Smá rok bítur ekki á göngufólk
Smá rok bítur ekki á göngufólk
1 af 4

 

Ágæt þátttaka var í 1. maí kröfugöngu á Ísafirði þrátt fyrir hryssingslegt  veður.  Hátíðarhöldin þóttu takast vel og var gríðarlegt fjölmenni í kaffisamsæti að dagskrá lokinni. En hefð er orðin fyrir því að 1. maí nefnd stéttarfélaganna bjóði í kaffi á þessum baráttudegi verkalýðsins.  Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga flutti hátíðarræðu dagsins, en í henni var tekið á málum eins og stöðu atvinnulífs á Vestfjörðum, gjaldfellingu kjarasamninga, verðbólgubálinu og inngöngu í Íslendinga í ESB.  En við þeim gjörningi varar formaðurinn sterklega við svo vitnað sé í brot úr  ræðu formannsins.

 ..." Það er óráð að fara á taugum í þeim efnahagsumbrotum sem nú dynja á landsmönnum og líta á viðræður um inngöngu í Evrópubandalagið sem einhverja töfralausn til björgunar heimatilbúins efnahagsvanda.

Verstu afleiðingarnar fyrir þjóðina væru að okkar verðmætu auðlindir yrðu afhentar til ESB á silfurfati.  Með þeim gjörningi hefðum við ekkert um nýtingu auðlinda okkar að segja í framtíðinni."... 

 Þetta virðist vera sá tónn sem víðar er gefin innan verkalýðshreyfingarinnar, en ræðuna í heild sinni má sjá undir liðnum pistlar hér á síðunni.  Formanni 1.maí nefndar  stéttarfélaganna Kára Þ. Jóhannssyni var hugleikið í máli sínu hvar þingmenn okkar Vestfirðinga væru staddir, því ekki einn einasti þeirra sást taka þátt í hátíðarhöldunum á Ísafirði þetta skiptið. Við getum bara gert ráð fyrir að þeir hafi verið að vinna að lausn vandamála umbjóðenda sinna, sem eru ærin þessa dagana.

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.