miðvikudagurinn 2. júní 2010

Launahækkanir 1. júní

Í gær, 1. júní, kom til framkvæmda lokaáfangi hækkana samkvæmt kjarasamningum ASÍ félaga við Samtök atvinnulífsins, ríkið og sveitarfélögin. Launataxtar verkafólks hækkuðu þá um kr. 6.500 á mánuði og ákvæðis- og bónusgreiðslur um 2,5%.


Nýju taxtarnir eru komnir á vefinn hjá okkur og er hægt að nálgast þá með því að smella á Kjaramál og síðan Kaupgjaldsskrár í dálkinum hér til vinstri.

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.