þriðjudagurinn 22. júní 2010

Fjölskyldudagur Verk Vest 26.júní

Frá víkingasvæðinu á Þingeyri
Frá víkingasvæðinu á Þingeyri
1 af 2
Fjölskyldudagurinn verður að þessu sinni á víkingasvæðinu á Þingeyri laugardaginn 26.júní milli kl.14.00 og 17.00. Á þingeyri er búið að byggja upp skemmtilegt útivistarsvæði í víkingastíl og er svæðið myndað úr hringhleðslu úr grjóti. Þar er gott svæði til leikja og einnig grillaðstaða, svið, bekkir og borð. Þarna ætlum við að grilla, syngja saman og fara í ýmsa skemmtilega leiki. Fyrir þá sem vilja verður boðið upp á siglingu með víkingaskipinu Vésteini. Einnig er rétt að minna á strandblakvöllinn góða og frábæra Sundlaug í næsta nágreni við víkingasvæðið á Þingeyri. Þannig að allir í fjölskyldunni ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og eiga góðan dag í góðra vina hópi á laugardaginn.  

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.