Í ljósi þess að samninganefndir ASÍ og SA hafa samþykkt samkomulagið frá 25. júní síðast liðnum þá hafa allflest landssambönd innan ASÍ nú uppfært sína launataxta. Verið er að vinna í að uppfæra launataxta á heimasíðu félagsins, þangað til þeirri vinnu er lokið bendum við félagsmönnum okkar á að nota eftirfarandi tengla þangað til þeirri vinnu verður lokið. Einnig er hægt að koma við á skrifstofu félagsins og fá útprentun á töxtunum, eða hafa samband og fá þá senda heim.
Á heimasíðu
Starfsgreinasambandsins ( SGS ) þá hefur launatafla almenna samningsins (
gula bókin ) launatafla
Beitningarsamnings, launatafla
Bændasamnings, launatafla
Flugleiðahótela og launatafla
Veitingasamnings nú verið uppfærðar. Þá eru einnig birtar með fyrivara um samþykki launatöflur og samkomulag
starfsmanna ríkisstofnana og
starfsmanna sveitarfélaga sem og röðun
starfsheita í launaflokka samkvæmt starfsmati hjá sveitarfélögum.
Taxtar verslunar og skrifstofufólks hafa einnig verið uppfærðir. Hér má sjá launataxta
LÍV og SA og launataxta
LÍV og FÍS ( félag ísl. stórkaupm.)
Á heimasíðu Samiðnar undir liðnum
kjarasamningar má finna uppfærða taxta
iðnaðarmanna,
iðnnema og starfsþjálfunarnema. Þar má einnig finna upplýsingar um
samning Samiðnar við ríkið.