Gengið af séreign dauðri !
Stjórn Verkalýðsfélags
Vestfirðinga lýsir yfir stuðningi við ályktun miðstjórnar
Samiðnar þar sem fram
kemur hörð gagnrýni á inngrip stjórnvalda í frjálsa kjarasamninga með einhliða
breytingu á skattlagningu séreignasparnaðar. Nái þessar fyrirætlanir
stjórnvalda fram að ganga hlýtur verkalýðshreyfingin að hvetja félagsmenn sína
til að hætta að leggja í séreignarsparnað umfram 2% af eigin launum.
Með
þessari einhliða aðgerð stjórnvalda er verði að ganga að
séreignarsparnaðarformi launþega dauðu. Líkt og bent er á í ályktun frá
nýafstöðnu þingi
SGS þar sem kemur fram að sá hluti sem er umfram 2% lendir að
mestu í eignaupptöku stjórnvalda þar sem bæði inn- og útgreiðsla sparnaðarins
verður skattlögð. Tvísköttunin leiðir til þess að milli 60 og 70% af höfuðstól
sparnaðarins greiðist í skatt.
Við þær aðstæður sem
almenningur býr við í dag er áríðandi að stjórnvöld hvetji til sparnaðar frekar
en dregið verði úr honum. Fyrir liggur að vextir af sparnaðinum verða skattlagðir eins og launatekjur
en ekki eins og fjármagnstekjur. Þannig verði mökuleikar til sparnaðar skertir eins leiða má líkum að verði þessi
gjörningur að veruleika.