Miðstjórnarfundur ASÍ sendi frá sér eftirfarandi ályktun um siðlausa ákvörðun stjórnar HB-Granda. Þessi ákvörðun setur samkomulag samninganefndar ASÍ við Samtök Atvinnulíf í algjört uppnám. Þá hefur gjörningurinn einnig hleypt illu blóði í launþega sem fyrir stuttu fengu ekki greiddar út umsamdar kauphækkanir sem áttu að koma til framkvæmda þann 1. mars sl. vegna samkomulagsins.
Siðlaus ákvörðun stjórnar HB-Granda
"Miðstjórn ASÍ telur tillögu stjórnar HB-Granda um hundruð milljón króna arðgreiðslur til eigenda siðlausa við núverandi aðstæður og skorar á stjórnina að draga tillöguna til baka ella greiða starfsfólki áður umsamdar launahækkanir án tafar.
Tillagan setur samning um frestun endurskoðunar kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins í uppnám en rökstuðningur Samtaka atvinnulífsins fyrir frestuninni var að fyrirtækin hefðu ekki fjárhagslega burði til að standa við umsamdar tímasetningar launahækkana.Verkalýðshreyfingin hefur lýst vilja sínum til að ræða við fulltrúa atvinnurekenda um alvarlega stöðu atvinnulífsins til að fresta þess að koma í veg fyrir enn meira atvinnuleysi og kaupmáttarskerðingu en það kemur ekki til greina að launafólk taki á sig byrðar til þess að skapa svigrúm fyrir eigendur fyrirtækjanna til að taka út svimandi háan arð.
Það vekur ugg að í ársreikningum HB-Granda er beitt sömu aðferðum við að blása út eignir og beitt var í fjölmörgum fyrirtækjum og fjármálastofnunum, sem hrunið hafa á síðustu mánuðum. Óefnislegar eignir eru metnar langt um fram raunverulegt verðmæti, sem verður til þess að verðmæti og eignastaða fyrirtækisins lítur út fyrir að vera mun betri en raun er.