föstudagurinn 30. maí 2008

Orlofsferð - Orlofshús

Auglýsing Póllandsferðar
Auglýsing Póllandsferðar
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í glæsilega orlofsferð félagsmanna til Kraká í Póllandi. En eins og komið hefur fram í fréttabréfi sem sent hefur verið út til félagsmanna þá er lokafrestur til að skrá sig í ferðina 7.júni.  Þá hafa skráningar í dagsferð félagsmanna í Flatey á Breiðafirði verið mjög góðar, en sætafjöldi í þá ferð er takmarkaður.  Ennþá eru nokkrar vikur lausar í orlofsbústaði félagsins og þá sérstaklega á Einarsstöðum á héraði og eru félagsmenn hvattir til að nýta sér þessa góðu aðstöðu sem er í boði. Einnig er vert að minnast á gistimiða á Hótel Eddu sem félagsmenn geta keypt á skrifstofu félagsins sem og ódýru miðana í Hvalfjarðagöngin.

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.