Mynd. Landsbjörg
Á fundi formanna innan Sjómanna sambands Íslands ( SSÍ ) sem haldin var dagana 21 - 22. októberl síðast liðinn var samþykkt að senda eftirfarandi ályktun til Innanríkisráðherra um tafarlausa lausn á björgunarþyrlumálum Landhelgisgæslunnar. En frá og með næstu áramótum mun skapast neyðarástand þar sem aðeins ein björgunarþyrla mun verða til taks verði ekkert að gert.
"
Verði ekkert að gert strax
varðandi þyrlukost Landhelgisgæslunnar er hætt við að
hættuástand skapist fljótlega. Landhelgisgæslan á eina
þyrlu og er með aðra til leigu til ársins 2014. Um næstu
áramót fer önnur þyrlan í 3ja mánaða skoðun og verður þá
aðeins ein þyrla tiltæk. Megin verkefni þyrlanna er að
annast leit og björgun, en einnig sinna þær brýnum
sjúkraflutningum og öðrum öryggistengdum verkefnum. Á 17
ára tímabili frá 1994 - 2010 hefur alls 1513
einstaklingum verið bjargað með þyrlum
Landhelgisgæslunnar. Þar af voru bjarganir á sjó alls
361 og um helmingur þeirra utan 20 sjómílna. Í um 71%
tilvika er talið að notkun björgunarþyrlu hafi skipt
sköpum við björgunina. Það er því lífsspursmál fyrir
sjómenn að alltaf séu tiltækar þyrlur til björgunar
þegar óhöpp verða.
Formannafundur SSÍ haldinn í
Stykkishólmi dagana 21. og 22. okt. 2011 skorar því á
innanríkisráðherra að tryggja að Landhelgisgæslan fái nú
þegar a.m.k. tvær stórar þyrlur til viðbótar núverandi
þyrluflota sínum til að hún geti sinnt lögbundnu
hlutverki við eftirlits og björgunarstörf."