föstudagurinn 18. september 2009

Grunnnám fyrir skólaliða í grunn- og leikskólum

Grunnskólakrakkar á Ísafirði.  Mynd bb.is
Grunnskólakrakkar á Ísafirði. Mynd bb.is

Fræðslumiðstöðin heldur opinn kynningarfund um Grunnnám fyrir skólaliða mánudaginn 28. september kl. 20:00 í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12, Ísafirði.  Fundinum er meðal annars ætlað að fá fram hversu mikill áhugi er á náminu, upplýsa um hvað felst í náminu og hvaða fyrirkomulag hentar væntanlegum þátttakendum best.

 

Líta má á námið bæði sem starfsnám ætlað til að efla þátttakendur í starfi en einnig sem góðan grunn að frekara námi í faginu, t.d. tveggja anna framhaldsskólanámi fyrir þá sem vilja starfa sem skólaliðar. Námið er styrkhæft hjá fræðslusjóðum félagsins og eru grunn- og leikskólaliðar hvattir til að nýta sér þetta tæifæri og mæta á kynningarfundinn.

Þess má geta að Verk Vest greiðir námið að fullu fyrir sína félagsmenn.


Nánari upplýsingar um námið má fá hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Sjá einnig meðfylgjandi auglýsingu.

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.