miðvikudagurinn 16. apríl 2008

Úthlutun orlofshúsa að ljúka

Hús nr. 9 í Svignaskarði
Hús nr. 9 í Svignaskarði
1 af 3

 

Umsóknarfrestur til að sækja um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga nú í sumar lauk 10. apríl. Þeir sem sendu inn umsóknir áður en fresturinn rann út komast í aðalúthlutun. Þegar ljóst verður hvaða vikur liggja á lausu verður það auglýst nánar hér á vefnum.  Starfsfólk skrifstofunnar er að ganga frá úthlutunum, en ljóst er að draga þarf um einhverjar vikur þar sem fleiri en einn sóttu um hvert tímabil. Upplýsingar um hvort félagsmenn hafi fengið úthlutað ætti því að koma í ljós á næstu dögum. Við minnum einnig á möguleika á gistingu í íbúð Öldunnar á spáni.

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.