Björn Snæbjörnsson er formaður SGS
Í kjölfar umræðna á Alþingi um Jafnlaunaátak og kjarasamninga sá framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands ekki annað fært en senda frá sér eftirfarandi Ályktun.
Framkvæmdastjórn
Starfsgreinasambands Íslands (SGS) krefst þess að staðið verðið við þau
fyrirheit að hækka laun kvennastétta innan heilbrigðisstofnana eins og gefin
voru fyrirheit um í upphafi árs. Jafnlaunaátakið gerir ráð fyrir 4,8% hækkun
til þeirra stétta sem skilgreindar eru sem kvennastéttir innan
heilbrigðisstofnana og hafa nú þegar verið undirritaðir nýjir stofnanasamningar
við einhverjar stofnanir sem tryggja slíka hækkun frá 1. mars. Á Alþingi þann
19. júní var málið til umræðu og greindi fjármálaráðherra þá frá því að ekki
væru til fjármunir til þessa verkefnis en á sama tíma er verið að skerða
tekjustofna ríkisins með lækkuðum álögum á einstaka atvinnugreinar. Þetta eru
kaldar kveðjur til kvenna á sjálfan kvenréttindadaginn. Starfsgreinasambandið
treystir því að fjármálaráðherra finni þrátt fyrir allt leiðir til að hrinda
áformunum í framkvæmd svo notuð séu hans orð og það eigi við allar
kvennastéttir innan heilbrigðisstofnana. Þá ber að minna á að samkvæmt könnunum
sem gerðar hafa verið meðal félagsmanna aðildarfélaga SGS eru konur í
umönnunarstéttum hjá hinu opinbera meðal þeirra sem lægst hafa launin á
íslenskum vinnumarkaði. SGS skorar á ríkisstjórnina að standa við gefin fyrirheit
til lægst launuðu stéttanna í landinu.