Við verðtöku Verðlagseftirlits
ASÍ í gær var starfsmönnum eftirlitsins vísað á dyr í fjórum verslunum líkt og
í síðasta mánuði. Þær verslanir sem vilja takmarka aðgengi neytenda að
upplýsingum um vöruverð hjá sér eru Hagkaup, Nóatún, Víðir og Kostur. Þetta
gerist á sama tíma og verðbólga í landinu er komin á skrið. Ætla má að verslanir sem vilja ekki að vöruverð sitt birtist
opinberlega og því síður borið saman við vöruverð annarstaðar séu að leita
skjóls til verðhækkana.
Verðlagseftirlit ASÍ
gegnir mikilvægu hlutverki við eftirfylgni með samkomulagi sem ASÍ og SA
undirrituðu við framlengingu kjarasamninga þann 21. janúar sl. Þar voru aðlar
sammála um að beita sér fyrir aðgerðum til lækkunar verðlags m.a. með auknu
aðhald að verðhækkunum.
Verslanirnar Hagkaup,
Nóatún, Víðir og Kostur virðast ekki tilbúnar til að sýna launafólki samstöðu með
því að halda vöruverði niðri og þar með verðbólgunni í skefjum, öllum til
heilla.
Neytendur eru því hvattir til vel á verði gagnvart verðbreytingum í þessum verslunum.