Alþýðusamband Íslands í samvinnu við Verk Vest, Félag járniðnaðarmanna og Vls Bolungavíkur boða til fundar á Hótel Ísafirði
mánudaginn 18. Mars kl. 20:00.
Til fundarins eru sérstaklega boðaðir stjórnarmenn og
trúnaðarmenn Verkalýðsfélags Vestfirðinga, Félags járniðnaðarmanna á Ísafirði
og Verkalýðs og sjómannafélags Bolungarvíkur.
Fjallað verður um stöðu kjaramála og kaupmáttar með
sérstakri áherslu á baráttuna við verðbólguna og stefnu og áherslur ASÍ í þeim
efnum, sókn í atvinnumálum og hugmyndir ASÍ um nýtt
húsnæðiskerfi.
Á fundinum mun liggja frammi upplýsingaefni/smárit um
hvern efnisþátt fyrir sig.