Hækkun lægri launa og millitekna
Fundað hefur verið stíft síðustu daga og liggja nú fyrir meginlínur draga að nýjum kjarasamningi sem VR, LÍV, Flóafélögin og StéttVest hafa unnið að með SA síðustu daga.
Samningsdrögin gera ráð fyrir að gildistíminn verði til loka árs 2018 og er aðaláhersla á hækkun lægri launa og að verja millitekjur. Lágmarkstekjutrygging hækkar um 86 þúsund krónur á samningstímanum, fer í kr. 245 þúsund krónur á mánuði við gildistöku samningsins og kr. 300 þúsund á mánuði frá og með maí 2018.
Launahækkanir
Hvað varðar launahækkanir er stuðst við taxtahækkanir og launaþróunartryggingu árin 2015 og 2016 en taxta- og prósentuhækkanir árin 2017 og 2018.
300 þúsund króna lágmarkstekjutrygging
Lægstu taxtar aðildarfélaga innan Landssambands ísl. verzlunarmanna hækka um 31,1% á samningstímanum. Samið er um árlega hækkun lágmarkstekjutryggingar sem er það lágmark sem greiða verður starfsmönnum. Í dag er lágmarkstekjutrygging 214 þúsund krónur en verður 245 þúsund krónur við undirritun samningsins og endar í kr. 300 þúsund.
Opnunarákvæði ef forsendur kjarasamningsins standast ekki
Samningsaðilar vinna nú að útfærslu ýmissa annarra ákvæða kjarasamningsins en mikilvægast af þeim eru opnunarákvæði ef forsendur kjarasamningsins standast ekki. Auk þess er unnið að sameiginlegum málum með Alþýðusambandi Íslands. Stefnt er að því að ljúka gerð kjarasamninga fyrir vikulok.