Frá formannafundi SGS á Húsavík. Mynd: framsyn.is
Formenn og varaformenn aðildarfélaga
Starfsgreinasambands Íslands áttu mjög góðan fundi á
Húsavík dagana 3.-4. júní til að fara yfir undirbúning kjarasamninga. Frá Verk Vest fóru þeir Finnbogi Sveinbjörnsson og Ólafur Baldursson.
Á fundinum kom fram að félögin væru komin af stað í undirbúning með ýmsum hætt, víða eru haldnir fundir með trúnaðarmönnum, gerðar
kannanir á vinnustöðum og haldnir opnir fundir með starfsfólki. Með þessum hætti er sem flestum gefið færi á
að koma sínum sjónarmiðum að í áherslum fyrir kjarasamningana sem eru
lausir í lok nóvember. Samhljómur var meðal formanna um að bíða þyrfti
átekta til að sjá hvort samið yrði til lengri eða skemmri tíma og færi
það að stórum hluta eftir því hvernig ríkisstjórnin hyggst stýra
efnahagsmálum. Þá þarf að tryggja það að launahækkanir sem um er samið
fari ekki jafn óðum út í verðlagið í gegnum hækkun gjaldskráa hins
opinbera og almennt vöruverð.
Eftir að hafa haldið fjórar
kjaramálaráðstefnur í vetur fara aðildarfélögin vel nestuð inn í vinnu
við kröfugerð en stefnt er að því að sameiginleg kröfugerð
Starfsgreinasambandsins verði tilbúin í síðasta lagi 1. október. Þess má geta að Eining-Iðja í Eyjafirði hefur þegar veitt Starfsgreinasambandi Íslands umboð
til kjarasamningagerðar en fleiri félög ræða fyrirkomulag samninga í
sínum röðum. Rétt er að taka fram að Verk Vest mun standa fyrir kjaramálaráðstefnu laugardaginn 31. ágúst næst komandi þar sem loka hnykkur verður lagður á kröfugerð félagsins og hvort samningsumboð verði veitt til landssambanda sem félagið á aðild að.
Ályktað um ferðaþjónustuFormannafundur Starfsgreinasambands Íslands (SGS) haldinn á Húsavík 3.
til 4. júní 2013 lýsir áhyggjum af stöðu starfsfólks í ferðaþjónustu í
upphafi sumarvertíðarinnar. Ef miðað er við reynslu undanfarinna ára er
ljóst að töluvert er um kjarasamningsbrot í greininni og undanskot frá
sköttum og skyldum. Formannafundur Starfsgreinasambandsins skorar á
atvinnurekendur, starfsfólk og stjórnvöld að gæta þess að farið sé eftir
leikreglum sem aðilar vinnumarkaðarins hafa sett sér og láta vita ef
misbrestur er á.
Greinargerð:
Ferðaþjónustan er ein af hornsteinum íslensks atvinnulífs og sífellt
fleiri félagsmenn innan aðildarfélaga SGS vinna í greininni. Það er
samfélagslega mikilvægt að greinin sé farsæl og innan hennar sé farið að
lögum og reglum. Starfsfólk á að vera tryggt í störfum sínum og greinin
skal skila eðlilegum sköttum til þjóðarbúsins. Meðal algengra mála sem
koma inn á borð stéttarfélaganna í tengslum við ferðamannavertíðina eru:
-
Greiðsla
jafnaðarkaups, slíkt er ekki til í kjarasamningum heldur skal greiða
dagvinnu og yfirvinnu eða vaktaálag ef um vaktavinnu er að ræða.
-
Að vaktir hafi ekki
skilgreint upphaf og endi, starfsfólk viti hvenær vinnutíma lýkur. Þess
skal gætt að skipulag vakta sé kynnt fyrir starfsfólki samkvæmt reglum
um vaktskrá. Vaktavinna sé tekin fram í ráðningasamningi og vakt skuli
unnin í samfelldri heild.
-
Að ungt fólk sé á
lægra kaupi en samið er um en þeir sem verða 16 og 17 ára á árinu eiga
strax að fá greitt miðað við 16 og 17 ára taxta.
-
Að ekki séu greiddir skattar og önnur opinber gjöld af starfsfólki og þar með brotin landslög.
Launafólk sem telur á sér brotið er hvatt til að hafa samband við
stéttarfélag á viðkomandi stað. Starfsgreinasambandið bindur vonir við áframhaldandi samstarf
Ríkisskattstjóra, Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands sem
hefur það markmið að uppræta svarta atvinnustarfsemi