Atkvæði vegna kosningar um nýjan kjarasamning smábátasjómanna voru talin hjá ríkissáttasemjara föstudaginn 5. október.
Niðurstöður atkvæðagreiðslunar voru ótvíræðar, meðal sjómanna fór atkvæðagreiðslan þannig að 64,3% sögðu já og 35,7% sögðu
nei. Hjá Landssambandi smábátaeiganda samþykktu 74% þeirra félagsmanna LS sem greiddu
atkvæði samninginn, hjá LS var 25% þátttaka. Þetta
er í fyrsta skipti sem samþykktur er kjarasamningur fyrir
smabátaflotann á landsvísu. Ekki eru mörg ár síðan að sjósókn á smábátum
var nánast eingöngu stunduð sem einmenningssjósókn og þá yfirleitt af
eigendunum sjálfum.
Samþykkt
kjarasamninganna er stór áfangi í réttindabaráttu smábátasjómanna þó svo einhverjir hafi ekki verið ánægðir með skiptakjör í nýja samningnum. Verk Vest óskar smábátsjómönnum til hamingju með áfangann en minnir jafnframt á að í samningnum er eingöngu kveðið á um lágmarkskjör í greininni.