Stjónin að loknum góðum fundi
Stjónin að loknum góðum fundi
1 af 3
Stjórnarfundur Verk Vest var haldinn á Kaffi Rís á Hólmavík laugardaginn 16. ágúst. Góð mæting deildarformanna víða af félagssvæðinu var á fundinn þrátt fyrir að um langan veg væri að fara hjá sumum fundarmanna.  Á fundinum voru til umfjöllunar fjölmörg álitamál er varða bæði daglegan rekstur félagsins og þjónustu við félagsmenn sem og málefni er varða framtíðarskipulag félagsins og þátttöku þess í stofnun Starfsendurhæfingar Vestfjarða. 

Stjórn félagsins hafði áður samþykkt að félagið tæki þátt í undirbúningsvinnu við að koma starfsendurhæfingunni á laggirnar. Í framhaldi af þeirri vinnu og fyrri ákvörðun stjórnar var ákveðið að Verkalýðsfélag Vestfirðinga yrði stofnfélagi í Starfsendurhæfingu Vestfjarða. Var það mál fundarmanna að koma slíkri endurhæfingu á fót í heimabyggð væri mikill fengur fyrir þá félagsmenn sem þurfa á aðstoð að halda þegar kreppir að vegna langvarandi veikinda af ýmsum toga.
Vonast undirbúningshópur starfsendurhæfingarinnar til að hægt verði að halda stofnfund í September næst komandi og næsta skref væri að auglýsa eftir  starfsmanni endurhæfingarinnar. 

Þá var einnig samþykkt á fundinum að fasteign félagsins á Hólmavík yrði auglýst til sölu, en fasteignin hefur verið í útleigu undanfarin misseri.  Þá voru nýgerður kjarasamningur fyrir beitningarfólk og stofnanasamningur fyrir starfsfólk Vegagerðarinnar einnig lagði fram til kynningar.    

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.