Með breytingum á lögum um fæðingar-
og foreldraorlof sem samþykktar voru á Alþingi í desember 2012 og tóku gildi 1.
janúar 2013 og í áföngum á árunum 2014, 2015 og 2016 er að nokkru bætt fyrir
þær skerðingar sem gerðar hafa verið á síðustu árum, auk þess sem
fæðingarorlofið verður lengt í áföngum á næstu árum í 12 mánuði vegna barna sem
fæðast (eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur) 1. janúar 2016 og síðar.
Helstu breytingarnar sem tóku gildi
vegna barna sem fæddust (voru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur) 1. janúar
2013 og síðar eru þessar:
a)
Hlutfall við útreikning fæðingarorlofs er 80% af heildartekjum í
viðmiðunarmánuðunum. Þó eru greiðslur úr fæðingarorlofssjóði til foreldris
aldrei hærri en 350.000 krónur á mánuði.
b) Greiðslur í
fæðingarorlofi til foreldris í 25-49% starfi í hverjum mánuði eru aldrei lægri
en 94.938 krónur og til foreldris í 50-100% starfi í hverjum mánuði 131.578
krónur. Fæðingarstyrkur til foreldris í fullu námi eru 131.578 krónur á mánuði
og fæðingarstyrkur annarra 57.415 krónur á mánuði.
Fæðingarorlofið lengist í áföngum á
næstu árum:
2014: Réttur foreldra til fæðingarorlofs verður tíu
mánuðir vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á
árinu 2014.
2015:
Réttur foreldra til fæðingarorlofs verður ellefu mánuðir vegna barna sem
fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á árinu 2015.
2016:
Réttur foreldra til fæðingarorlofs verður tólf mánuðir vegna barna sem fæðast,
eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá 1. janúar 2016.
Þá kveða lögin sérstaklega á um réttarstöðu
þungaðra kvenna, kvenna sem nýlega hafa alið börn og sem eru með börn á brjósti
og skyldur atvinnurekenda gagnvart þeim.
Nánar er fjallað um breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof á heimasíðu ASÍ.