyndir um flutning opinberra starfa til landsbyggðarinnar.  Þá verði átak í samgöngumálum Vestfirðinga sett í algjöran forgang, þannig að heilsárstenging suður- og norðursvæðis verði að veruleika sem fyrst.  Í þeim málum eru vestfirskir vegir mörgum áratugum á eftir í uppbyggingu og þróun. Sú tenging mun skjóta styrkari stoðum og efla samvinnu og samstarf í atvinnumálum á norður- og suðursvæði Vestfjarða."

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.