Frá fundi stjórnar og trúnaðarráðs
Boðað er til fundar hjá stjórn og trúnaðarráði Verkalýðsfélags Vestfirðinga þriðjudaginn 2. febrúar nk. Fundurinn verður haldin í fundarsal félagsins að Pólgötu 2 á Ísafirði og hefst kl 20:00.
Megin þungi fundarins verður á undirbúning fyrir kjarasamninga, sem allflestir verða lausir nú síðar á þessu ári.
Dagskrá.
1. Kjarasamningar 2010
- Samninganefnd
- Undirbúningur kröfugerðar
2. Kynning á viðhorfskönnun Verk Vest
3. Virk - starfsendurhæfing til framtíðar
4. Önnur mál