föstudagurinn 13. maí 2011

Kjörgögn send út

Mikill handagangur hefur verið á skrifstofu félagsins vegna nýrra kjarasamninga sem Verk Vest er aðili að. Yfirferð á kjörskrám og afstemming þeirra ásamt því að útbúa kynningarefni til félagsmanna vegna samninganna hefur bæst við annann erill á skrifstofunni. Kjörseðlar ættu að vera berast félagsmönnum þessa dagana og er áríðandi að bregðast fljótt og vel við og merkja á atkvæðaseðilinn og koma honum í póst sem fyrst. Atkvæðseðlar verða að berast til kjörstjórnar Verk Vest fyrir kl.17.00 þriðjudaginn 24. maí næst komandi. Atkvæði sem berast eftir þann tíma teljast ekki gild. Samninganefnd félagsins hvetur félagsmenn til að nýta atkvæðisrétt og kjósa sem fyrst.

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.