Kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands (SGS) var lögð fram á fundi samningaráðs SGS og fulltrúa Samtaka atvinnulífsins sem var haldinn í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag.
Kröfurnar mótuðust á fundum í verkalýðsfélögum og á vinnustöðum um land allt og með hliðsjón af niðurstöðu viðhorfskannana. Þær urðu þannig til í víðtæku, lýðræðislegu ferli í verkalýðshreyfingunni þar sem öllum félagsmönnum gafst kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif.
Meginkröfur Starfsgreinasambandsins eru þær að
Gerðir hafa verið kjarasamningar við einstaka starfsstéttir undanfarnar vikur og mánuði, sem hljóta almennt að vísa launafólki veginn. Samhljómur er meðal aðildarfélaga SGS um að sú launastefna, sem hefur mótast í samfélaginu, endurspeglist í kjarasamningum SGS við Samtök atvinnulífsins.
Grundvallaratriði er að fólk lifi af dagvinnulaunum í stað þess að ganga sér til húðar í yfirvinnu, aukavinnu og akkorði til að framfleyta sér og sínum.
Langur vinnudagur og mikið álag dregur úr framleiðni og eykur samfélagslegan kostnað. Þá á launafólk að njóta þess í launum þegar það öðlast meiri færni í starfi með reynslu og menntun.
Samninganefnd Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur samningsumboð 16 verkalýðsfélaga innan SGS og taka til um 12.000 félagsmanna við endurnýjun aðalkjarasamnings.
Kröfugerðin var samþykkt á fundi samningnefndar SGS þann 22. janúar 2015.
Nánari upplýsingar um kröfugerð SGS veita þau:
Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, símar:460 3600 / 894 0729
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS, símar:562 6410 /695 1757